Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: október, 2008.

Færslur

Kvótinn fór á skíði

Grímur Atlason @ 31. október, 2008 # Ummæli (8)

Kvótinn kom og kvótinn fór og kvótinn fór á skíði.
Svona hljóða ljóðlínur ónefnds skálds um íslenska kvótakerfið. Það er athyglisvert að það skuli vera einn stjórnmálaflokkur á Íslandi sem verji núverandi kerfi með kjafti og klóm – þrátt fyrir skelfilegar afleiðingar þess fyrir byggðirnar í landinu. Útflutningur fjármagnsins sem setti blöðrubankakerfið í gang hófst einmitt [...]

Lesa meira

Lífsins elexír

Grímur Atlason @ 30. október, 2008 # Ummæli (6)

Lítið hefur farið fyrir hugmyndasnauðum frjálshyggjumönnum upp á síðkastið. Það er skiljanlegt þar sem afrakstur pælingarinnar dó drottni sínum með nokkuð afgerandi hætti. Þeir eru þó eitthvað að ranka við sér aftur og reið Hannes Hólmsteinn fyrstur á vaðið með yfirlýsingar um krónuna og að sú staðreynd að við hefðum krónu hefði gert það að [...]

Lesa meira

Ég er í svo vondum málum

Grímur Atlason @ 29. október, 2008 # Ummæli (1)

Pabbi, ég er í svo vondum málum að það er ekki eðlilegt.
Ekki var það Íslandskreppan sem sumir kalla alheimskreppu sem var að hrjá 7 ára dóttur mína rétt í þessu. Hin vondu mál eru meint búningaleysi hennar á hrekkjavökuhátíð á morgun í Skýjaborgum. Ég gat því miður ekki aðstoðað hana enda staddur í Búðardal.

Lesa meira

Kúrsinn settur

Grímur Atlason @ 29. október, 2008 # Ummæli (0)

Sveitarfélögin mörg hver standa höllum fæti og hafa gert í mörg ár. Í góðærinu gerði ríkið lítið annað en að hirða kökuna og borga niður skuldir sem nú skiptir litlu máli – skuldirnar hafa aldrei verið meiri. Tekjuskiptingin er og var skökk og viljaleysið til að leiðrétta þetta var takmarkalaust af hálfu ríkisins. Nú lítur dæmið [...]

Lesa meira

Þetta er þá sveigjanleiki krónunnar…

Grímur Atlason @ 28. október, 2008 # Ummæli (5)

Hannes Hólmsteinn í Vísbendingu:
Atburðarásin haustið 2008 leiddi hins vegar eitt í ljós: Með öllum sínum óköstum var íslensk króna fljótvirkasta og friðsamlegasta tækið til að laga hagkerfið að nýjum aðstæðum. Með gengisfalli krónunnar voru laun snarlækkuð án blóðsúthellinga. Almenningur fékk skýr skilaboð um það, að hann yrði að spara og beina kaupum sínum frekar að [...]

Lesa meira

Búið að bíða nógu lengi

Grímur Atlason @ 28. október, 2008 # Ummæli (3)

Það hefur aldrei verið eins ljóst að Ísland þarf að sækja um Evrópusambandsaðild strax. Það hefur heldur aldrei verið jafn ljóst að boða þarf til kosninga. Vaxtahækkun Seðlabankans var fyrirsjáanleg í ljósi aðstæðna og við henni er lítið hægt að gera. Kjararýrnun og atvinnuleysi er staðreynd sem líka var fyrirsjáanleg úr því sem komið var. [...]

Lesa meira

Athyglisvert

Grímur Atlason @ 27. október, 2008 # Ummæli (2)

Kompás var ansi merkilegur enda viðtal við úthrópaðan mann þar sýnt. Yfirlýsingar forsætisráðherra frá því fyrr í dag voru líka merkilegar. Það sem Seðlabankinn gaf út um efni viðtalsins áður en það var sýnt var líka mjög athyglisvert.
Yfirlýsingar dómsmálaráðherra og forsætisráðherra um tilgangsleysi Evrópusambandsaðildar voru hins vegar ekkert merkilegar.

Lesa meira

Stoðirnar

Grímur Atlason @ 26. október, 2008 # Ummæli (1)

Á fimmtudaginn fór ég á KK, á föstudaginn sá ég Brák og á laugardaginn meistaramót í rúning og hrútakeppni. Íslensk menning er ótrúlega öflug og uppbyggjandi. Áhrif hennar verða seint ofmetin en iðulega vanmetin. Það er svo merkilegt að meginstoðir íslensks samfélags hafa löngum verið vanmetnar.
Fyrsta verstöðin á Íslandi er talin hafa verið í Bolungarvík [...]

Lesa meira

Oft var þörf en nú er það algjört möst!

Grímur Atlason @ 24. október, 2008 # Ummæli (11)

Ég hugsa að margur jafnaðarmaðurinn hugsi sig rækilega um yfir helgina. Það kæmi ekki á óvart að þeir leituðu á önnur mið ef þessi skrípaleikur heldur áfram. Þetta eru skilaboðin sem lesa má út um allt í samfélaginu og gott fólk verður að taka við þeim og bregðast við. Hér er ekki um nein venjuleg íslensk afglöp [...]

Lesa meira

KK

Grímur Atlason @ 23. október, 2008 # Ummæli (0)

Gleymdi mér um stund í Salnum með KK og stórkostlegu bandi hans. Það var gott að komast aðeins í skjól frá þessu roki sem virðist bara bæta í.

Lesa meira