6 athugasemdir

  1. Ómar ágúst 28, 2008 @

    Ég er innilega ósammála þér á nánast alla vegu.

    1. Bændur eru „á spenanum“ og hafa í langa hríð ekki getað starfað sjálfstætt nema með ríkisstyrkjum. Það eitt að þeir séu að kvarta yfir því að styrkir til þeirra minnki að raungildi (um 2ma.kr. samkvæmt þínum tölum) er gott merki þess að a) þeir neyðast til að hagræða í sínum rekstri eða b) hætta rekstri og leyfa öðrum býlum að nýta þeirra jarðnæði. Þar með yrði nauðsynleg samþjöppun í greininni sem að óbreyttu ylli meiri hagræðingu (já ég tilbið „hina heimsku hönd hagræðingarinnar“)

    2. Hagræðing í landbúnaði er mjög takmörkuð og offjárfesting langvinnur sjúkdómur. Sú offjárfesting hefur hingað til gengið vegna þess að ríkið hefur haldið þeim uppi og lýsir sér e.t.v. best í rúllubindivélum, nokkurra hundruða hestafla dráttarvélum, ofnotkun áburðar o.fl. Þegar olíuverð (verð á plasti) hækkar samhliða auknum áburðarhækkunum vegna aukinnar notkunar áburðar í austurlöndum kvarta bændur helst til ríkisins sem halda skal óráðsíunni uppi. Ég get sem skattborgari ekki samþykkt það. Hættið að kaupa rúllubindivél á 5 ára fresti!

    3. Matvælaöryggi kemur málinu ekkert við. Að mínu mati ætti að opna innflutning á matvöru upp á gátt, bæði frá sem og til landsins. Þú nefndir það sjálfur, úr því íslenskir bændur framleiða svona æðislegar vörur þá ættu þeir að vera tilbúnir í að taka þann slag við innfluttar matvörur sem af því hlytist. Ella væru þeir jú að lýsa yfir vanmati á eigin framleiðslu í samanburði við t.d. danska osta (sem ég reyndar verð að vera sammála þér með, danskir ostar í samanburði við íslenska eru ferlega braðgvondir). Þá hefur Ísland (ennþá) stimpil „hreinnar náttúru og hreinleika“ svo sú samkeppni á matvörumarkaði ætti ekki að hræða neinn. Að sjálfsögðu færu margir bændur á hausinn en aðeins þeir sem ekki gætu hagrætt í sínum rekstri frá því sem nú er. Og ég get sagt þér að þeir eru margir sem gætu sparað nokkrar krónur. Á hinn bóginn myndu allar hinar 250þúsund sálir Íslands hagnast á lægra matvælaverði (samkeppni) og lægri skattheimtu.

    Myndi matvælaverð út úr búð hækka? Já líklega, færi eftir því hve verðlækkun vegna aukinnar samkeppni yrði mikil! Hins vegar myndi kaupmáttur launa aukast umfram matvælaverðshækkunina því skattheimta yrði minni!

    Vita skaltu að ég er bóndasonur en ekki malarbarn og veit af eigin hendi hvers konar vitleysa íslenskur landbúnaður er. Raunar á hann sammerkt með landbúnaði annars staðar í Evrópu að vera háður ríkisspenanum og því ekkert einsdæmi.

    Ríkið á ekki að skipta sér af því sem það skaðar meira heldur en hjálpar! Landbúnaður er eitt af þeim málefnum. Því miður er þetta of pólitískt málefni til að það verði lagað og því líklegt að vitleysunni verði haldið áfram meðan enginn stjórnmálamaður þorir að stíga fram fyrir skjaldarendur.

  2. Grímur ágúst 28, 2008 @

    Mæli með því að þú skrifir grein um þetta Ómar – athugasemdin er það löng. Ég segi hins vegar á móti þessum fullyrðingum að niðurgreiðsla er orðskrípi sem er notað af sumum þegar hentar þeim og þeirra málstað en ekki þegar það hentar ekki. Hvað er að vera á spenanum? Hvað ekki? Það er ótrúleg skammsýni sem fylgir aðferðum og hugmyndafræði þeirri sem þú lofsyngur svo mjög. Hvað heldurðu Ómar að margir hafi vinnu út um allt land vegna þess að íslenskur landbúnaður er til? Þá er ég ekki að tala um sveitarbæina sjálfa. En það er eitt ljóst sem ég held að við getum verið sammála um og það er að kerfið sjálft er gamaldags og forpokað og líklega ástæða þess hve erfiðlega gengur í PR málum landbúnaðarins.

  3. Valþór ágúst 29, 2008 @

    Grímur, þú hlýtur að átta þig á því, að sé Íslenska ríkið að borga skattfé í landbúnað, þá merkir það að framleiðslugreinar sem standast n.v. alþjóðlega samkeppni bera minna úr býtum. Sjómaðurinn þarf að borga hærri skatt til þess að landbúnaðarbruðlið haldi áfram, starfsmaður Marels sömuleiðis, álversstarfsmaðurinn líka og svo mætti lengi telja.

    Að auki, með því að sóa fé í ríkisstyrktar atvinnugreinar sem þrátt fyrir styrkina, standast ekki samkeppni við erlenda matvælaframleiðslu, ertu að ræna af íslendingum tækifærinu til þess að nýta launin sýn á sem bestan hátt.
    Sérstaklega er slíkt rán alvarlegt fyrir lágtekjufólk sem eðli málsins samkvæmt eyðir hlutfallslega miklum hluta tekna sinna í matvæli.

    En, þú ert náttúrulega í pólítík úti á landi, og stendur þig svosum ágætlega í lobbýismanum.
    Það er samt betra að loka ekki augunum fyrir staðreyndum.

  4. Friðrik V. ágúst 29, 2008 @

    Valþór mætti minnast þess að sjómennskan er niðurgreidd af ríkinu.

  5. María Kristjánsdóttir ágúst 29, 2008 @

    Þetta er þörf grein – og ástæða til að skera upp herör gegn þeirri dómadagsvitleysu sem hellt er yfir okkur um bændastéttina. Það væri líka ástæða til að taka inn heimsmyndina, umhverfismálin, þá þörf sem blasir við að reyna að draga út flutningum yfir hálfan hnöttinn á afurðum sem hægt er að framleiða á staðnum. Og svo hitt að við getum framleitt nauðsynlegustu búvörur sem við þurfum til þess að lifa af- það hljóta allar eyjur að verða að tryggja sér.

  6. Gunnar Guðjónsson ágúst 30, 2008 @

    Það er því miður ekki rétt að skattar og matarverð myndu lækka. Þið vitið ekki hvað þið eruð að segja.
    Ég spyr eruð þið ekki í vinnu kannið hvort landbúnaður komi þar nálægt.
    Ef við bændur værum ekki til staðar væri hér óðaverðbólga.
    Hef því miður ekki tíma fyrir ykkur malbiksbörn lengur og bið ykkur vel að lifa.

Hin heimska hönd hagræðingarinnar

Óflokkað | Ummæli (6) Facebook

Stór fundur í Dalabúð var haldinn í gær. Sauðfjárbændur boðuðu til fundarins með stuttum fyrirvara en ljóst af fundarsókninni að dæma að ekki var vanþörf á.

Niðurstaða fundarins var skýr. Vextir í þessu landi eru auðvitað út úr öllu korti. Afurðarverð til bænda er í besta falli lélegt en í ljósi fákeppni á matvörumarkaði er lítil von á breytingum nema með verulegum aðgerðum sem fælist í þungi í stað hjómkenndra óska fluguvigtarráðherra. Það er með ólíkindum að þegar hrávara hækkar í heiminum, og matvæli þar ekki síst, skuli það vera bændur á Íslandi sem taki á sig skerðinguna einir framleiðenda. Ekki nóg með að vaxtakostnaður og innkaupakostnaður hækki um tugi prósenta hjá þessari stétt heldur þurfa þeir líka að sætta sig við litla sem enga hækkun afurðaverðs.

Hvað er er til ráða? Núverandi kerfi er ekki að skila því sem til stóð (nema það hafi staðið til að festa bændur í fátækragildru). Hagræðing á sláturmarkaði hefur ekki skilað sér í hærra verði til bænda og óttaáróðurinn hefur heldur engu skilað. Það sem hefur gerst er að ríkið er að borga minna og minna í greinina og bændum hefur fækkað verulega sl. áratug. Árið 1998 greiddi ríkið rúma 13 milljarða til landbúnaðarins á móti rétt um 11 milljörðum í dag á föstu verðlagi. Þetta þýðir í raun kjaraskerðingu sem mér er til efs að nokkur önnur stétt myndi láta bjóða sér tímabundið hvað þá um langt árabil. Það má heldur ekki gleyma að bændur skila þessu margfalt til baka í ríkiskassann. Beinir skattar og virðisauki af framleiðslunni – verðmæti fyrir þjóðina alla.

Bændur hafa því miður orðið undir í áróðursstríðinu. Þeir ku vera baggi á þjóðfélaginu og menn sjá ofsjónum yfir svokölluðum niðurgreiðslum til þeirra en þær renna reyndar beint til neytenda. Þetta er ekkert annað afskræming á staðreyndum. Rétt eins og sumir íbúar á höfuðborgarsvæðinu sjá ofsjónum út af vegagerð, jöfnunarsjóðsgreiðslum, menningarsjóða og öðru sem fer fram utan 50 km radíuss höfuðborgarinnar. Hlutirnir eru bara kallaðir svo mörgum nöfnum. Hvað ætli íslendingar hafi kostað miklum fjármunum úr sínum sameiginlegu sjóðum frá aldamótunum þar síðustu til uppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu? Hvað ætli stór hluti útflutningstekna okkar hafi orðið eftir þar á meðan upprunasvæði auðsins fékk leifarnar? Uppbygging sjúkrahúsa, skóla, hafna, flugvalla, raforkukerfis, vegakerfis, fjarskiptakerfis, leikhúsa, stóriðju, íþróttamannvirkja, stjórnsýslu o.fl. o.fl. Fjármunir settir í þessi verkefni hafa aldrei verið kallaðir niðurgreiðsla heldur fjármunir til uppbyggingar.

Hér er auðvitað um rökrétta þróun mála að ræða en þó ekki í einu og öllu. Hvað sem áróðursvélin segir að þá hallar verulega á ýmis svæði og þjóðfélagshópa. Það er smánarlegt að ekki skuli verið búið að koma fjarskiptum og raforkumálum í lag á landsbyggðinni og vegakerfinu sömuleiðis. Eignir ríkisins eru viðhaldslausar víða út um land og ekki hægt að bera þær saman við eignir ríkisins á höfuðborgarsvæðinu. Sameiginlegir sjóðir okkar hafa svo sannarlega verið notaðir til þess að ljúka þeim málum á vel völdum stöðum. Á meðan hægagangurinn er staðreynd held ég að þeir sjá ofsjónum yfir brotabroti af sameiginlega sjóðnum í landbúnað ættu að finna sér nýtt áhugamál. Það þyrfti að stórauka fjármagn til uppbyggingar og greiðslur til íslensks landbúnaðar eru auðvitað ekkert annað en fjárfesting til framtíðar fyrir okkur öll.

Síðustu árin hefur hin heimska hönd hagræðingarinnar tekið öll völd. Þessi hönd sér ekki lengra en til hádegis næsta dag. Henni þykir skynsamlegast að loka fyrir þjónustu á þeim stöðum sem fáir nýta sér hana. Hún segir að best að gera sem minnst í landbúnaðarkerfinu og fækka þannig í greininni. Já, höndin er heimsk og einföld. En hverju skilar þetta? Viljum við að framleidd verði matvæli áfram í þessu landi? Viljum við að byggð verði blómleg eða er betra að fá alla í blokk á Rauðavatnssprungunni? Auðvitað geta stjórnvöld ekki notað töfrasprota á allt – landsbyggðarfólk og aðrir þurfa að breyta um taktík og hugsa fram á við með bjartsýni og af krafti líka. Það kostar að reka landbúnað á Íslandi. Það kostar líka að reka höfuðborg og samfélag. Það er óréttlátt ef sátt á aðeins að vera um rekstur höfuðborgarinnar en hinir geti étið það sem úti frýs. Það er líka heimskt og skilar vondri niðurstöðu á efahagsreikningnum seinna meir.

Það er hreinlega fáviska að þrengja meira að landbúnaði í landinu. Fyrir utan að sjá okkur fyrir frábærum matvælum þurfum við á honum að halda til að viðhalda menningu, sögu og sjálfstæði þjóðarinnar. Það er alveg ljóst að fara þarf í algjöra endurskoðun á kerfinu en það er líka ljóst að íslenskur landbúnaður þarf umtalsvert meiri stuðning en nú er veittur. Hér er ekki aðeins verið að tala um fjármuni frá ríkinu heldur líka stuðning þjóðarinnar allrar. Hættum að leggja íslenskan landbúnað í einelti og sýnum honum þann sóma sem honum ber. Við verðum öll ríkari fyrir vikið.

Grímur Atlason @ 28. ágúst, 2008


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og einum? Svar: