Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: ágúst, 2008.

Færslur

17 ár

Grímur Atlason @ 31. ágúst, 2008 # Ummæli (2)

VG var með flokksráðsfund um helgina. Ég deili skoðunum með VG þegar kemur að jöfnunarsjóði og auknum framlögum í sjóðinn. Það er auðvitað með algjörum ólíkindum hvernig ríkisstjórnin þrjóskast við, reyndar sú síðasta líka, að koma á sanngjarnari tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ekki nóg með það gangi illa heldur trassar hið opinbera viðhald bygginga í [...]

Lesa meira

Hin heimska hönd hagræðingarinnar

Grímur Atlason @ 28. ágúst, 2008 # Ummæli (6)

Stór fundur í Dalabúð var haldinn í gær. Sauðfjárbændur boðuðu til fundarins með stuttum fyrirvara en ljóst af fundarsókninni að dæma að ekki var vanþörf á.
Niðurstaða fundarins var skýr. Vextir í þessu landi eru auðvitað út úr öllu korti. Afurðarverð til bænda er í besta falli lélegt en í ljósi fákeppni á matvörumarkaði er lítil [...]

Lesa meira

Við og þið hin

Grímur Atlason @ 26. ágúst, 2008 # Ummæli (3)

Nemakortin í strætó eiga að stuðla að grænum skrefum eða hvað þetta heitir nú í höfuðborginni þessa dagana. Nemar geta þannig komist í skólann sinn með strætó án gjaldtöku. Það er auðvitað hið besta mál. Þetta á þó aðeins við suma – já, sumir eru jafnari en aðrir. Á heimasíðu strætó má finna eftirfarandi um [...]

Lesa meira

Höldum til haga

Grímur Atlason @ 23. ágúst, 2008 # Ummæli (4)

Haustið 2006 var þenslan í hámarki á vissum svæðum. Þáverandi ríkisstjórn brá á það ráð að fresta framkvæmdum sem voru í pípunum til að slá á þessa þenslu. Aðferðin var afleit eins og flestir vita enda bitnaði hún eingöngu á svæðum þar sem enga þenslu var að finna og hafði þannig fátt gott í för [...]

Lesa meira

No more affairs og Travelling light

Grímur Atlason @ 21. ágúst, 2008 # Ummæli (4)

Gleymi aldrei Amagerbio fyrir 10 árum. Fyrst óþekkt band Cornershop sem varð heimsfrægt 3 vikum síðar með sitt one hit wonder.  Síðan komu Tindersticks. Algjörlega frábær hljómsveit og ótrúlega magnaðir „live“ – eru enn á topp 5 lista mínum yfir bestu tónleikana sem ég hef sótt en þess ber að geta að ég hef séð ansi marga tónleika um ævina. Innflutningur [...]

Lesa meira

Rökleysa!

Grímur Atlason @ 6. ágúst, 2008 # Ummæli (4)

Í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins bendir fjármálaráðherra á að útsvarstekjur sveitarfélaganna hækkuðu um tæp 17% á árinu 2007. Þess vegna eiga sveitarfélögin ekki að fá hlutdeild í fjármagnstekjuskatti. Þvílík rökleysa! Hlutdeild fjármagnstekjuskattsins í skatttekjum einstaklinga hefur hækkað um rúm 30% á milli ára – það telur að vanda bara í aðra áttina hjá fjármálaráðherra. Sveitarfélögin [...]

Lesa meira

Þensla, samdráttur og þynnka

Grímur Atlason @ 5. ágúst, 2008 # Ummæli (0)

Heyrði í fyrrverandi iðnaðarráðherra í morgun. Hún tjáði sig um ákvörðun umhverfisráðherra um meta sameiginlega umhverfisáhrif vegna framkvæmda tengdum álveri á Bakka.  Nú er það svo að margar skoðanir eru á þessu máli, allt frá því að hér sé um hrun að ræða til þess að þetta hafi engin áhrif á væntanlega framkvæmd. Persónulega get [...]

Lesa meira

Fjármagnstekjur og útsvar

Grímur Atlason @ 4. ágúst, 2008 # Ummæli (2)

Heyrði í Halldóri Halldórssyni í hádegisfréttum. Hann segir sveitarfélögin enn gera kröfu um hlutdeild í fjármagnstekjuskattinum. Það er gott. Halldór á fund með fjármálaráðherra á miðvikudaginn. Ég hvet hann til dáða – rök ríkisins halda ekki. Það eru haldlítil rök að segja að sveitarfélögin fái nú þegar hlut í fjármagnstekjuskattinum í gegnum jöfnunarsjóð.
Fjármagnstekjuskattur
Nú er álagning ársins [...]

Lesa meira