Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: júlí, 2008.

Færslur

Sveitarfélögin þurfa að berjast

Grímur Atlason @ 31. júlí, 2008 # Ummæli (0)

Var að lesa frétt um auðmenn á suðurlandi sem flutt hafa lögheimili í sveitina og hafið frístundabúskap. Sveitarstjórinn í Rangárþingi fagnar enda er jákvætt að fá útsvarið og uppbygginguna. Hindrar þó nýliðun í bændastétt og nær ógjörningur að hefja búskap. Það er margt í þessu máli – sumt ágætt en annað síðra. Hins vegar má [...]

Lesa meira

You were right

Grímur Atlason @ 28. júlí, 2008 # Ummæli (3)

Dásamlegt lag með Badly Drawn Boy. Merkilega illa sóttir tónleikar þegar hann mætti hingað ásamt Elbow, Echo and the Bunnymen og Andy Rourke. Textinn er snilld.
Smá sýnishorn og auðvitað myndband.
And I
Just had a dream the other night
I was married to the Queen
And Madonna lived next door
I think she took a shine to me
And the kids [...]

Lesa meira

Þenslan og kuldinn

Grímur Atlason @ 24. júlí, 2008 # Ummæli (4)

Þenslan á höfuðborgarsvæðinu er í rénum. Man þegar þenslan á höfuðborgarsvæðinu, og reyndar völdum virkjanasvæðum líka, var í sem mestum blóma. Þá var ákveðið að slá á þensluna með svokölluðum huglægum aðgerðum. Ríkið frestaði framkvæmdum. Því miður voru einu framkvæmdirnar sem ríkið gat frestað á þeim tíma vegagerð á Vestfjörðum. Á svæði sem hafði ekki [...]

Lesa meira

Kaffihúsahugsuðir og atvinnunáttúruverndarsinnar!

Grímur Atlason @ 22. júlí, 2008 # Ummæli (4)

Það skortir sjaldnast upphrópanirnar þegar kemur að því að dæma fólk sem hefur skoðanir sem ekki falla að skoðunum annarra (líklega er ég þar engin undantekning). Það sem er hins vegar broslegast er þegar menn vegna eftirágefinna forsenda geta ekki og mega ekki hafa skoðun á einhverju tilteknu málefni. Þannig fékk ég einu sinni á [...]

Lesa meira

Náttúruvernd er kjarabarátta

Grímur Atlason @ 21. júlí, 2008 # Ummæli (5)

Jæja, núna er Bubbi búinn að skjóta á Björk og Björk er búin að svara Bubba. Bubbi ku vera talsmaður verkafólks á meðan Björk og Sigur Rós standa með náttúru landsins og engu öðru. Egill Helgason tekur sér stöðu á móti óskabarninu og krúttunum svona til að æsa leika enn meira. Egill hefur t.d. fyrir [...]

Lesa meira

Tekjustofnar – skipting útsvars

Grímur Atlason @ 17. júlí, 2008 # Ummæli (0)

Nú styttist í að álagningarskrá fyrir árið 2007 verði gerð opinber. Í fyrra varð talsvert fár í fjármálaráðuneytinu og víðar vegna umræðu um fjármagnstekjuskatt og hlutdeild sveitarfélaga í honum. Ráðherra og hans fólk kepptust við að halda því fram að það væri beinlínis rangt að sveitarfélögin fengju hlutdeild í þessum skatti – umfram það sem [...]

Lesa meira

Verðbólginn

Grímur Atlason @ 13. júlí, 2008 # Ummæli (1)

Verðbólga og gengislækkun eru lykilhugtök í einu og öllu þessa dagana. Fréttatímar eru fullir af fréttum af þeim systrum. Alvarleg er staðan og kemur okkur auðvitað öllum við. Greiningardeildir meta og greina ástandið og gefa okkur síðan skýrslur annan hvern dag og öllum er ljóst að ástandið er slæmt.
Pokarnir sem bornir eru heim úr Hagkaup [...]

Lesa meira

Putti á púls

Grímur Atlason @ 9. júlí, 2008 # Ummæli (1)

Gunnar Lárus greinir oft ástandið nokkuð svona „beisik“ og skvettir kjarnanum framan í andlitið á manni. Hann tekur þannig stöðu margra heimila í landinu ágætlega saman í eftirfarandi setningu. (Í aðdraganda hennar er hann að velta fyrir sér hjóli og ekki hjóli og hvort hann eigi að kaupa dýrt eða ekki dýrt hjól):
Frábært hjól er [...]

Lesa meira

Sól

Grímur Atlason @ 9. júlí, 2008 # Ummæli (0)

Sól og sumar var í Danmörku og góð tónlist. The Streets aka Mike Skinner kom mér mest á óvart. Hef fyglst með honum úr fjarlægð og lengi talið hann vera efnilegan. Hann mætti á stóra appelsínugula sviðið kl. 1 á föstudagskvöldið og hefði svo vel getað tapað baráttunni. En drengurinn tók 50.000 festivalgesti á flug [...]

Lesa meira

Dalir

Grímur Atlason @ 1. júlí, 2008 # Ummæli (5)

Jæja, það var stutt leikhléið að þessu sinni. Fer aftur í hringiðuna fljótlega eftir Roskilde. Dalirnir eiga sérstakan sess í mínum huga enda má segja að ég hafi byrjað mitt annað líf þar rétt orðinn tvítugur. Að ganga á Gölt með djöfulinn á bakinu og skilja’nn þar eftir hefur æ síðan verið undirliggjandi mottó í [...]

Lesa meira