Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: maí, 2008.

Færslur

Menning og gleði!

Grímur Atlason @ 30. maí, 2008 # Ummæli (1)

Menningin er alltaf dásamleg. Tvennt gott í dag. Fyrst ber að nefna plötuútgáfu. Grjóthrun í Hólshreppi með skífuna Grjóthrun, þar sem meðal annars má heyra smellinn Grjóthrun. Afurðin er stórgóð og  er komin í verslanir. Þar má einnig finna lagið Jónas en lag og texti eru eftir undirritaðan og var hvoru tveggja samið þegar ég [...]

Lesa meira

LÍÚ-grátkórinn

Grímur Atlason @ 29. maí, 2008 # Ummæli (3)

Frétt af RÚV:
Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir viðbrögð sín við biðleik ríkisstjórnarinnar vegna álits mannréttindanefndarinnar vera blendin. Hann segir ekki geta gengið upp að umbylta fiskveiðistjórnkerfinu og bendir á að einungis rúm 12% upphaflegs kvóta sé enn í höndum þeirra sem fengu honum úthlutað 1984.
Spurning hvernig prómilin koma út þegar samsetning sjávarbyggðanna [...]

Lesa meira

27 ár

Grímur Atlason @ 29. maí, 2008 # Ummæli (2)

Las þetta á mbl.is:
Skoski kvintettinn Simple Minds, sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum með lögum á borð við Alive and Kicking, hefur nú komið saman á ný í fyrsta sinn í 27 ár. Hafa meðlimir hljómsveitarinnar, þeir Brian McGee, Derek Forbes, Mick MacNeill, Jim Kerr og Charlie Burchill, hafa grafið stríðsöxina og ætla nú [...]

Lesa meira

Hið nauðsynlega aðhald

Grímur Atlason @ 27. maí, 2008 # Ummæli (0)

Það er ekkert hneyksli að fréttastofa Stöðvar 2 skuli minna á kosningarloforð stjórnmálamanna. Það er hneyskli þegar fréttastofur gera það ekki. Það er heldur ekki hneyksli að Staksteinn Gunnarsson og Leiðari Gunnarsson hafi gosið með reglulegu millibili í Morgunblaðinu sl. ár. Það þarf að að veita ríkisstjórnum og stjórnmálamönnum verulegt aðhald á Íslandi – og [...]

Lesa meira

Akurnesingar stóðu í lappirnar

Grímur Atlason @ 27. maí, 2008 # Ummæli (7)

Komst ekki á Dylan í gær – hef það eftir  traustum heimildum að hann hafi verið góður. Hefði líka viljað vera á fundi á Akranesi í gær.
Akurnesingar virðast ekki vera eins ánægðir með málflutning frjálslynda mannsins og hann sjálfur taldi. Undirskriftasöfnunin fer vonandi út um þúfur hjá honum og hans félögum. Ánægjulegt að sjá hvað [...]

Lesa meira

Inná með Þorvald!

Grímur Atlason @ 24. maí, 2008 # Ummæli (1)

Já, inná með Þorvald Gylfason! Það er með ólíkindum að á Íslandi skuli enn vera Seðlabankastjóri sem er afleiðing pólitískra hrossakaupa stjórnmálaflokka. Mat hans á efnahagsástandinu á Íslandi er dead on – og að Davíð skuli halda því fram að menn eins og Þorvaldur rísi fyrst upp núna er auðvitað móðgun. Hvað var annars Þorvaldur [...]

Lesa meira

Bjartsýni í Bolungarvík og hræðslan við hið útlenda

Grímur Atlason @ 23. maí, 2008 # Ummæli (4)

Soffía Vagnsdóttir er skemmtileg kona. Hún er alltaf með hugann við byggðalagið sitt og landsbyggðina líka. Hún er sannur jafnaðarmaður eins og allur hennar pólitíski ferill hefur sýnt. Það er gaman í Bolungarvík þegar Soffía er í essinu sínu. Þannig var það þann tíma sem ég starfaði með bæjarstjórninni í Bolungarvík og það virðist halda [...]

Lesa meira

De vise mænd

Grímur Atlason @ 20. maí, 2008 # Ummæli (2)

Spútnikmenntamálaráðherrann: Það er nauðsynlegt að fá fólk úr atvinnulífinu í háskólaráð. Það er nefnilega það. Það er merkilegt hvað snobbið fyrir ákveðnu atvinnulífi er sterkt þessi misserin. Það er enginn maður með mönnum nema hann sé viðskiptafursti sem endurfjármagnar sig á hverju ári. Síðan verða pólitíkusar galnir og telja að þetta sé mannskapurinn sem verði [...]

Lesa meira

Við eigum ekki samleið

Grímur Atlason @ 19. maí, 2008 # Ummæli (13)

Á heimasíðu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar er færsla sem heitir Undarlegt Silfur. Þar má meðal annars lesa að það breyti miklu að tilvonandi Akurnesingar komi frá flóttamannabúðum í Írak og séu því ekki Palestínumenn. Það skiptir skyndilega miklu máli að þeir séu ekki hreinræktaðir Palestínumenn – þ.e. fæddust í Palestínu. Merkilegt að hlusta á fólk afneita [...]

Lesa meira

Peningamálastefna

Grímur Atlason @ 17. maí, 2008 # Ummæli (1)

Slúðrið í bænum segir margt. Eina sögu hef ég heyrt úr tveimur áttum í vikunni. Samningur Seðlabankans við kollega sína á Norðurlöndum ku hafa legið fyrir í nokkra daga áður en tilkynning um slíkt var opinberuð. Þetta var gert til þess að útvaldir gætu grætt aðeins meira á slöku gengi íslensku krónunnar. Innflytjendur sem voru [...]

Lesa meira