Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: apríl, 2008.

Færslur

Elementin tvö

Grímur Atlason @ 28. apríl, 2008 # Ummæli (3)

Var kominn úr brók og upp í rúm þegar Grjótið mætti. Ég er svona meira Hrun. Klæddi mig aftur í og kveikti á rauða lampanum. Fram voru dregnir gítar og bassi og rennt í nokkur lög – auk þess að málin voru krufin með þeim hætti sem þessi tvö element geta gert. Grjótið fékk malt. [...]

Lesa meira

Að leita eftir skýringum

Grímur Atlason @ 26. apríl, 2008 # Ummæli (4)

Oddviti a-lista í Bolungarvík hefur tekið upp á þeim sið upp á síðkastið að hagræða svona heldur staðreyndum, afleitum málstað sínum til hagsbóta. Þann 27. mars sl. var fundur í bæjarstjórn Bolungarvíkur. Þar var m.a. samþykkt að taka 100 m.kr. framkvæmdalán til þess að fjármagna byggingu félagsheimilis. Fór mjög fyrir brjóstið á oddvitanum að bæjarfulltrúi [...]

Lesa meira

Grjóthrun í Hólshreppi

Grímur Atlason @ 23. apríl, 2008 # Ummæli (5)

GRJÓTHRUN
Engan skyldi undra þótt
Engan skyldi undra þótt
Engan skyldi undra raskat* þótt
að grjóthrun verði í Hólshreppi í nótt
ENGAN SKYLDI UNDRA ÞÓTT….
    
Heimalningi er ekki rótt
Heimalningi er ekki rótt
Heimalningi er ekki raskat rótt
að sofa undir hnullungi í nótt
HEIMALNINGI ER EKKI RÓTT….
* Svona skal það ritað

Lesa meira

Að hjakka í því sama

Grímur Atlason @ 21. apríl, 2008 # Ummæli (1)

Fyrir einu ári var gerður stjórnarsáttmáli núverandi ríkisstjórnar. Þar var ákveðið að pæla ekki í Evrópu á kjörtímabilinu. Þetta fór í taugarnar á mér og þótti mér Samfylkingin heldur krjúpa fyrir Sjálfstæðisflokknum. Hins vegar er ekki hægt að þagga niður Evrópuumræðu í þjóðfélaginu með stjórnarsáttmála og því hefur málið verið á dagskrá þrátt fyrir plebbaisma [...]

Lesa meira

Grímulaust andlit frjálshyggjunnar

Grímur Atlason @ 19. apríl, 2008 # Ummæli (1)

REI – tja hvað á maður að segja um REI? Höfuðborginni er ekki stjórnað í dag. Það virðast vera 3-4 skoðanir á þessu máli innan meirihlutans og síðan sýn minnihlutans í málinu.
Það verður að segjast eins og er að veitumál og verðmæti tengd þeim eru óþægilega mikið í söludeiglunni. Bankarnir voru seldir, pósturinn var seldur, [...]

Lesa meira

Starf í boði

Grímur Atlason @ 18. apríl, 2008 # Ummæli (0)

Sumir þurfa ekki að örvænta. Það er nefnilega starf í boði!
Forstjóri Varnarmálastofnunar skal hafa lokið háskólaprófi og hafa þekkingu á verksviði stofnunarinnar…Við val á forstjóra verður litið til reynslu af mannaforráðum, stjórnun og rekstri, leiðtogahæfileika, hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku a.m.k., hæfni til upplýsingamiðlunar, samskiptahæfni, frumkvæðis og [...]

Lesa meira

Rauðavatnssprungan

Grímur Atlason @ 17. apríl, 2008 # Ummæli (1)

Það er ekkert smá sem má lesa í leiðara Morgunblaðsins í dag:
“ótrúlegt stefnuleysi og dómgreindarleysi þeirra, sem þarna ráða ferðinni.” “Aldrei í sögu ….flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur hefur flokkurinn beðið slíkan hnekki og sýnt af sér slíka lágkúru…
Það er orðið alveg ljóst, að borgarstjórnarflokkurinn ræður ekki við þau verkefni, sem honum hafa verið falin að [...]

Lesa meira

Lifi Flateyri!

Grímur Atlason @ 16. apríl, 2008 # Ummæli (0)

Flateyri er góður staður þar sem margir af skemmtilegri Vestfirðingum sem ég hef hitt eiga heima. Innviðina þarf að styrkja og hugmyndafræðin um einn byggðakjarna/kjarnahugsun hefur bitnað illilega á plássinu. Vonandi mun Innheimtustofnun sveitarfélaga vaxa og dafna á Flateyri og helst að öll stofnunin verði flutt þangað vestur. Til þess að það megi takast sem [...]

Lesa meira

Best

Grímur Atlason @ 15. apríl, 2008 # Ummæli (0)

Hef heyrt því fleygt að Þursarnir mæti til leiks hingað vestur í maí. Það eru góðar fréttir. Líklega albesta hljómsveit sem Ísland hefur framleitt. Ég hef verið að fara yfir þetta í huganum og þetta er niðurstaðan. Fyrst eru það hljómsveitir og síðan lög – þó aðeins eitt per flytjanda:
1. Hinn íslenski Þursaflokkur (alltaf í sérflokki)
2. S.H. [...]

Lesa meira

Pestin

Grímur Atlason @ 14. apríl, 2008 # Ummæli (7)

Það er sól í heiði hér vestra í dag. Verkefni landsbyggðarinnar eru mér þó engu minna hugleikin í sólinni. Eftir síðustu hreyfingar nefnda og starfshópa er ég enn sannfærðari en ella að ein mesta hindrunin fyrir framþróun landsbyggðarinnar er núverandi kjördæmaskipan. Hreppshollustan blindar skynsemina. Heimóttarskapurinn og frændhyglin eru landlægar pestir sem verður að uppræta. Góðar hugmyndir og [...]

Lesa meira