Samtalen fremmer forståelsen
Grímur Atlason @ 29. febrúar, 2008 # Ummæli (0)
Athyglisvert að sjá hvað mogginn er lifandi í Evrópuumræðunni – en þó aðeins með sína einu sönnu hlið og einu réttu skoðun. Formaður Samfylkingarinnar er ekki með þessa einu réttu skoðun samkvæmt mogganum og því hefur formaðurinn verið skammaður án afláts undanfarna daga af maður skyldi ætla ritstjóra blaðsins. Nú síðast er Ingibjörg Sólrún skömmuð fyrir að standa [...]
Lesa meira
Að bregðast við
Grímur Atlason @ 27. febrúar, 2008 # Ummæli (1)
Ætla að leiðrétta mig. Byggðakvóti hefur aldrei verið tekinn af einum né neinum. Í upphafi hélt ríkið eftir ákveðnum hluta kvótans sem hefur síðan farið yfir til sjávarútvegsráðherra. Ráðherra hefur m.a. útdeilt úr þessum potti sárabótum vegna rækju- og skelfiskbrests. Þannig að þus um að útgerðarmenn verði fyrir skerðingu vegna byggðakvóta er fjarri sanni. Kvótinn [...]
Lesa meira
Grá hár og Hayseed Dixie
Grímur Atlason @ 24. febrúar, 2008 # Ummæli (3)
Sit og horfi á garðinn við Hressingarskálann. Skemmtilegt kaffihús í Eymundsson og fallegt að sjá gömlu trén og rifja um stundir í þessum garði fyrir u.þ.b. 20 árum eða svo. Margt var þar brallað og á sumu hvílir jafnvel upplýsingaleynd. Var sminkaður áðan og tvær ónefndar konur dáðust að gráu hárunum mínum. 20 ár og [...]
Lesa meira
Brotlending
Grímur Atlason @ 21. febrúar, 2008 # Ummæli (0)
Landsbankinn spáir því að stýrivextir verði lækkaðir á næstu mánuðum. Það er gott fyrir venjulega borgara þessa lands og ekki síst íbúa á kaldari hagsvæðum þessa lands. Einu blikurnar á lofti eru í Helguvík. Fari þær framkvæmdir af stað bitnar það á stýrivöxtunum. Fjármálaráðherra er allur hinn hressasti með Helguvíkina enda í hans kjördæmi og [...]
Lesa meira
Gott hjá þér Ingibjörg Sólrún!
Grímur Atlason @ 19. febrúar, 2008 # Ummæli (3)
Það er ansi magnað að það skuli vera utanríkisráðherra sem kemur fram með gáfulegustu hugmyndina sem fram hefur komið um kvótakerfið lengi. Reyndar er hugmyndin ekki ný – en hún hefur ekki komið fram hjá ráðherra áður.
Að bjóða upp byggðakvótann og að sjávarbyggðirnar fái andvirðið er einmitt það sem Bolungarvíkurkaupstaður lagði til í bréfi til [...]
Lesa meira
Þarf að segja meira?
Grímur Atlason @ 16. febrúar, 2008 # Ummæli (5)
Á mbl mátti lesa eftirfarandi frétt í gær:
Tveir starfsmenn verða ráðnir tímabundið til starfa á Héraðsskjalasafninu á Egilsstöðum á næstu dögum, en ráðningarnar eru liður í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kvótaskerðingar í þorski.
Þarf að segja meira?
Lesa meira
Brennsla
Grímur Atlason @ 14. febrúar, 2008 # Ummæli (1)
Fjármálaráðherra fagnar fyrirhuguðu álveri í Helguvík. Sami ráðherra tók sig til og útdeildi milljarði í svokallaðar mótvægisaðgerðir algjörlega á skjön við alla skynsemi og ráð sem honum voru veitt úr fjölmörgum áttum.
Þeir sem borga vextina eru ekki eins kátir. Hvernig stendur á því að glórulaust þenslurugl á 100 km2 svæði heldur áfram með góðfúslegu leyfi [...]
Lesa meira
Byggðastefna – við Austurvöll og í dreifbýli
Grímur Atlason @ 13. febrúar, 2008 # Ummæli (1)
Svo lengi sem elstu menn muna hefur landsbyggðinni verið stillt upp gegn höfuðborgarsvæðinu og öfugt: Þorskur, malarvegir, flugvellir, jarðgöng, hafnir, flutningabílar, opinberir starfsmenn, gömul hús, ný hús, stjórnvöld, lambakjöt, lax, minkur, refur, fjöll, jarðhiti, fossar, ál og nú síðast olía – hafa verið uppspretta núnings innan landamæra Íslands. Alþingismenn hafa barist fyrir sínum kjördæmum með [...]
Lesa meira
Clapton
Grímur Atlason @ 11. febrúar, 2008 # Ummæli (5)
Ég mæli auðvitað með Clapton í ágúst. Nánar tiltekið þann 8. ágúst nk. Hugsa að margir séu mér sammála að þar fari mikill meistari. Ég hef átt mörg tímabil og lög sem hafa verið í uppáhaldi í tengslum við þessa gítarhetju. Í dag er Badge í algjöru uppáhaldi – hefur reyndar verið það eftir að [...]
Lesa meira
Akkeri
Grímur Atlason @ 9. febrúar, 2008 # Ummæli (1)
Ég er enn nokkuð hissa á því að Jón Kalmann skuli ekki hafa fengið “Hin íslensku bókmenntaverðlaun” fyrir skáldsögu sína Himnaríki og helvíti. Gríðarlega góð bók sem situr í mér og hefur gerjast innra með mér frá því ég las hana. Sigurður Pálsson hlýtur að vera algjört meistaraverk fyrst hún toppar Kalmann. Ég sigldi frá [...]
Lesa meira