Í fókus
Grímur Atlason @ 30. janúar, 2008 # Ummæli (1)
Þær gerast háværari raddirnar um að mótvægisaðgerðir í tengslum við kvótaniðurskurðinn hafi verið illa ígrundaðar. Sjávarútvegsráðherra sagði í fréttum um helgina að þær yrðu skoðaðar í ljósi síðustu atburða og byggðamálaráðherra bætti um betur og sagði að það hefði aldrei verið meiningin að upplýsa allt fyrr en landslagið væri ljósara. Ég fagna þessum yfirlýsingum ráðherranna [...]
Lesa meira
Stóri bróðir
Grímur Atlason @ 28. janúar, 2008 # Ummæli (3)
Kjartan Magnússon: Við höfum fengið alveg nákvæmar fréttir hvað þarna átti sér stað. Sagt um mótmæli á pöllum borgarstjórnar.
Þetta er orðalag ráðandi stétta. Þetta er orðalag þeirra sem valdið hafa og kunna ekkert annað. Njósnaaðgerðir, þar sem útsendarar valdsins eru á staðnum og skoða myndskeið eftir á þar sem andlit eru rannsökuð og eignfærð, eru [...]
Lesa meira
Ný stjarna í pólitíkinni?
Grímur Atlason @ 27. janúar, 2008 # Ummæli (3)
Mér sýnist Gunnar Lárus vera að breytast í stjórnmálamann. Svona átónóm – aktívur mótmælandi. Ég held að hann verði stjörnupólitíkus. Hann gaf út 4 mótmælasöngva – Billy Bragg endurfæddur. Þetta eru ansi beitt lög: Að gefnu tilefni.
Lesa meira
Skríllinn
Grímur Atlason @ 25. janúar, 2008 # Ummæli (7)
Í Frakklandi þykir það ekkert tiltökumál þegar 10 þúsund bændur koma og sturta kúaskít við innganginn á þinghúsinu í París. Það er talinn réttur þeirra og mótmælendur láta iðulega vel finna fyrir sér þar í landi. Á Íslandi fá borgararnir sjaldan nóg en nær undantekningalaust þegar það gerist tekur ákveðinn hópur sig til og gerir [...]
Lesa meira
Kerfið og áhrif þess
Grímur Atlason @ 24. janúar, 2008 # Ummæli (0)
Ég hef bent á að mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna niðurskurðar á aflaheimildum í þorski séu fremur þunnt smjörlag á brauðsneið sem er alltof stór. Sumstaðar var ágætis smjörfjall fyrir á meðan aðrir staðir voru skraufþurrir. Því skilaði smjörlagið sér illa til margra þeirra staða sem nú eru þróttlitlir sökum næringarskorts. Bent hefur verið á að dýpt atvinnulífsins á [...]
Lesa meira
Uss – svona gera menn ekki
Grímur Atlason @ 22. janúar, 2008 # Ummæli (3)
Staksteinar segja Björn Inga hafa svikið Villa, Ólaf F. hafa svikið Dag…Og andstæðingar Dags innan Samfylkingarinnar munu áreiðanlega nota það gegn honum. Styrmir gleymdi að minnast á það að Villi hafi svikið Ólaf F. og það hlýtur bara að gera andstæðinga Dags innan Samfylkingarinnar enn æstari.
Langsóttari ástandsanalýsu hef ég vart lesið hjá ritstjóranum. Dæmalaust bull. [...]
Lesa meira
Bara ef þetta gerist þá verður allt svo gott
Grímur Atlason @ 20. janúar, 2008 # Ummæli (0)
Unglingurinn ég stóð eitt sinn melankólískur og hugsaði um þá einu réttu. Eins og vildi henda leitaði pilturinn til almættisins eftir úrlausn sinna mála:
Góði guð, bara að hún vilji kyssa mig og eiga – þá verður allt gott.
Ég var bænheyrður og allt lék í lyndi um tveggja vikna skeið eða þar til hún sagði mér [...]
Lesa meira
Grá hár og Orbital
Grímur Atlason @ 18. janúar, 2008 # Ummæli (2)
Ég er að uppgötva nýja tónlist þessa dagana. Hef lengi verið poppari og pönkari og jafnvel talið mig vel lesinn á stundum þegar kemur að tónlist. En auðvitað er það bara eins og hvert annað píp að halda slíku fram – ég hef ekki hlustað á nema brot af þeirri góðu tónlist sem er í [...]
Lesa meira
Gunnar Lárus Hjálmarsson
Grímur Atlason @ 17. janúar, 2008 # Ummæli (2)
Ég get ekki annað en birt færslu Gunna frá því í gær. Mér þykir hún hressandi og nokkuð kjarnyrt:
Ég segi það sem almenningur í landinu að það eru embættisfærslur Árna Mathiesen sem hafa veikt tiltrú mína á dómstólum, ekki nöldrið í Pétri Kr. Hafstein. Skandall! Út af með þetta lið! Það held ég nú að [...]
Lesa meira
Af fjöllum
Grímur Atlason @ 17. janúar, 2008 # Ummæli (1)
Þá höfum við það. Nefndin sem fjallar um hæfi þeirra sem langa til að verða dómarar hefur rýrt traust almennings á dómstólum landsins – eða svo segir fjármálaráðherra. Þabbara svona. Mér finnst satt að segja að síðasta vikan fyrir jól hafi verið nokkuð óheppileg hjá Árna Mathiesen fjármálaráðherra. Hann kaus að ganga gegn mætri nefnd [...]
Lesa meira