Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: október, 2007.

Færslur

Lúsugi bæjarstjórinn

Grímur Atlason @ 31. október, 2007 # Ummæli (6)

Ég er miður mín. Lúsin kom og fékk að grassera í höfði Ástu Júlíu svo dögum skipti – eða þangað til að mér þótti hún klóra sér fullmikið í gær. Þá tók ég loks kambinn upp og sjá það voru tugir kvikinda í hárinu. Sjálfur fann ég þrjár á mínum haus. Já, hann er lúsugur [...]

Lesa meira

Akron/Family

Grímur Atlason @ 28. október, 2007 # Ummæli (1)

Það er ekki bara Kim Larsen og Kjukken sem er í boði Austursins þetta haustið – Akron/Family kemur á Organ í þann 7. desember. Þetta er eitt af þessum almögnuðu böndum sem eru á ferðinni þessa misserin – frábært band. Á tónleikum þykir bandið með ólíkindum. Hjaltalín hitar upp en þau fengu einmitt gríðarlega góða dóma [...]

Lesa meira

Kveðja

Grímur Atlason @ 25. október, 2007 # Ummæli (0)

Var hugsað til þess þegar ég heyrði Blús í G með Magnúsi Eiríkssyni í gær að Einar Benediktsson hefði eitt sinn samið slíkan blús. Hann fór á góðan “túr” sumarið 1903 og endaði suður í Róm. Það var ekki þannig að menn gætu á þessum árum hoppað upp í næstu flugvél þegar leiðrétta átti bömmerinn. [...]

Lesa meira

Samfélag eða allir í sínu horni

Grímur Atlason @ 23. október, 2007 # Ummæli (7)

Af hverju er það afleitt að sveitarfélög sem hafa efni á að borga starfsmönnum sínum góð laun geri það? Kópavogur skilaði rúmum fjórum milljörðum í rekstrarafgang á síðasta ári. Má Kópavogur ekki nota hluta af þessum peningum til að hækka laun kennara í Kópavogi af því að Bolungarvík hefur ekki efni á að hækka laun [...]

Lesa meira

Laun

Grímur Atlason @ 21. október, 2007 # Ummæli (7)

Skattar landsbyggðarinnar hafa um langt árabil runnið í sameiginlega sjóði sem er ekkert athugavert við. Hins vegar er það athugavert að  peningarnir hafi ekki komið til baka og nýtast því ekki til uppbyggingar þar sem þeirra er þörf. Umönnunarstéttir út um allt land eiga að fá leiðréttingu og það strax. Það er hins vegar afleitt [...]

Lesa meira

Bónus og samskipti

Grímur Atlason @ 18. október, 2007 # Ummæli (7)

Reykjavíkurborg ætlar sér að laða fólk til starfa með 800 milljón króna aukaframlagi til svokallaðra ummönnunarstétta á þessu og næsta ári. Það er gott að verðlauna eigi fólk sem hefur hvað lægst launin en bera hvað þyngsta bagga. Hins vegar er óskiljanlegt að við skulum yfir höfuð vera í þessari stöðu. Það er almennt viðurkennt [...]

Lesa meira

Höllin

Grímur Atlason @ 15. október, 2007 # Ummæli (0)

Megas í Laugardalshöllinni á laugardaginn var eins og Megas þetta árið – frábær! Megas er reyndar nær undantekningalaust góður og það jaðrar við þráhyggju hvað mér þykir hann skemmtilegur. Ég var í Laugardalshöllinni haustið 1983 - þá kröfðumst við framtíðar og Megas kom fram með Íkarus sem var í miklu uppáhaldi hjá mér. Megas kom þarna [...]

Lesa meira

Hver er Trotskí og hver er Stalín?

Grímur Atlason @ 14. október, 2007 # Ummæli (1)

Það er með ólíkindum hve stjórn Reykjavíkur fer í taugarnar á formönnum og framámönnum í Sjálfstæðisflokknum. Allan tímann sem Davíð Oddsson var í stjórnarráðinu og formaður Sjálfstæðisflokksins fengu borgarbúar og landsmenn allir af því að vita hve mikið glapræði þessi R-listi væri. Endalaust japl, jaml og fuður svo að löngu var komið út yfir mörk [...]

Lesa meira

Brussel

Grímur Atlason @ 9. október, 2007 # Ummæli (2)

Brussel er fín. Auðvitað engin París en fín samt. Áhugaverðir fyrirlestrar og minna áhugaverðir fyrirlestrar – þannig er lífið. Síðan eru það auðvitað hafnirnar. Gijon höfn greiddi sjálf 80 milljónir evra í verkefni sem kostaði rúmlega 500 evrur. Gijon er engin smá höfn – ég held að það sé nokkuð ljóst að hafnarlögin á Íslandi eru [...]

Lesa meira

Kiljan

Grímur Atlason @ 4. október, 2007 # Ummæli (1)

Kiljan var góð í gær. Var svo sem ekkert að hlusta um of á Egil, Kolbrúnu og Pál Baldvin þegar þau tóku nettan snúning á eigin visku. Viðtal Egils við Einar Má Jónsson gerði þáttinn frábæran. Þegar hann tók fyrir frjálshyggjudýrkunina var eins og það slaknaði á mér. Það er eins og það megi ekki [...]

Lesa meira