Darfur
Óflokkað | Ummæli (4) Facebook
Merkilegt að hugsa til þess hvers vegna Halldór og Davíð ásamt þorra stjórnmálamanna í hinum vestræna heim ruku til og ákváðu að bjarga þjáðum Írökum. Eitthvað hefur björgunin dregist á langinn og menn heyra ekki einu sinni lengur rök eins og: „viljið þið Saddam aftur?”, því svarið er ekki lengur skilyrðislaust nei. Það sjá það allir hvað þessi bjargráð alheimslöggunnar eru tvíbent.
Írak var vissulega í vondum höndum. En hafi Írak verið í vondum málum – hvað þá með Súdan og Darfur? Þar er hin raunverulegi hryllingur og mest aðkallandi verkefni alheimslögreglunnar. Ég skora á alla að lesa grein Miu Farrow í The Independent sem birtist á morgun. Þar segir hún frá hryllingnum sem fólkið í Darfur hefur mátt þola á meðan vesturveldin líta undan. Af hverju erum við ekki fyrir löngu farin af stað?
Það er gott fyrir kröfuharðan lúxusíbúa eins og sjálfan mig að hugsa áður en ég kvarta næst yfir einhverju hjómi sem engu skiptir.
Grímur Atlason @ 26. ágúst, 2007
Grímur Atlason
já.. eins og 365.. t.d.
Já, svo sannarlega. Enda er því öllu sagt upp þegjandi og hljóðalaust.
Hvernig er tað hefur þú ekkert annað að gera en að blogga, er bæjarstjóru starfið bara hobby hjá tér spyr eg og fleiru.
Greinilega ekkert að gera hjá stráknum þarna fyrir vestan.