Darfur
Grímur Atlason @ 26. ágúst, 2007 # Ummæli (4)
Merkilegt að hugsa til þess hvers vegna Halldór og Davíð ásamt þorra stjórnmálamanna í hinum vestræna heim ruku til og ákváðu að bjarga þjáðum Írökum. Eitthvað hefur björgunin dregist á langinn og menn heyra ekki einu sinni lengur rök eins og: „viljið þið Saddam aftur?”, því svarið er ekki lengur skilyrðislaust nei. Það sjá það [...]
Lesa meira
Sérstaða
Grímur Atlason @ 26. ágúst, 2007 # Ummæli (0)
Björn Ingi Hrafnsson er ötull notandi nýmóðins söguskoðunar – þar sem heilu áratugirnir eru strokaðir út og nýliðnir mánuðir gerðir að langri sögu. Á bloggsíðu Björns Inga má finna eftirfarandi um Evrópusambandið:
Samfylkingin þorir ekki að segja eitt einasta orð um málið af ótta við samstarfsflokkinn í ríkisstjórn. Flokkurinn sem ætlaði að ganga inn í [...]
Lesa meira
Veiðigjald
Grímur Atlason @ 25. ágúst, 2007 # Ummæli (0)
Ekki veit ég hvernig stendur á því að veiðigjald verður aðeins fellt niður af þorski en ekki af öðrum tegundum á meðan sjávarútvegurinn gengur í gegnum boðaðar þrengingar. Auðvitað er hér um auðlindaskatt að ræða og í prinsippinu er ég á móti því að veita einhvern afslátt af þessum skatti. Hins vegar hefur ákvörðun sjávarútvegsráðherra [...]
Lesa meira
Austur-Grænland
Grímur Atlason @ 23. ágúst, 2007 # Ummæli (1)
Ég verð að taka undir þau sjónarmið að það sé gáfulegt að veita nú þegar fjármagni til rannsókna á þorski við Austur-Grænland. Þetta er mál sem getur skipt sjávarbyggðirnar gríðarlega miklu máli – og auðvitað þjóðarbúið í heild sinni.
Lesa meira
Hegrar og utanríkismál
Grímur Atlason @ 17. ágúst, 2007 # Ummæli (1)
Alltaf gaman þegar innvígðir frjálshyggjuhegrar taka sig til og skrifa móralskar athugasemdir við meint óvönduð vinnubrögð þeirra sem tilheyra ekki hinni innmúruðu klíku. Andrés Magnússon einn þessara hegra sem starfar við það að leiðrétta ranghugmyndir villuráfandi sauða. Andrés tekur Ingibjörgu Sólrúnu fyrir í Viðskiptablaðinu í gær: vegna svars hennar við Staksteinahrauni í Mogganum á þriðjudaginn: [...]
Lesa meira
Að gefnu tilefni
Grímur Atlason @ 15. ágúst, 2007 # Ummæli (0)
Að gefnu tilefni vil ég leiðrétta þann misskilning að greiðendur fjármagnstekjuskatts í Bolungarvík greiði ekkert útsvar til sveitarfélagsins. Þeir greiða að sjálfsögðu umtalsvert útsvar af þeim tekjum sínum sem eru útsvarsskildar. Þessir einstaklingar eru hvorki skattsvikarar né baggi á sveitarfélaginu frekar en aðrir íbúar þess. Þvert á móti eru hér eru á ferðinni einstaklingar sem [...]
Lesa meira
Dönsk býfluga
Grímur Atlason @ 12. ágúst, 2007 # Ummæli (1)
Mér þykir Stykkishólmur óvenju fallegur bær. Bæjarstæðið er stórfenglegt og Breiðafjörðurinn magnaður. Ég var því nokkuð hissa þegar ég heyrði þessa auglýsingu í útvarpinu í morgun:Stykkishólmur, den danske bi i Island.
Vissi ekki að Stykkishólmur væri danska býflugan á Íslandi. Ætli vinkona mín Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri viti að hún á heima í danskri býflugu?
Lesa meira
Egó
Grímur Atlason @ 11. ágúst, 2007 # Ummæli (0)
Keypti mér disk með Egó á fimmtudaginn. 25 ára afmælisútgáfu af Breyttum tímum. Hlustaði á hana 3svar á leiðinni frá Borgarnesi til Bolungarvíkur og söng hátt með. Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar Þorleifur mætti í partýið heim til mín og kenndi mér bassalínuna í Day Tripper með Bítlunum á [...]
Lesa meira
Kató segir
Grímur Atlason @ 10. ágúst, 2007 # Ummæli (0)
Í Vefriti fjármálaráðuneytisins þann 9. ágúst sl. kemur eftirfarandi fram:
Sveitarfélögin hafa ekki farið varhluta af þeim mikla efnahagsuppgangi sem einkennt hefur undanfarin ár hér á landi. Frá árinu 2001 til 2006 uxu álagðar útsvarstekjur um 58,5%.Útsvar á hvern gjaldanda hafði þannig vaxið um 40,7% á þessum fimm árum. Verðlag í landinu hækkaði um 22,7% [...]
Lesa meira
Tekjuvandi ekki eyðsluæði
Grímur Atlason @ 6. ágúst, 2007 # Ummæli (1)
Gott hjá Halldóri Halldórssyni að svara fullyrðingum Péturs Blöndal um meint bruðl sveitarfélaganna í landinu. Það er furðulegt að menn eins og Pétur segi að sveitarfélögin eigi ekki að fá hlutdeild í fjármagnstekjuskattinum – heldur eigi þau að draga saman í rekstri sínum. Þetta segir Pétur á sama tíma og mörg sveitarfélög eru að stækka [...]
Lesa meira