Fáránleiki skattanna
Grímur Atlason @ 31. júlí, 2007 # Ummæli (1)
Á Eyjunni má lesa eftirfarandi í dag:
Af tíu hæstu gjaldendum opinberra gjalda á Vestfjörðum eru sex með lögheimili í Bolungarvík. Reyndar á Bolungarvík fjóra af fimm hæstu skattgreiðenda héraðsins. Enginn hinns sex er þó á lista yfir 10 hæstu útsvarsgreiðendum til sveitarfélaganna á Vestfjörðum. Á þeim lista er aðeins einn Bolvíkingur.
Þetta er vegna þess hve [...]
Lesa meira
Dýrt að fara á tónleika
Grímur Atlason @ 29. júlí, 2007 # Ummæli (0)
Ég held að New York sé mín uppáhaldsborg. Hins vegar ætla ég ekki að kaupa mér miða á The Police í Madison Square Garden þann 31. október nk.
578.
8:00 PM
SEC: Luxury Suite
ROW: 16 seats
$15,000.00 each
Max. Available: 1
| Search by Event | Search by Venue | Venues for this Event |
Lesa meira
Eitthvað annað
Grímur Atlason @ 24. júlí, 2007 # Ummæli (5)
Olíuhreinsunarstöðvar eru fjölmargar í heiminum og við þær starfar fjöldinn allur af fólki. Frá því á 7. og 8. áratugnum hefur öðru hvoru dúkkað upp hugmynd um að reisa eina slíka hér á landi. Nú síðast er hún heimfærð á Vestfirði og er margt gott fólk verulega áhugasamt um að koma upp einni slíkri í [...]
Lesa meira
Bónusvideó og Ingibjörg
Grímur Atlason @ 20. júlí, 2007 # Ummæli (1)
Fór í verslun áðan – Bónusvideó – þar voru 3 ungmenni að störfum. Ein sat á stól og virtist nokkuð tilbúinn að sinna viðskiptavinum en gerði þó ekkert. Tvö stóðu og flissuðu. Hlustuðu á ipod saman og töluðu um uppáhaldslögin. Þetta hefði verið í lagi heima hjá þeim en var ekki alveg að gera sig [...]
Lesa meira
Rita án fata
Grímur Atlason @ 17. júlí, 2007 # Ummæli (1)
Austrið byrjaði sölu á Kim Larsen í dag. Það gekk ljómandi og er helmingur miða farinn. Minn maður Kim er með skemmtilegri Dönum. Reyndar þykir mér vænt um marga Dani enda bjó ég þar í nokkur ár. Gleymi seint dönskukennslu hjá Eddu Snorra fyrir 24 árum þar sem sýnt var myndband frá tónleikum Kim Larsen. [...]
Lesa meira
Hún er ljósblá
Grímur Atlason @ 15. júlí, 2007 # Ummæli (0)
Arnaldur skaust á tjaldstæðið í gær. Hann sá nefnilega þegar við keyrðum inn í Víkina að mannvirki var tekið að rísa við sundlaugina. Auðvitað fara athafnamenn af stað þegar framkvæmdir eru annars vegar. Skömmu síðar sá ég hann arka heim á leið á göngustígnum. Þegar hann kom þangað sem hann ætlaði að heimilisfólk myndi sjá [...]
Lesa meira
Út-úthverfi
Grímur Atlason @ 12. júlí, 2007 # Ummæli (2)
Eftir því sem fólki fjölgar í stóru þéttbýliskjörnunum í heiminum fjölgar fólki einnig í út-úthverfunum. Út-úthverfi eru byggðarkjarnar sem eru í ca. 50 til 100 km fjarlægð frá stóra þéttbýliskjarnanum. Í Danmörku heita þessir bæir Hróarskelda, Ringsted, Frederikssund, Hillerød og Slagelse. Fólk í þessum bæjum pendlar á milli heimilisins og Kaupmannahafnar þar sem það sækir vinnu [...]
Lesa meira
Hafnir
Grímur Atlason @ 10. júlí, 2007 # Ummæli (0)
Ég fagna þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að flýta ýmsum vegaframkvæmdum. Öxi er sérstaklega mikilvægur kafli enda hafa margir lent í talsverðum vanda þar. Ég vona líka að hafist verði handa við göng undir Hrafnseyrarheiði strax á næsta ári – ekki bara að vinna hraðar en áætlað var. Þetta gildir einnig um Drangsnes og Suðurfirði.
Það sem er [...]
Lesa meira
Gamlar fréttir
Grímur Atlason @ 8. júlí, 2007 # Ummæli (0)
Stundum verða viðtöl gömul á 2 dögum og stundum ekki. Viðtal sem tekið var við mig á föstudaginn var heyrðist aftur í dag í kvöldfréttum. Viðtalið var nokkuð klippt í kvöld og samhengið var annað. Góðri menn hringdu í mig og bentu mér á þetta. Þeir höfðu ýmislegt til síns máls enda undarlegt að spila þetta [...]
Lesa meira
Svokallaðar mótvægisaðgerðir
Grímur Atlason @ 6. júlí, 2007 # Ummæli (3)
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar komu mér á óvart. Það er ekkert í þeim – það kom á óvart. Hugsanlega á ríkisstjórnin eftir að kynna einstaka liði betur – en það sem veldur mér áhyggjum sérstaklega eru aðgerðir til skamms tíma. Það skiptir nefnilega svo miklu að bregðast strax við með markvissum og öflugum hætti. En svona lítur [...]
Lesa meira