Kraftur og þor og framtíðin er svo sannarlega fyrir Vestan
Grímur Atlason @ 30. júní, 2007 # Ummæli (9)
Kristinn Hermannsson er upprennandi hagfræðingur sem eins og margur góður drengurinn sleit barnskónum á Vestfjörðum. Hann er dæmi um nútíma útflutning Vestjarða sem í auknu mæli er fólk. Hann hefur ferska og kröftuga sýn þegar kemur að byggðamálum. Hann segir m.a í pistli á heimasíðu sinni:
Ég er hjartanlega sammála Pétri Blöndal, þó hans sýn sé vissulega nokkur [...]
Lesa meira
Hábítur
Grímur Atlason @ 29. júní, 2007 # Ummæli (1)
Um helgina er saltfiskveisla í Edinborgarhúsinu. Tómas R. mætir með bassann og heldur uppi sveiflunni. Það hljómar ágætlega. Annars finnst mér langbest að borða hábítinn hjá Helgu Völu og Edinborgarlokuna – það eru dásamlegir réttir. Ekki má gleyma sojalatteinu en ég grét af gleði þegar ljóst var að Kaffitár með sojamjólk yrði á boðstólum hér [...]
Lesa meira
Væl
Grímur Atlason @ 28. júní, 2007 # Ummæli (7)
Hef heyrt talsvert um að Vestfirðingar séu alltaf vælandi. Það heyrist ekkert frá þeim nema væl og þá er gjarnan hnýtt við hver heldurðu að nenni að búa á stað hvaðan ekkert nema eintómur barlómur heyrist frá? Vissulega er það ekkert sérstaklega kræsilegt að hlusta á barlóm alla daga. En hvað er barlómur? Er það þegar [...]
Lesa meira
Kim Larsen
Grímur Atlason @ 27. júní, 2007 # Ummæli (1)
Austrið vaknaði um stund í dag og tilkynnti um hingað komu Kim Larsen og Kjukken. Meistarinn mætir í Vodafonehöllina við Hlíðarenda þann 24. nóvember nk. og lýkur þar sumar- og hausttónleikaferðalagi sínu um Norðurlöndin sem hófst fyrir stuttu. Ég bind miklar vonir við þetta nýja hús Valsmanna og held að þarna sé komin millistærðin sem [...]
Lesa meira
Sólin
Grímur Atlason @ 26. júní, 2007 # Ummæli (2)
Það er stanslaus sól þessa dagana. Djúpið skartar sínu fegursta og mannlíf og náttúra í blóma. Arnaldur, Eva, Ásta Júlía og frændsystkin þeirra Ari og Kolbrún skemmta sér frá morgni til kvölds án minna afskipta og áhyggja. Þau eru farin að geta gengið í þúfum börnin.
Fór út á þjóðvegina um helgina og tók þátt [...]
Lesa meira
Sértækar aðgerðir
Grímur Atlason @ 25. júní, 2007 # Ummæli (0)
Miðfell á Ísafirði hefur hætt starfsemi ótímabundið – eins og það er orðað í tilkynningu. Á sama tíma og það gerist berast fréttir af því að Bakkavík hafi verslað rækju sem er væntanleg í Víkina. Framleiðsla þar mun því hefjast aftur innan tíðar. Dökkar horfur hjá sumum en glæta út við sjóndeildarhringinn hjá öðrum.
Það er nokkuð ljóst að langtímahugsun [...]
Lesa meira
Gámaálagið
Grímur Atlason @ 25. júní, 2007 # Ummæli (0)
Falleg er Eyjan. Komst ekki inn á hana fyrr en nú þar sem ferðalag mitt á Blönduós með börnunum tók lengri tíma en ég reiknaði með. Smábæjaleikarnir fóru vel fram og sameiginlegt lið norðanverðra Vestfjarða stóð sig með prýði.
Rak augun í það að Eyjan hefur fjallað talsvert um afnám útflutningsálags á gámafiski sem brestur á þann [...]
Lesa meira
Hið lítt þekkta boðorð
Grímur Atlason @ 21. júní, 2007 # Ummæli (0)
Halldór er stórkostlegur í skopteikning í Viðskiptablaðinu á þriðjudaginn. Þar kynnir hann til leiks hið lítt þekkta 11. boðorð – svokallaða Vestfjarðaviðbót:
11. Þú skalt síðan kenna kvótakerfinu um hvað lífið er hundleiðinlegt.
B.K. Guð.
Lesa meira
Víðtækar sértækar aðgerðir
Grímur Atlason @ 19. júní, 2007 # Ummæli (0)
Ríkisstjórnin hélt fund í morgun. Umræðuefnið var m.a. tillögur Hafró um aflaniðurskuð á komandi fiskveiðiári og áhrif þeirra á sjávarbyggðirnar. Ráðherrar keppast við að tíunda að bregðast verði við ástandinu en þó aðeins með almennum aðgerðum til framtíðar eins og samgöngubótum, eflingu fjarskiptamála og eflingu menntastofnana. Allt mjög gott – sé horft til lengri tíma.
Þegar [...]
Lesa meira
Fiskur og annað
Grímur Atlason @ 17. júní, 2007 # Ummæli (0)
Geir H. Haarde hélt hátíðarræðu fyrir sunnan í dag. Hann talaði m.a. um fiskveiðistjórnunarkerfið og tillögur Hafró. Ég verð að játa að það ræða forsætisráðherra gerði mig nett stressaðan part úr degi. Þá sérstaklega þessi hluti ræðunnar:
Hverjum manni er það ljóst að þjóðin er nú betur í stakk búin til að takast á við áföll [...]
Lesa meira