Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: maí, 2007.

Færslur

Gemsar

Grímur Atlason @ 31. maí, 2007 # Ummæli (0)

Merkilegar eldhúsdagsumræður. Gríðarlegt ráp og óþol í þingmönnum og ráðherrum þann stutta tíma sem þessar umræður fóru fram. Gemsar, pukur og fliss. Er ekki hægt að banna síma í þingsal? Er ekki eðlilegt að fólk sitji í sætum sínum þessa stuttu þingfundi sem kallast eldhúsdagsumræður?

Lesa meira

Reykingabann

Grímur Atlason @ 24. maí, 2007 # Ummæli (0)

Mikið var ég hamingjusamur þegar ég fékk sendingu í dag sem minnti mig á að veitinga- og skemmtistaðir verða reyklausir frá og með 1. júní 2007. Það eru talsverðar líkur á því að ég gerist þaulsetnari á kaffihúsum og veitingahúsum Íslands eftir 1. júní nk. heldur en ég nú er.

Lesa meira

Fiskveiðistjórnunarkerfi og grunnþjónusta

Grímur Atlason @ 23. maí, 2007 # Ummæli (0)

Fiskveiðastjórnunarkerfið, sem komið var á fyrir rúmum 20 árum, átti að styrkja byggðirnar og vernda fiskinn. Við lögleiðingu þessa kerfis má segja að nútímavæðing sjávarútvegsins hafi hafist og bein afskipti ríkisins fóru minnkandi með hverju árinu sem leið. Í dag er það lögmál frelsisins sem ræður ríkjum með öllum þeim kostum og göllum sem slíku [...]

Lesa meira

The Who

Grímur Atlason @ 17. maí, 2007 # Ummæli (0)

Var að hlusta á The Who þátt Óla Palla á Rúv áðan – milli þess sem ég sneyddi hjá steinum og holum á Hrafnseyrarheiði. Ég verð að játa að mér þótti aldrei mikið til koma Who og hreytti stundum ónotum í doktorinn þegar hann lofsöng Tommy og aðrar dyggðir The Who. Ég verð að játa [...]

Lesa meira

Nýir vendir sópa best

Grímur Atlason @ 15. maí, 2007 # Ummæli (0)

Við förum ekki í ríkisstjórn ef niðurstöður kosninganna vera í samræmi við skoðanakannanir. Það er lýðræðislegt að við drögum okkur í hlé. Þetta kepptust foringjarnir í Framsóknarflokknum við að segja alveg fram að kjördegi. 24 klst. síðar var allt breytt. Framsóknarflokkurinn skorast ekki undan ábyrgð….Í borgarstjórnarkosningunum fyrir tæpu ári síðan glumdu auglýsingarnar: Framsóknarflokkurinn er eini [...]

Lesa meira

Ný skoðanakönnun!

Grímur Atlason @ 10. maí, 2007 # Ummæli (0)

Skoðanakannanir eru ágætar sem slíkar en mikið óskaplega má ofgera hlutum. Úrtök eru greinilega æði misjöfn og forsendur eru sjaldnast gefnar upp. Þetta er þreytandi og þegar Agnes Bragadóttir sá ágæti blaðamaður býsnast yfir leiðindum kosningabaráttunnar væri ekki úr vegi að benda henni á að blaðið hennar gegnir lykilhlutverki í því að draga allan kraft [...]

Lesa meira

Leiðrétting

Grímur Atlason @ 8. maí, 2007 # Ummæli (0)

Doktor Lýður hefur gert snilldar auglýsingar fyrir Frjálslyndaflokkinn. Hann er listamaður í eðli sínu – menn hafa líkt honum við Björk nú eða kallað hann fjöllistamann. Eins og listamönnum sæmir þá er sköpunarverkið ekki alltaf byggt á staðreyndum. Frelsi listamannsins til túlkunar er jú heilagt. Ég verð því að játa að fullyrðing Dodda um bæjarstjórann [...]

Lesa meira

Ramminn

Grímur Atlason @ 7. maí, 2007 # Ummæli (0)

Það kom fram í máli sjávarútvegsráðherra á fundi um atvinnumál að vandi atvinnulífs í Bolungarvík væri tímabundinn og stafaði af erfiðleikum í tengslum við rækjuvinnslu. Ég er sammála Einari Kristni hvað fyrra atriðið varðar – vandinn er tímabundinn. Ég er hins vegar ekki viss um að rækjuvinnsla sé það sem rétta muni kúrsinn til lengri [...]

Lesa meira

Kató mælir enn með strandsiglingum

Grímur Atlason @ 3. maí, 2007 # Ummæli (0)

Málefni Vestjarða hafa verið á döfinni í aðdraganda kosninga. Vandi sveitarfélaga á svæðinu hefur verið tíundaður ásamt stöðu atvinnulífs. Sett var á laggirnar nefnd sem átti að greina vandann og koma fram með tillögur til úrbóta. Skipan nefndarinnar kom mörgum Vestfirðingum á óvart enda margar tillögur löngu framkomnar og þekktar. Tillögur nefndarinnar voru nokkuð rýrar [...]

Lesa meira