Sakleysið
Grímur Atlason @ 25. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Mikið var gaman í gær á tónleikum í Bolungarvík. Ólöf Arnalds, Lay Low og Pétur Pen allt magnaðir listamenn og gáfu okkur frábæra tónleika. Ólöf er samt í algjöru uppáhaldi hjá mér og það kæmi mér ekki á óvart að hún myndi ná verulegum hæðum í framtíðinni. Reyndar hugsaði ég talsvert um viðskipti og tónlist [...]
Lesa meira
Meint U-beygja
Grímur Atlason @ 20. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Komst aftur í Staksteina í Morgunblaðinu eftir nokkuð hlé. Þeir hafa greinilega legið yfir skrifum mínum síðustu árin og geymt þau til betri tíma sem er hið besta mál. Meiningin með Staksteinum gærdagsins var greinilega að halda því til haga að ég sé ekki lengur náttúruverndarsinni og eru ummæli mín um olíuhreinsunarstöð notuð því til [...]
Lesa meira
Lokuð landamæri
Grímur Atlason @ 16. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Merkilegar eru niðurstöður könnunar um málefni innflytjenda sem birtar voru í gær. Þar kemur fram að meirihluti þjóðarinnar og þá sérstaklega hér á NV-svæðinu vill hertar reglur er varðar heimildir útlendinga til að setjast að á Íslandi. Þetta kemur mér ekki á óvart í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað að undanförnu. Það [...]
Lesa meira
Mannanafnanefnd
Grímur Atlason @ 13. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Mér fannst skemmtilegt að lesa athugasemd við leiðara ritstjóra Blaðsins frá 11. apríl sl. en hún birtist í Blaðinu í dag. Þar kemur fram á ritvöllinn vörpulegur penni sem heitir því stutta en laggóða nafni Sjálfstæðisflokkurinn. Ekki Andri, Kjartan eða Hanna Birna heldur bara Sjálfstæðisflokkurinn. Ég sem hélt að mannanafnanefnd hafi alla tíð verið nokkuð [...]
Lesa meira
Gæti Spandau komið vestur?
Grímur Atlason @ 11. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Hitti mann frá Danmörku um helgina. Kunningja frá mínu fyrra lífi innan tónlistarbransans. Hann sagði mér frá því hvað sonur hans var að bardúsa við þessa dagana. Hann er að leggja lokahönd á verkefni við Kaupmannahafnarháskóla í arkitektúr og er viðfangsefnið fangelsi fyrir stríðsglæpamenn. Þetta var athyglisverð umræða – því það er ekki til neitt [...]
Lesa meira
Bassaleikur
Grímur Atlason @ 11. apríl, 2007 # Ummæli (0)
Ég er miður mín. Fyrir 3 mánuðum sýndi ég Helgu Völu hvernig ætti að snúa bassagítar. Hún náði tón úr honum 3 dögum síðar. Á laugardaginn var kom hún fram með Skriðunum og spilaði flottar línur í góðu grúvi. Ég byrjaði á bassanum fyrir 23 árum – Helga Vala mætti á svæðið og rúllaði mér [...]
Lesa meira