Grjóthrun í Hólshreppi
Grímur Atlason @ 29. mars, 2007 # Ummæli (0)
Grjóthrunið hefur verið við upptökur að undanförnu og stefna á landvinninga. Reyndar varð upplausn í bandinu þegar einn limurinn ákvað að elta pólitískar ambisjónir sínar og bjóða sig fram til alþingis. Þetta setti nokkuð strik í þá hlutleysisstefnu sem viðhöfð hafði verið til þess dags. Eftir marga fundi og stranga náðust loks sættir. Þeir sem [...]
Lesa meira
Furðulegt
Grímur Atlason @ 20. mars, 2007 # Ummæli (0)
Sumt er fábreyttum manni eins og mér fyrirmunað að fá nokkurn botn í. Ég tek heilshugar undir þessa yfirlýsingu frá Félagi heyrnarlausra:
Félag heyrnarlausra harmar mjög að frumvarp um viðurkenningu á íslensku táknmáli náði ekki í gegn á þessu þingi. Þetta hefur slæm áhrif á heyrnarlausa í samfélaginu þar sem barist hefur verið fyrir réttindum heyrnarlausa [...]
Lesa meira
Stutt samantekt
Grímur Atlason @ 19. mars, 2007 # Ummæli (0)
Flutningur opinberra starfa út á landsbyggðina hefur verið í umræðunni að undanförnu. Í samantekt iðnaðarráðuneytisins um þróun opinberra starfa á árunum 1995-2005, vegna fyrirspurnar Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, kemur margt athyglisvert fram. Landbúnaðarráðherra ku hafa verið sérstaklega iðinn við kolann og hefur skapað vel á annað hundrað störf í kjördæmi sínu. Gott hjá honum. Öðrum svæðum [...]
Lesa meira
Núll og nix
Grímur Atlason @ 16. mars, 2007 # Ummæli (0)
Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik? Spyr Vfífilfell og eru bara svona ljómandi hressir. Þeir botna ekkert í móðursjúku vælukjóunum sem finna að þessum orðum.
Stefán Torfi Sigurðsson hjá Vífilfelli segir :
Það er afturhvarf til fortíðar í tíðarandanum þessa stundina. Mér finnst þurfa svolítið góðan vilja til að sjá eitthvað hroðalegt út úr þessu slagorði. [...]
Lesa meira
Steingrímsfjarðarheiði
Grímur Atlason @ 12. mars, 2007 # Ummæli (0)
Steingrímsfjarðarheiði er heiði sem mér er ekkert sérstaklega vel við. Vond heiði að fara yfir – veður oft válynd. Lenti í hremmingum þar fyrir viku – velti bílnum með dýrmætan farm innanborðs. Er óendanlega feginn að hafa sloppið með skrámur og börnin mín algjörlega heil. Þakka líka fyrir að gott fólk kom innan við 20 [...]
Lesa meira
Óttinn
Grímur Atlason @ 9. mars, 2007 # Ummæli (0)
Óttinn er við völd. Fyrirtæki og stjórnendur þeirra eru þessa dagana áberandi í óttaumræðunni. Ef við fáum ekki að stækka þá förum við. Ef við getum ekki gert allt upp í evrum þá förum við. Ég get vel skilið að fyrirtæki þurfi að auka hagnað sinn og bæta afkomu sína. En mér finnst harla aumingjalegt [...]
Lesa meira
Sturlu svarað
Grímur Atlason @ 8. mars, 2007 # Ummæli (0)
Sturla Böðvarsson kýs að fara heldur neikvæða leið í svörum sínum við grein minni um strandsiglingar og Evrópusambandið. Í viðtali sem birtist í Bæjarins besta þann 2. mars sl. segir Sturla:
Grímur bæjarstjóri virðist hinsvegar hafa meiri áhuga á að slá pólitískar keilur og berja á stjórnvöldum en leita leiða sem eru færar. Tilvísanir til hugmynda [...]
Lesa meira
Aftur og enn
Grímur Atlason @ 8. mars, 2007 # Ummæli (0)
Gunnar Þórðarson sendir mér tóninn hér á Bæjarins besta vegna skrifa minna um strandsiglingar. Hann segir mig vera illa upplýstan og dregur í efa ýmislegt sem ég lagt fram. Það er vissulega rétt hjá Gunnari að Marco Polo snýst um að koma flutningum af vegum yfir á sjó. Það er einmitt það sem ég er [...]
Lesa meira