Hugmynd fyrir Moggann
5. 1. 2009 | Flokkur: Óflokkað | Facebook | 9 Ummæli
Á hinu ágæta fjölmiðlabloggi Juan Antonio Giner les ég að London Times ætlar að endurreisa laugardagsútgáfu sína í lok þessa mánaðar; bjóða upp á efnisríkt blað sem að hluta til verður í gamla stóra breiðsíðubrotinu.
Ég þoli ekki Times í nýja brotinu! Allur gamli sjarminn horfinn.
Giner segir að laugardagsútgáfur dagblaða séu að leysa af hólmi hefðbundnar sunnudagsútgáfur. Hann veit sínu viti.
Sem vekur upp þá spurningu af hverju Mogginn er að gefa út tvö blöð á laugardögum. Auðvitað ætti að sameina laugardags- og sunnudagsblaðið í eina öfluga helgarútgáfu. Spurning jafnvel hvort hún ætti að koma út á föstudegi.
Vissulega væri helgarblað sem kæmi út á föstudegi ákveðinn afsláttur af dagblaðshugmyndinni. En hins vegar nær veruleika dagblaða á netöld. Hvarvetna er því spáð að árið 2009 verði árið sem blöðin leggi upp laupana hvert á fætur öðru. Efnhagskreppan er talin verða rothöggið ofan á þá lægð sem fyrir var. Hér á landi glíma blöðin við mikla erfiðleika. Þetta gæti verið ein leiðin til að takast á við vandann.

Mogginn þarf að batna mikið ef ég á að nenna að lesa hann um helgar. Er hætt að hlakka til að fá Lesbókina. Verð alltaf fyrir vonbrigðum. Of margar villur. Óskýr framsetning og lítil leiðsögn. Blurr passar ekki í helgarútgáfu, en Lesbókin á að vera notaleg lesning um helgar, en er orðin kraðak efnis, sem er í innbyrðis samkeppni um lestur. Í staðinn les ég Time og svo stöku dönsk blöð. Það er notalegt að fletta í magasínum, sem eru vel prófarkalesin og bera virðingu fyrir viðfangsefninu.
Ekki síst þarf að minnka áhersluna á fréttir enn frekar, enda nánast enginn sem fær í dag fréttir úr dagblöðum, og leggja enn meiri áherslu á fréttaskýringar og rannsóknarblaðamennsku. Ínformation í Danmörku hefur farið þá leið gerir að verkum að það er ekkert verra að lesa blaðið nokkrum dögum eftir að maður fær það. Þó það sé þunnt er þar marg að lesa og gefandi. Þannig er hægt fá fólk til að vera áskrifendur nokkra daga í viku og þar með mun fleiri sem treysta sér til að fá blaðið en annars.
Það er næstum notalegt að sjá að ágætur ritstjóri Eyjunnar geti (næstum?) gleymt sér í áhugamálum sínum á meðan þjóð hans er enn stjórnað af glæpaklíkum – sem virðast ætla að komast upp með að leggja samfélagið svo að segja í rúst, í og með vegna aumingjaskapar og samstöðuleysis þessarar sömu þjóðar. Ég geri svipað og hann (og þjóðin): sökkvi mér reyndar ekki niður í hobbíin, heldur flý land, kannski í og með vegna þessa sama inngróna aumingjaskapar sem virðist hafa einkennt og ætla að einkenna þjóðernið Íslendingur.
En þegar stærsti „stjórnarandstöðuflokkur“ Íslendinga (VG) biðlar til óforskammaðasta „stjórnar(níðslu)flokksins“ (SF) um samvinnu í kringum næstu kosningar, og heiðvirðir Íslendingar (a la Þorvaldur Gylfason, Ragnar Önundarson, Egill Helgason og margir fleiri) virðast ekki hafa döngun í sér til að sameinast í samtökum sem vilja taka völdin á Íslandi, er fátt til ráða fyrir hálf-geðvillta listamenn á borð við undirritaðan annað en að flýja landið, vilji hann ekki beinlínis eiga þátt í óhæfuverkum sem stríða gegn því heilagasta sem í honum býr.
Við þá, sem geta unað við drauma og áhugamál, segi ég: Verði ykkur að góðu. Ingibjörg Gísladóttir verður ykkar næsti óskoraði drottnari sem forsætisráðherra. Ég hef ekki geð í mér – hversu geðveikur sem ég kann að vera – til að sitja lengur undir hrokapilsum hennar, hvernig svo sem heilameininu kann að reiða af. En – drekkið þar af, fyrst ykkur lystir.
Slök röksemdarfærsla, Ísak. Hvers vegna hvetur þú ekki til slíkra samtaka og starfar í þeim? Flýja land? það geta nú ekki allir.
„og heiðvirðir Íslendingar (a la Þorvaldur Gylfason, Ragnar Önundarson, Egill Helgason og margir fleiri) virðast ekki hafa döngun í sér til að sameinast í samtökum sem vilja taka völdin á Ísland“
Skil vel að menn vilji ekki vera í flokk sem ætlar að: „taka völdin á Ísland“
Kannski ágætt fyrir okkur hin að hann skuli ætla erlendis.
Held að hann og fleiri ættu nú að athuga að það gerir alla brjálaða ef þeir hugsa ekki um neitt annað: – en hvað allir eru vondir við okkur og hvað allt er svart framundan.
María (- Guðmundur?).
a) Skv. nýjustu könnun styðja 36% þjóðarinnar ´“ríkisstjórnina“, 28% Samfylkinguna og 25% Sjálfstæðisflokkinn – eftir allt sem nú er á undan gengið! Mig langar ekki að tilheyra slíkri „þjóð“.
b) Vinstri grænir krjúpa nú á kné fyrir Samfylkingunni um samstarf – þrátt fyrir glæpsamlega vanhæfni hennar (og jafnvel glæpsamlega þátttöku) í hrunadansinum. Sú afstaða er gersamlega óskiljanleg en undirstrikar að núverandi flokkar eru vonlausir til að sinna sannleiks- og réttlætisbaráttu meðal-Íslendingsins.
c) Þar sem ég er ekki líklegur til að geta stuðlað að sameiningu fólks í einhverjum flokki eða samtökum, og/er jafnvel líklegur til að grípa til of róttækra aðgerða (miðað við eigin trúarsannfæringu), er betra að hverfa af þessum kaos- og vonleysisvettvangi fjölskylduklíkuskaparins, heldur en að malla hér lengur eins og ofsoðinn fiskbiti.
Hvet alla Íslendinga til að reyna að gera slíkt hið sama. Hugsanlega er gerlegt að mynda mótspyrnu- og útlagastjórn utan Íslands – þótt ég ætli mér sannarlega ekki slíkt vegna vanheilsu minnar.
PS:
Ísland er GLÆPUR. Er öll þjóðin samsek – og gerir því ekki neitt (nema að sumir röfla)? Svo virðist.
Adieu.
Ísak, drengur, það þýðir ekkert að gefast upp. Ef fólk einsog þú leggja niður lummurnar og hlaupa til útlanda – ef skynsamir menn sleppa því að taka þátt í að mastra aftur sigluna, þá veit framtíðin ekki á gott. Nei, ég leyfi mér að efast um meintan aumingjaskap þjóðarinnar þar til ég geng til hins efsta dóms. (Vonin maður vonin!) Ekki kaupa því farseðillinn út í draumalandið strax. Hér eiga eftir að glennast upp óvæntar opneskjur, vittu til, og lygakistlar springa af okunum. Og hvern djöfullinn ætlar þú að gera í útlöndum, Ísak, búinn að fella íslenskuna að sál þinni? Á ekkert að berjast fyrir því að tungan verði töluð hér þannig að spilling verði ekki normið og umvillan daglegt brauð? Þú verður að vera með okkur að vera í bragði með skynseminni. Hvernig heldurðu að Þjóðverjum hafi liðið eftir seinni heimsstyrjöldina? Samt risu þeir upp. Okkar vandi er ekki mikill miðað við þeirra. Við munum rísa upp þó það verði á hækjum hálfgildings sannleika, þá rísum við upp og svo berjumst við fyrir alvöru sannleika. Fyrst hænuskref og svo drögum við arnarsúginn til betra lífs, Ísak. Það er ekki heldur hægt að gífra um geitarull í úlfakreppu, fárast yfir því að enginn geri neitt. Menn verða að hvetja sjálfa sig áfram og aðra um leið. Annars drögum við aldrei burst úr nefi þessarar bölvuðu ríkisstjórnar.
Það er verið að setja saman nákvæmlega svona stjórn sem þig dreymir um Ísak:) það er miklu mun meira að gerast í grasrótinni en margur veit. Ekki tímabært að segja frá öllu enda mikilvægt að nauðsynleg undirbúningsvinna þess sem sameinar frekar en sundrar eigi sér stað fyrst… ekki fara Ísak – þjóðin þarf á öllu því fólki sem er vakandi og með þroskaða réttlætis- og samfélagskennd að halda.
En mikið skil ég vel hvernig þér líður.