Friðrik Jónsson

blogg á eyjan.is

Skortur á leiðindaskjóðum

5.2 2012 | 16:37 | FB ummæli ()

Eflaust má skrifa tap lífeyrissjóðanna á hruninu aðallega á fernt – ytri áföll, vanhæfni, frænd- og vinahygli.

Kannski má skrifa svo að segja allt hrunið upp á þetta fernt.

Það sem tengdi þetta svo allt saman var það að enginn vildi vera leiðinlegur. Vera gleðispillir í partíi aldarinnar.

Á Íslandi hefur okkur nefnilega verið tamt að líka illa við liðið sem spyr óþægilegu spurninganna, bendir á bjálkana í augum landans eða opinberar innanmeinin.

Leiðindaskjóður.

Upp og niður þjóðfélagsstigann hafa þær verið færðar til um bekk, milli skóla og milli starfa.

Jafnvel haft að spotti og spé. Spyrjið t.d. femínista eða fórnarlömb eineltis. Og skyldi litli símamaðurinn ennþá vinna hjá símanum? Meira að segja þegar Davíð Oddsson varð fúll og tók krónurnar sínar úr Kaupþingi,  en í það skipti hafði hann fulla og réttmæta ástæðu til að vera fúll, þá híuðum við á hann.

Í staðinn fyrir að taka krónurnar okkar líka út.

Valkostirnir voru reyndar heldur ekkert skárri og kannski erfitt fyrir okkur öll að gerast kúnnar hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga.

Ef sagan um Nýju fötin keisarans hefði gerst á Íslandi, hefði krakkinn umsvifalaust verið gripinn, þaggað niður í honum, stútfylltur af rítalíni og sendur í sveit.

Nei, við þurfum fleiri leiðindaskjóður sem spyrja erfiðu spurninganna og láta sig litlu varða um dægurvinsældir. Gera það sem til þarf, passa upp á reglurnar og taka á svindlinu.

Og fá þær til að vinna hjá eftirlitsstofnunum og lífeyrissjóðum.

Flokkar: Efnahagsmál · Stjórnmál og samfélag

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is