Friðrik Jónsson

blogg á eyjan.is

110% hamingja

18.1 2012 | 21:07 | FB ummæli ()

Ert þú ein(n) af þessum heppnu sem hefur fengið húsnæðislánið sitt afskrifað samkvæmt 110% reglunni? Hér eru nokkar tölur til að velta fyrir sér á meðan þú skálar fyrir þeirri gæfu.

Ef lánið þitt eftir afskrift er 30 milljónir þá er það niðurstaða bankans þíns og fasteignasalans sem vann fyrir hann við matið að verðmæti fasteignar þinnar sé 27 milljónir og 272,272 krónur.

Líklegast er þó, nema fasteignin þín sé í allra vinsælustu hverfum höfuðborgarsvæðisins, að raunverulegt markaðsverð sé 23 – 25 milljónir, þ.e.a.s. ef yfirhöfuð er virkur fasteignamarkaður þar sem fasteignin þín er.

Á næstu fimm árum, m.v. 5% verðbólgu og 4,3% vexti af láninu þínu, mun lánið hækka úr 30 milljónum í rúmar 36 milljónir.

Á þessum tíma munt þú greiða af láninu u.þ.b. 9 milljónir.

Neikvætt eigið fé þitt í fasteigninni mun lagast lítið eitt. Ef raunverulegt markaðsverð var 25 milljónir verður eignin þín kannski komin í tæpar 32 milljónir, ef markaðsverð heldur í við verðbólgu.

Það þýðir að á fimm árum munt þú hafa minnkað neikvæða eiginfjárstöðu þína um  u.þ.b. milljón.  Að gefnum sömu forsendum kemst þú ekki á núllpunktinn, þ.e.a.s. að lánið verði orðið jafnhátt markaðsvirði fasteignarinnar fyrr en eftir 14 ár. (12 ár ef markaðsmat bankans reyndist rétt.)

Það mun s.s. taka þig 12 til 14 ár að komast úr 110% veðsetningu niður í 100% veðsetningu.

Til hamingju…!

Þetta miðar við að þú tryggir viðeigandi viðhald á eigninni líka. Annars mun hún jú tapa verðgildi sínu.

Mundu hins vegar að þetta hefði getað verið verra. Ef þú hefðir ekki fengið neina afskrift var eini valkosturinn líklega gjaldþrot og að flytja til Noregs.

En núna getur þú og annað 110% lið farið að láta sér hlakka til ársins 2026, þegar að veðsetningin á fasteigninni þinni skríður loksins úr mínus yfir í plús.

Nú er bara að láta ekki tilhlökkunina fara með sig…!

Flokkar: Efnahagsmál · Óflokkað

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is