11.3 2010 | 10:37
Sumir ráðherrar
Sumir ráðherrar halda að það sé nóg að segja eitthvað til að það sé satt.
Það eru yfirleitt þeir sem minnst vita.
Allir þeir sem fylgjast með íslenskri pólitík sjá það og skynja að erindi þessarar ríkisstjórnar er þrotið. Ef Steingrímur og Jóhanna vilja að ríkisstjórnin lifi út árið þurfa þau að gera breytingar á henni.
Einu ráðherrarnir sem eru öruggir með áframhaldandi sæti við borðið eru Steingrímur, Jóhanna, Katrín Jakobs, Össur og Árni Páll. Aðrir gætu horfið að nýjum störfum.
Álfheiður Ingadóttir hefur ekkert gert sem sýnir að hún valdi embættinu. Mikið frekar er sá orðrómur á kreiki að starfmenn heilbrigðisgeirans sakni tveggja síðustu ráðherra, eins ólíkir og þeir eru. Þeir sýndu hinsvegar að þeir væru tilbúnir að hlusta áður en þeir tóku ákvörðun og væru tilbúnir til að taka erfiðar ákvarðanir.
Það orð fer af Álfheiði að hún hlustar ekki og fer fram með offorsi.
Það bendir helst til þess að viðkomandi hafi ekki vald á verkefninu.
Álfheiði liði örugglega best sjálfri, ef hún fengi verkefni við sitt hæfi.
Friðjón R. Friðjónsson