27.1 2009 | 10:00
Vont fyrir Ísland, gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Yfirvofandi eymdarstjórn Ingibjargar er líklega það besta sem gat komið fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Ef einhverjum fannst bera á sundurlyndi í fráfarandi stjórnarliði þá er hægt að vitna í þekkt ummæli: „You Ain’t Seen Nothing Yet“
Nokkrir spádómar:
- á 3 mánuðum mun Jóhanna hóta að hætta amk. þrisvar sinnum.
- Ingibjörg mun sýna „hver valdið hefur“ á 20 daga fresti
- Össur mun blogga 4 miðnæturblogg sem munu fá Ömma til að reita hár sitt og skegg.
- amk 25 lítrar af svörtu Bragakaffi verða drukknir á bitrum sellufundum þar sem umræðuefnið er „Svikarar við alþýðuna – Samfylkingin“
- Amk einn ráðherra verður uppvís af alverlegum dómgreindarskorti en situr áfram þar sem hann gerði ekkert rangt eða ólöglegt. Gjallarhornið hans Harðar Torfa safnar ryki.
- AGS dregur lánið sitt til baka, stjórnvöld finna ekki peningatréið sem þau héldu vera í Arnarhváli. Hið opinbera lokar vegna fjárþurrðar.
- Innan eins árs verður komin ný ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokk innanborðs. (Mér reyndar finnst vorið líklegra en þá gætu einhverjir haldið að þessir spádómar væru ekki faglegir.)
Friðjón R. Friðjónsson