17.10 2008 | 19:30
Vinnandi fólk
Það er vinnandi fólk sem ber byrðarnar á Íslandi.
Í lok júní á þessu ári voru starfandi á Íslandi skvt. Hagstofunni, 181.500 sálir
Það er fólkið sem borgar allt.
Hér eru nokkrar tölum um hvað hver og einn starfandi maður á Íslandi borgar:
- 57.024,79 kr. í fæðingarorlofssjóð
- 31.041,32 kr. í greiðslur vegna mjólkurframleiðslu
- 22.793,39 kr. í greiðslur vegna lambakjötsframleiðslu
- 13.290,91 kr. í rekstur Alþingis
- 30.902,48 kr. í rekstur ráðuneyta
- 139.465,01 kr. í samgönguverkefni
Meðallaun á Íslandi í fyrra voru 303.000 kr.
Í janúar tekur ríkið að meðaltali 97% launa allra vinnandi manna til að standa straum af þessum verkefnum hér að ofan.
Við þetta bætist að það eru mun færri en 181.500 sem starfa við einhverja verðmætasköpun. Kannski 100 þúsund og það eru þau sem borga allt partýið
Friðjón R. Friðjónsson