5.5 2008 | 15:27

Hillary og merin

Stærstu kappreiðar Bandaríkjanna voru um helgina, Kentucky-veðreiðarnar. Frambjóðendurnir voru að sjálfsögðu fengnir til að spá um úrslit. Prófkjör demókrata í Kentucky verður haldið 20. maí.

Hillary valdi merina Eight Belles sem er fyrsta merin í níu ár sem keppir í Kentucky.

Eight Belles endaði í öðru sæti, hrundi þegar yfir línuna var komið, ökklabrotnaði og var aflífuð á staðnum.

Big Brown sigraði.

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is