Tæknileg aðstoð
Lesendur sem lenda í vandræðum með að setja inn athugasemdir mega senda mér tölvupóst, magnus @ umn.edu, og ég get séð hvað er hægt að gera. Sömuleiðis ef önnur tæknileg vandamál koma upp. Ef athugasemdir birtast ekki er ástæðan tæknileg vandamál, því ég hef ekki haft fyrir sið að banna fólki að skilja eftir athugasemdir.
Ruslpóstvörnin eyðir færslum sem hafa fleiri en einn eða tvo tengla. Ef lesendur vilja koma fleiri tenglum að í athugasemd er það best gert með því að setja bil inn á milli stafa í „http“ eða „www“ þá les ruslpóstvörnin það ekki sem tengil. Eða skrifa „tengill://“ í stað „http://“
Ef lesendur setja tengla eða myndbönd í athugasemdir er best að gera það með því að setja tengilinn eða veffang vídeósins beint inn. Ég hef yfirleitt síðan lagað tenglana og myndböndin þannig að þau birtist beint í færslunni. En þeir sem vilja geta sjálfir sett tengla og myndbönd í athugsemdir með því að skrifa þau inn í html ham.
Til að setja tengla á orð í teksta þarf að skrifa
<a href=“http: tengill“>texti</a>
þar sem „texti“ er orðið, eða setningin sem smella á á til að virkja tengilinn, og „http: tengill“ er tengillinn (það þarf að sleppa gæsalöppunum).
Til að setja upp Youtube video tengil í færslu skrifar maður ["youtube ID"], þar sem ID er auðkennið eða stafarunan sem fylgir á eftir samasemmerkinu (“=“) í veffangi myndbandsins á youtube, og stundum á undan „&“ tákninu. Dæmi um youtube veffang:
www.youtube.com/watch?v=GUB1xSAAADk&feature=related
Hér er stafarunan „GUB1xSAAADk“ auðkenni myndbandsins.
Það þarf að sleppa gæsalöppunum, og það er best að myndbönd standi ein í línu.
Listi yfir spilara sem kerfið samþykkir:
- youtube
- myvideo
- clipfish
- sevenload
- dailymotion
- break
- metacafe
- vimeo
- videotube
- bliptv
- revver
- uncut
- grouper
- liveleak

Rita ummæli