Undirsíður fyrir Ritstjórnarstefna:

Ritstjórnarstefna

Athugasemdir vegna athugasemda:

Ég hef mjög litla ritstjórnarstefnu gagnvart athugasemdum: Allar athugasemdir eru birtar – með tveimur undantekningum:

1) Ég áskil mér rétt til að birta ekki dónalegar athugasemdir, eða hreinar persónuárásir. Sem betur fer hef ég ekki enn þurft að eyða neinum athugasemdum vegna dónaskapar eða persónuárása.

2) Einfaldar ábendingar um málfarsvillur, stafsetningavillur, staðreyndavillur osfv. Slíkar ábendingar eru einfaldlega teknar til athugnar og færslan leiðrétt. Allar slíkar ábendingar eru auðvitað mjög vel þegnar! Ég hef áður sagt að ég hafi ekki tíma til að prófarkalesa allar færslur sérstaklega nógu rækilega, og því geta hæglega slæðst inn fljótfærnisvillur og innsláttarvillur.

Að auki áskil ég mér rétt til að eyða athugasemdum sem fjalla um „júða“ eða „negra“, nú eða samsæri „júða“.

Að lokum vil ég biðja athugasemdaskrifara að reyna að koma öllum athugasemdum fyrir í sem fæstum athugasemdum, en setja ekki í belg og biðu inn fleiri en eina, tvær eða þrjár athugasemdir við sömu færslur, án þess að athugasemdirnar séu að bregðast við öðrum athugasemdum eða svörum mínum. Í slíkum tilfellum leyfi ég mér að slá saman athugasemdum sama athugasemdaskrifara, þannig að frekar en að það séu þrjár eða fjórar stuttar athugasemdir frá viðkomandi séu þær allar settar saman í eina athugasemd.

Ritstjórnarstefna?

Það kemur alltaf fyrir að ergilegir lesendur kvarti undan því að ég sé að „leggja repúblíkana í einelti“ eða að ég leggi mig fram við að „grafa upp“ ljótar fréttir um Repúblíkanaflokkinn. Hvorugt er rétt! Engar af þeim fréttum sem ég skrifa um eru neitt niður grafnar! Það þarf nú ekkert annað en að horfa á fréttir, lesa dagblöð og fylgjast með fjölmiðlum til að verða vitni að heimsku, spillingu og hræsni stjórnmálamanna sem þykjast vera sérstakir varðmenn frelsis, fjölskyldugilda og heiðarlegrar stjórnsýslu. Og það er bráðfyndið þegar þingmenn sem hafa eytt ævinni í að berjast fyrir hefðbundum fjölskyldugildum eru handteknir á almenningssalernum fyrir að leita á aðra karlmenn – og það er háalvarlegt mál þegar stjórnmálaflokkur sem þykist „standa vörð um frelsið“ grefur kerfisbundið undan stjórnarskrárvörðum réttindum borgaranna og þenur linnulaust út lögregluvald ríkisins.

Þar sem þessi síða er prívatmálgagn mitt sé ég enga ástæðu til að hafa neina ritstjórnarstefnu aðra. Ég skrifa um það sem mér sýnist, eins og mér sýnist! Þetta er ekki einhver ríkisfjölmiðill sem er skylt að gæta einhverskonar ímyndaðs hlutleysis og jafnræðis, birta jafn margar neikvæðar og jákvæðar fréttir um alla stjórnmálaflokka og fara um valdhafana með einhverskonar silkihönskum.

Ef ég skrifa ekki um einhver mál er það ekki vegna þess að mér finnist þau ekki mikilvæg eða ég sé ekki að fylgjast með þeim – þessi síða er tómstundaáhugamál, og ég hef ekki tíma til að fylgjast með öllu sem máli skiptir í bandarískum stjórnmálum!

Rita ummæli





Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):