Eldri færslur fyrir 'Trúarbrögð'

Evangelistar ekki allir með homma og fóstureyðingar á heilanum

Ein af þjóðsögum bandarískra stjórnmála er að hvítir evangelistar séu allir repúblíkanar, og hafi allir alveg ægilegar áhyggjur af samkynhneigð og fóstureyðingum. Tilkall Repúblíkanaflokksins til að vera flokkur siðgæðis byggist ekki síst á þessari hugmynd um að fólk sem endurfæðist og er eldheitar trúmanneskjur kjósi sjálfkrafa frabmjóðendur repúblíkana. Fjölmiðlar og margir stjórnmálaskýrendur virðast hafa keypt [...]

Huckabee vinnur Kansas

Bandarískir fjölmiðlar eru búnir að lýsa Huckabee sigurvegara prófkjörs Repúblíkana í Kansas.
Skv. CNN fékk Huckabee hvorki meira né minna en 60% greiddra atkvæða! Paul 11% og McCain 24%. Og þar sem Kansas er með „winner takes all“ fyrirkomulag fær hann alla landsþingsfulltrúa ríkisins, 33 talsins.
Í gær flutti Huckabee ræðu á CPAC þar sem hann sagðist [...]

Repúblíkanar geta ekki haldið jól, nema fyrir liggi þingsamþykki og ríkisstimpill á jólahátíðinni…

Það er orðinn árlegur viðburður að bandarískir hægrimenn þurfi að blása til átaka um „jólastríðin“ (the war on christmas) – sem felast víst í því að vinstrimenn og guðleysingjar séu að reyna að grafa undan jólahátíðinni. Þetta „war on christmas“ er fastur dagskrárliður í blaðurþætti Bill O’Reilly í nóvember og desember hvert ár, og hægrisinnaðir bloggarar [...]

Þingmaður frá Nebraska höfðar mál gegn Guð fyrir “terroristic threats”, fjöldamorð, almennt að hafa hegðað sér eins og skíthæll…

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að það er milljón sinnum skemmtilegra að fylgjast með bandarískum stjórnmálum og stjórnmálamönnum en lýðræðislega kjörnum fulltrúum annarra landa. Semsagt: Fulltrúi í Nebraskaþingi, Ernest W. Chambers, hefur nefnilega höfðað mál gegn almættinu, sem hann sakar um að hafa villt á sér heimildir, hótað fólki líkamsmeiðingum og dauða, hafa [...]

Fleiri bandarískir evangelistar skilja mikilvægi umhverfisverndar, náungakærleiks…

ABC fjallar um það í dag að vaxandi hópur bandarískra evangelista sé að snúa baki við „devil take the hindmost“ hugmyndafræði ríkjandi afla innan Repúblíkanaflokksins. Undanfarna þrjá áratugi, eða svo, hafa evangelistar verið með tryggustu kjósendum Repúblíkana – og hafa aðhyllst mjög einföld og „íhaldssöm gildi“, sem hafa, þegar kemur að stjórnmálum í það minnsta, [...]

Þróunarkenningin er satanismi

Stríð bókstafstrúarmanna gegn þróunarkenningunni er bæði með því allra furðulegasta og allra skuggalegasta sem er að gerast í bandarískum stjórnmálum og menningu. Af öllum æsingamálum evangelista er þetta líka það asnalegasta. Bæði vegna þess að þessi and-skynsemis og and-vísinda hyggja sumra bókstafstrúarmanna ber vott um að sumir, í það minnsta, af leiðtogum og hugmyndasmiðum hreyfingarinnar séu asnar, [...]