Eldri færslur fyrir 'Tónlist'

Double Kermit, OMG! What does this mean?!

Via Boingboing, hreint snilldarperformans. Maður, með tvær Kermitbrúður, að setja á svið Under Pressure með Bowie og Freddie Mercury. Svo á þema myndbandsins vel við þessa dagana. Skv. kommentaskrifurum youtube er brúðuleikarinn líklega ekki heimilislaus í alvörunni, heldur er þetta kermitskets hluti af baráttu hans fyrir því að tekið verði á vanda heimilislausra.

Upphitun fyrir 9/11

Svona, í tilefni þeirrar umræðu sem hefur farið fram um hlutverk internetsins og snertipunkta þess og stjórnmálanna fannst mér rétt að rifja upp hressilegt þjóðernisrúnk og hörmungaklám Darryl Worley. Svo er líka ágætt að byrja að hita sig upp fyrir 9/11 á laugardaginn, sem þetta árið virðist stefna í að verða óvenjulega átakamikill og svakalegur [...]

Tónlistarmyndband: Obama er frændi Osama

„Sounds like a muslim to me“. Hljómar nú bara eins og hrein geðsýki.