Eldri færslur fyrir 'Tölvur og tækni'

Bush loksins á Facebook!

Loksins loksins! George W Bush, því Bush hefur komið sér upp Facebook síðu.  Þetta er auðvitað alveg hreint frábært, því nú getum við öll farið og skrifað hjartnæm skilaboð til hans hátignar, konungsins af Facebook, á vegginn hjá honum! (En, svona í fúlustu alvöru: það er kannski rétt að benda fólki á að það er ekkert sérstaklega [...]

Netárásir á stjórnvöld í Íran

—–  Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það voru kosningar í Íran um daginn og að opinberar niðurstöður þeirra séu vægast sagt ótrúverðugar. Nate Silver, sem var með langsamlega bestu skoðanakannana- og tölfræðiumfjöllun fyrir síðustu kosningar í Bandaríkjunum, bendir á að það sé nánast útilokað, tölfræðilega séð, að niðurstöðurnar endurspegli vilja kjósenda sem [...]

Thanksgiving Rickrolled…

Þetta er hrein popp-menningarleg stórsnilld! Cartoon Network „Rickrollaði“ Þakkargjörðarhátíðinni… — Ætli þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem internet/bloguppákoma er framin á þessum skala í raunheimum? Það er líka viðeigandi að Fosters home of imaginary friends framkvæmi þessa snilld.

McCain og Bush ósammála: The google eða a google?

George W Bush varð frægur fyrir að nota „the google“ þegar hann leitaði að upplýsingum í veraldarrörunum. Reyndar sagðist Bush aðallega googla loftljósmyndir af landareign sinni* í Texas. Sem liggur við að sé eins klókt og að gúgla sjálfan sig til að drepa tíma í vinnunni… —  Þetta vakti auðvitað gleði meðal íllgjarnra bloggara sem fannst [...]

Klámskandalar og Karl Rove?

Nú er farinn af stað heljarinnar orðrómur þvert og endilangt um öll veraldarrörin um að síðasti skjalaeyðinga/yfirhylmingaskandall Hvíta Hússins snúist raunverulega um internetklám. Reyndar er þessi klámvínkill örlítið langsóttur, og orðrómurinn enn á fósturstígi, en þar sem einu fréttirnar sem mér finnast skemmtilegri en fréttir sem snúast um spillingarmál þar sem valdasýki, dómgreindarleysi, og hroki koma [...]

Bandaríska leyniþjónustan kemur sér upp eigin barnalandi

Nú berast fréttir af því að Bandaríska leyniþjónustan ætli að koma sér upp einhverskonar „MySpace“ eða „Facebook“ kerfi til að koma í veg fyrir næsta 9/11. Wonkette er sennilega með bestu umfjöllunina um þessa snilldarfrétt. Ég hef engu við að bæta! Think of something useless and trendy — something that wastes your time while adding [...]

Leiðbeiningar: Hvernig maður á að brjótast inn í rafrænar kosningavélar, ákveða útkomu kosninganna

Undanfarnar vikur hef ég lesið hverja færsluna á fætur annarri um að Repúblíkanaflokkurinn hafi undirbúið einhverskonar stórfellt samsæri til þess að vinna kosningarnar í haust – fyrir utan gamlar og klassískar brellur, eins og að ógna og hræða kjósendur úr minnihlutahópum, breyta reglum um kosningaþátttöku með stuttum fyrirvara, neita kjósendum um kosningarétt þegar þeir mæta á [...]