Eldri færslur fyrir 'Sunnudagsfréttir á Eyjunni'
Bush segir demokrata ógna öryggi BNA með andstöðu við njósnir og hleranir
Í gær, laugardag, féllu úr gildi lög (“The Protect America Act” (PAA)) sem veittu Bandaríkjaforseta tímabundna heimild til að fyrirskipa innanríkisnjósnir án eftirlits dómstóla. Í ágúst 2007 hafði Bandaríkjaþing veitt forsetanum tímabundna heimild til að fyrirskipa símhleranir án þess að til kæmi dómsúrskurður. Á föstudaginn neitaði neðri deild Bandaríkjaþings hins vegar að samþykkja frumvarp öldungadeildarinnar sem [...]
Fært inn 17. febrúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Röð niðurlægjandi ósigra fyrir McCain
Þó sigur Obama í prófkjörum gærdagsins hafi vakið mesta athygli fjölmiðla er líklega stærsta frétt gærdagsins óvæntir sigrar Mike Huckabee á John McCain. Huckabee sigraði McCain bæði í Kansas og Louisiana, og kom einnig mjög nærri því að sigra á kjöfundum repúblíkana í Washingtonríki. Þá hefur það vakið athygli stjórnmálaskýrenda að McCain tapaði fyrir Mitt [...]
Fært inn 11. febrúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Fréttaskýring: Ron Paul bindur enda á forsetaframboð sitt
Ron Paul, þingmaður frá Texas, sem sóttist eftir að verða forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins sendi í gærkvöld stuðningsmönnum sínum bréf þar sem hann lýsti því yfir að hann hefði bundið endi á framboð sitt. Paul tekur fram að hann sé ekki að draga framboð sitt til baka, því hann hyggst áfram bjóða fram í öllum prófkjörum flokksins [...]
Fært inn 11. febrúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Sigurganga Obama heldur áfram
Þegar búið var að telja 99% atkvæða í Maine hafði Barack Obama hlotið 59% atkvæða á móti 40% Hillary Clinton. Allar bandarískar fréttastofur höfðu þá þegar lýst Obama sigurvegara prófkjörsins. Sigur Obama í Maine var mun stærri en nokkur hafði spáð fyrir, og kom flestum á óvart, því fréttaskýrendur höfðu spáð Clinton sigri. Niðurstöður helgarinnar [...]
Fært inn 11. febrúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
BNA Bandaríkin óviðbúin innrás – herinn hafnar niðurstöðu rannsóknarinnar
Í niðurstöðu sérstakrar rannsóknarnefndar (http://www.cngr.gov/) á ástandi bandaríska hersins og þjóðvarðliðisins er að herinn sé engan veginn í stakk búinn að verja Bandaríkin ef það kæmi til innrásar, eða ef gerð yrði árás á landið með kjarnorku-, efna- eða sýklavopna. Í skýrslunni (PDF, úrdráttur PDF) er bent á að mikilvægasta ástæða þessa sé að of [...]
Fært inn 4. febrúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
BNA: Þrír ríkisstarfsmenn sæta rannsóknar eftir að hafa dreyft lygaáróðri um Obama
Boston Globe greindi frá því á laugardag að þrír ónafngreindir ríkisstarfsmenn sættu nú rannsókn eftir að hafa tekið þátt í að dreifa tölvupósti þar sem vegið er að Barack Obama. Tölvupósturinn sem um ræðir hefur farið sem eldur í sinu um veraldarvefinn, en í honum er Obama sakaður um að vera “róttækur múslimi” sem neiti [...]
Fært inn 27. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
McCain og Romney siguruðu í prófkjörum Repúblíkanaflokksins
Í gær voru haldnir prófkjörsfundir demokrata og repúblíkana í Nevada og prófkjör repúblíkana í Suður Karólínu. Auðjöfurinn Mitt Romney sigraði með miklum mun prófkjör repúblíkana í Nevada. Sigurvegari prófkjörs repúblíkana í Suður Karólínu var John McCain, öldungadeildarþingmaður Arizona. Klukkan sjö að íslenskum tíma, þegar búið var að telja 95% atkvæða, hafði McCain um þriggja prósentustiga [...]
Fært inn 20. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Clinton og Romney sigurstrangleg í Nevada, Obama og McCain í Suður Karólínu
Í dag halda repúblíkanar og demokratar prófkjör í Nevada og repúblíkanar í Suður Karólínu. Allar skoðanakannair sýna Barack Obama með öruggt forskot á Clinton í Suður Karólínu, en Clinton er með naumt forskot í Nevada. Auðjöfurinn Mitt Romney virðist öruggur um að sigra prófkjör Repúblíkana í Nevada meðan Mike Huckabee ógnar forskoti John McCain í Suður Karólínu. [...]
Fært inn 19. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Fréttaskýring: McCain sækir á, Romney með forystu í Michigan – Repúblíkanaflokkurinn í tilvistarkreppu?
Þó sigur John McCain í prófkjöri Repúblíkanaflokksins í New Hampshire virðist hafa gert mikið til að auka fylgi hans á landsvísu er alls óvíst að hann geti sigrað í prófkjöri flokksins sem haldið verður í Michigan á þriðjudaginn. Samkvæmt nýrri könnun Detroit Free Press hefur Mitt Romney öruggt forskot á McCain, 27% gegn 22%. Romney [...]
Fært inn 13. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: 1
Clinton ber sigurorð af Obama í New Hampshire
Skömmu eftir miðnætti þegar búið var að telja 96% atkvæða (skv. CNN) í prófkjöri demokrata í New Hampshire var Hillary Clinton með 39% atkvæða, Barack Obama 37% atkvæða og John Edwards 17% atkvæða. Mjög mjótt var á mununum á milli Clinton og Obama, en þegar klukkan var rétt tæplega tíu í New Hampshire (fimm klukkutíma [...]
Fært inn 9. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Repúblíkanaflokkur New Hampshire dregur sig út úr kappræðum Fox
New York Times greindi frá því á laugardaginn að Repúblíkanaflokkur New Hampshire hefði dregið sig út úr kappræðum kapalfréttastöðvarinnar Fox News sem sjónvarpað verður á sunnudagskvöld. Ákvörðunin var tekin eftir að Fox bauð Mitt Romney, Rudy Giuliani, John McCain, Mike Huckabee og Fred Thompson að taka þátt í kappræðunum, en neitaði að bjóða Ron Paul [...]
Fært inn 6. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Skoðanakannanir eftir sigur Obama í Iowa
Niðurstöður úr prófkjöri demokrata og repúblíkana í Iowa í síðustu viku hafa haft umtalsverð áhrif á fylgi frambjóðenda flokkanna í New Hampshire, sem mun halda prófkjör á þriðjudaginn í þessari viku. Eftir afgerandi sigur Barack Obama á Hillary Clinton á fimmtudaginn virðast skoðanakannanir sýna að hann hafi einnig tekið forystuna í New Hampshire. Forysta Obama [...]
Fært inn 6. janúar, 2008 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
BNA: Enginn með afgerandi forystu í Iowa
Í dag komu út tvær kannanir á gengi frambjóðenda í prófkjörum Repúblíkana og Demokrata vegna komandi forsetakosninga sem sýna að of mjótt er á munumum hjá sigurstranglegustu frambjóðendum beggja flokka. Nánast enginn munur er á fylgi þriggja vinsælustu frambjóðenda Demokrata, John Edwards, Hillary Clinton og Barack Obama, annarsvegar og Mitt Romney og Mike Huckabee hins [...]
Fært inn 30. desember, 2007 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Huckabee uppsker árásir fyrir gagnrýnir sína á Hvíta húsið
AP fréttastofan greindi frá því á Sunnudaginn að Mitt Romney, fyrrverandi fylkisstjóri Massachussets, hefði fordæmt gagnrýni Mike Huckabee á utanríkisstefnu Bush. Á kosningafundi í Iowa sakaði Romney Huckabee um að vera í framboði fyrir vitlausan flokk, og að gagnrýni hans bæri þess merki að hann skorti reynslu og skilning á utanríkismálum. Romney ítrekaði gagnrýni sína [...]
Fært inn 23. desember, 2007 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin
Ron Paul varar við “mjúkum fasisma”
Frjálshyggjumaðurinn Ron Paul, sem sækist eftir tilnefningu Repúblíkanaflokksins vegna forsetakosninganna næsta haust, mætti á sunnudagsmorgunn í viðtal í fréttaskýringaþættinum Meet the Press á á sjónvarpsstöðinni MSNBC. Þó Paul njóti tiltölulega lítils stuðnings í könnunum hefur framboð hans vakið gríðarlega mikla athygli, enda hefur honum tekist að safna um sig hópi eldheitra stuðningsmanna. Þessi stuðningur hefur [...]
Fært inn 23. desember, 2007 undir Sunnudagsfréttir á Eyjunni.
Ummæli: engin