Eldri færslur fyrir 'Stuttbuxnadeildin'

Innantómt frelsisþvaður repúblíkana

Í framhaldi af umræðum undanfarinna daga um ótrúlega löggjöf repúblíkana í ríkisþingi Arizona hefur spunnist nokkur umræða á bandarískum bloggsíðum um hversu raunveruleg öll „frelsisást“ grasrótar repúblíkanaflokksins og tepokalýðsins raunverulega er. Þessi spurning er auðvitað mjög góð og löngu tímabær. Matt Yglesias notar tækfirið til að endurbirta langt brot úr grein sem hann birti um frelsishugtakið á The [...]

Sex ára, lumbramdi á kommúnistum

Um síðustu helgi birtist ljósmynd á forsíðu DV af einum af stjórnmálastjörnum Sjálfstæðisflokksins ásamt tilvitnun í þennan speking og óþreytandi baráttumann fyrir frelsi, þar sem hann lýsti því glaðhlakkalega yfir að ofstækið og ofbeldið risti svo djúpt í hans svarta hjarta að hann hefði sex ára gamall verið farinn að „lumbra“ á fólki sem hann [...]

Þagnar stuttbuxnadeildin þá loksins?

Undanfarið hafa vænisjúkustu fulltrúar stuttbuxnadeildarinnar – og jú, HHG og Kjartan Gunnarsson líka – haldið því fram að ríkisstjórn Geirs H Haarde hafi verið neydd frá vödum með „ofbeldi“. Geir, og auðvitað Foringinn sjálfur, Davíð, hafi orðið fórnarlömb hræðilegra ofbeldismanna sem hafi stundað grjótkast og annað skipulagt ofbeldi. Jú, og ef marka má Gísla Frey [...]

NASA: Hvíta húsið lét breyta niðurstöðum rannsókna

Einn merkilegasta einkenni þeirrar stjórnmálastefnu sem George W. Bush og félagar hans í röðum ný-íhaldsmanna og repúblíkana aðhyllast er að allt sé pólítík. Þar með talin vísindi. Ef niðurstöður vísindamanna stangast á við heimsmynd manns er ekki við vísindin að sakast, heldur heimsmyndina, sem er röng. Þá þarf maður að taka heimsyndina til endurskoðunar. Vitgrannt fólk [...]

Rachel Ray er hryðjuverkamaður

Bandarískir hægribloggarar hafa ákveðið að gera stórmál úr því að sjónvarpskokkurinn Rachel Ray skuli birtast í Dunkin Donut auglýsingu. Ekki vegna þess að Ray hafi augljóslega látið peningagræðgina ná tökum á betri dómgreind, heldur vegna þess að Ray er með klút um hálsinn. Og engan venjulegan klút: Hryðjuverkaklút! Little Green Footballs (Sem er eitt af [...]

Obama hatar Ameríku!

Um helgina bárust æsandi fréttir af því að Barack Obama hataði Ameríku svo mikið að hann væri ekki með fánanælu í jakkabarminum! Uppljóstranir á borð við þessar eru svosem ekkert merkilegar fréttir þegar þær birtast á Drudge report eða Townhall, en það sem gerði þessa „frétt“ að fréttaefni var að það var AP fréttastofan sem [...]

Bannað að tala um Ron Paul á hægriblogginu Redstate

Ron Paul er merkilegur stjórnmálamaður. Þó ekki væri nema vegna þess að hann er eini yfirlýsti, og raunverulegi, frjálshyggjumaðurinn í þingflokki Repúblíkana. Það er nefnilega ákveðinn misskilningur að Repúblíkanaflokkurinn sé þéttskipaður frjálshyggjumönnum. Repúblíkanar hafa vissulega talað fyrir skattalækkunum og takmörkunum á reglum og reglugerðum og einkarekstri, en fyrir flesta þingmenn flokksins virðist sú frjálshyggja ekki [...]

Um hvað snýst S-Chip og árás Bush á almannatryggingar?

Um daginn skrifaði ég færslu um S-Chip*, sem er eitt mikilvægasta hitamálið í bandarískum stjórnmálum þessa dagana. Í sunnudagsblaði New York Times er síðan fjallað um viðbrögð þingmanna Repúblíkana við nýlegri ákvörðun George Bush um að beita neitunarvaldi á lög um áframhaldandi ríkisstuðning við verkefnið. Þingmenn sem blaðið ræðir við telja að forsetinn geri sér [...]

Repúblíkanar og Bush í stríði við börn

Eitt mestrædda mál hér í Bandaríkjunum undanfarnar tvær vikur eða svo er hið svokallaða „S-Chip“ mál. Í sem allra stystu máli: S-Chip er alríkisprógramm sem veitir fé til ríkjanna til að hjálpa venjulegu fólki að kaupa heilbrigðistryggingar fyrir börnin sín. Hugmyndin er sú að mikið af venjulegu fólki, með venjulega vinnu, hafi ekki efni á, [...]

Rannsóknir sýna að allir hómófóbískir repúblíkanar/íhaldsmenn eru samkynhneigðir eða kynferðisafbrotamenn…

Það eru tvær ástæður fyrir því að það þykir alltaf fréttnæmt þegar frammámenn Repúblíkanaflokksins koma sér í ógeðfellda kynferðis- og pervertaskandala: 1) Það er í sjálfu sér fréttnæmt þegar sjálfumglaðir broddborgarar, sama hvar í flokki þeir standa, eru staðnir að glæpsamlegu athæfi, og 2) Það er alveg sérstaklega fréttnæmt þegar viðkomandi hefur úttalað sig hvað [...]

Meira af því hvernig kommissarar Repúblíkana hafa pólítíserað allt milli himins og jarðar

Í gær skrifaði ég færslu um William Steiger, sem virðist vera meðlimur rétthugsunarlögreglu Repúblíkanaflokksins, og ritskoðun hans á skýrslum bandaríska landlæknisembættisins. Samkvæmt nýjustu fréttum hefur Henry Waxman, yfirmaður „House Oversight Committee“, þ.e. nefndar þingsins sem á að hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu, fengið í hendur afrit af þessari frægu skýrslu, bæði eins og landlæknirinn gekk frá [...]

Hvíta Húsið stöðvar skýrslur landlæknis vegna þess að þær lofsýngja ekki forsetann

Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég um Richard Carmona, sem var skipaður landlæknir Bandaríkjanna 2002 og gegndi því embætti þar til í fyrra. Í vitnisburði Carmona fyrir þingnefnd kom fram að Hvíta Húsið hefði fyrirskipað honum að nefna Bush minnst einu sinni á mínútu í hverri ræðu – og hafði bannað honum að tala um hluti [...]