Eldri færslur fyrir 'Stríðsæsingur'

Ofstæki AMX og Anders Breivik

Það er nú líklega að bera í bakkafullan lækinn að fara að býsnast yfir ósmekklegheitum og heimsku höfunda vefsins AMX, einum helsta vettvang íslenskra hægriróttæklinga. Undanfarna daga hafa skrif AMX og þó sérstaklega „smáfugla“ þeirra um hryðjuverkin í Noregi nefnilega vakið verðskuldaða athygli. Frá degi til dags í Fréttablaðinu talar um „hræfugla“. Ég hef verið [...]

Bandarískur almenningur á móti stríðsbrölti

The Hill birti í morgun athyglisverðar niðurstöður úr könnun blaðsins á afstöðu Bandaríkjamanna til þess stríðsreksturs sem Bandaríkin eru nú þátttakendur í. Samkvæmt könnuninni er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar þeirrar skoðunar að bandarísk utanríkisstefna sé of herská: An overwhelming number of voters believe the United States is involved in too many foreign conflicts and should pull [...]

Heimskuflan NATO í Líbíu

Meðal bandarískra vinstrimanna er vaxandi andstaða við hernaðaraðgerðir NATO og Bandaríkjanna í Líbíu. Ástæður andstöðunnar eru auðvitað ýmsar. Sumir eru andsnúnir aðgerðum NATO vegna hreinnar siðferðilegrar grundvallarandstöðu við allar hernaðaraðgerðir. Þegar slík siðferðileg afstaða birtist á Íslandi er ritstjóri Fréttablaðsins þeirrar skoðunar að þar sé á ferð einhverskonar barnaskapur – Ólafur Þ. Stephensen hefur þannig heimtað [...]

Nýuppgötvuð íslamistaógn

Við fjölskyldan vorum tiltölulega nýflutt til Bandaríkjanna þegar hryðjuverkaárásirnar 11 september 2001 áttu sér stað. Hið fyrsta sem maður tók eftir í kjölfar árásanna var auðvitað þjóðernisbylgjan sem gekk yfir Bandaríkin – fánar allstaðar, stuttermabolir og bumberstickers með þjóðernsslagorðum. Sem útlendingur fannst manni þetta uppistand allt hálf fáránlegt - og um leið veitti maður því kannski meiri athygli [...]

Upphitun fyrir 9/11

Svona, í tilefni þeirrar umræðu sem hefur farið fram um hlutverk internetsins og snertipunkta þess og stjórnmálanna fannst mér rétt að rifja upp hressilegt þjóðernisrúnk og hörmungaklám Darryl Worley. Svo er líka ágætt að byrja að hita sig upp fyrir 9/11 á laugardaginn, sem þetta árið virðist stefna í að verða óvenjulega átakamikill og svakalegur [...]

Ríkisofbeldisdýrkun hægrimanna?

Merkileg þróun. Daily Beast: Call them the Jack Bauer Republicans. Two Iraq veterans who left the military after surviving charges of crimes against detainees are running credible campaigns for Congress. And far from minimizing the incidents, both candidates have put the accusations front and center in their campaigns, attracting rock-star adulation from conservatives nationwide in [...]

Heimsvaldastefna og olía

Ég veit ekki alveg hvað á að segja um þessa auglýsingu, en ég er viss um að hún virkar: Miða málflutninginn við markhópinn. Stór hluti Bandaríkjamanna á ekki eftir að kaupa hefðbundin rök umhverfisverndarsinna um að lofstslagsbreytingar af mannavöldum séu vísindaleg staðreynd og vandamál og að því þurfi að auka framleiðslu á endurnýjanlegri og umhverfisvænni [...]

Loftárásir á Íran leysa vandann!

Nýíhaldsmenn eru almennt þeirrar skoðunar að það séu engin vandamál sem ekki er hægt að leysa með tilefnislausum stríðsrekstri – helst loftárásum í miðausturlöndum, ólöglegum innanríkisnjósnum, smáskammti af stjórnarskrárbrotum eða útþenslu lögregluvalds ríkisins.* Og nú er einn af snillingum þessarar stjórnmálaheimspeki, Daniel Pipes, einn af dálkahöfundum National Review, búinn að bjóða Obama ókeypis ráðgjöf: Loftárásir á [...]

Rove segir hluti um Afghanistan

Ég veit ekki alveg hvað maður á að segja um svona snilldaranalýsu. Karl Rove bauð áhorfendum Fox „News“ upp á eftirfarandi mat á Afghanistanstrategíu Obama: It took him 80-some-odd days to do this, it took us 50-some-odd days to remove the Taliban from power after 9/11, and it took him some 80-odd days to say, [...]

Friður með hernaði

Barack Obama tilkynnti í gær að hann ætlaði að senda 30.000 hermenn í viðbót til Afghanistan á næstu sex til tólf mánuði. Liðsstyrkurinn er meiri, og hraði styrkaukningarinnar meiri en fréttaskýrendur höfðu átt von á. McCain gagnrýndi sérstaklega þau aumingjalegheit forsetans að vilja vera með „exit strategíu“ – alvöru karlmenn æða áfram án þess að [...]

Það er ekki hægt að drepa alla Múslima

Ralph nokkur Peters mætti til O’Reilly til að ræða fjöldamorðin í Fort Hood herstöðinni, og lýsti þar gremju sinni yfir þeirri svívirðu að forsetinn skuli ekki hafa notað minningarathöfn um hermennina sem féllu til að tala upp mikilvægi stríðsins gegn hryðjuverkum. Ekkert um hryðjuverk! Ekkert um íslamistaógnina. Því við vitum jú að fjöldamorð múslima, líkt [...]

Sanngirni er stórhættuleg

Fyrir utan að fjármálakerfi heimsins sé hrunið, eða að hrynja, Obama sé orðinn forseti Bandaríkjanna og að það sé einhverskonar bylting skollin á á Íslandi er stærsta frétt síðasta mánuðar eða svo stríðsrekstur Ísraelshers á hendur íbúum Gaza. Einhverra hluta vegna hittist svo heppilega á að þetta stríð hófst nákvæmlega þegar Bandaríkjamenn kusu nýjan forseta, [...]

Palin lýsir yfir stríði við Íran!

Þetta fór alveg framhjá mér, en Bandaríkin eru víst í stríði við Íran, og það vantar bara herslumuninn uppá að það stríð vinnist! Sem betur fer höfum við Söru Palin sem getur leitt okkur vesturlandabúa í gegn um stríð við allskonar múslimaþjóðir, Írani, og Íraka og hvað þetta fólk heitir nú alltsaman: — We realize that [...]

Kucinich ákærir Bush í þinginu fyrir glæpsamlega vanhæfni, vanrækslu, stríðsglæpi

Dennis Kucinich hefur loksins gert það sem demokratar hefðu átt að gera fyrir langa löngu: Í gær lagði  Kucinich nefnilega fram „articles of impeachment“ gegn forsetanum. Impeachment er í aðra röndina sambærilegt við vantraustsyfirlýsingu, en er mun alvarlegri, því til að lýsa yfir vantrausti á forseta Bandaríkjanna þarf að sýna fram á að hann hafi [...]

Limbaugh: árásir á Íran yfirvofandi

Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með sumum stuðningsmönnum Bush undanfarið, bæði í röðum ný-íhaldsmanna og svo almennri hálfvitadeild flokksins, ræða mikilvægi þess eða óumflýjanleika að forsetinn geri innrás, eða að minnsta kosti loftárásir á Íran áður en hann fer frá völdum. Aðallega vegna þess að forsetinn hefur ekki klúðrað nándar nærri miklu nú þegar, og bráðnausynlegt [...]