Eldri færslur fyrir 'Stjórnmál og samfélag'
Loftárásir á Íran leysa vandann!
Nýíhaldsmenn eru almennt þeirrar skoðunar að það séu engin vandamál sem ekki er hægt að leysa með tilefnislausum stríðsrekstri – helst loftárásum í miðausturlöndum, ólöglegum innanríkisnjósnum, smáskammti af stjórnarskrárbrotum eða útþenslu lögregluvalds ríkisins.* Og nú er einn af snillingum þessarar stjórnmálaheimspeki, Daniel Pipes, einn af dálkahöfundum National Review, búinn að bjóða Obama ókeypis ráðgjöf: Loftárásir á [...]
Fært inn 3. febrúar, 2010 undir Quagmire/Írak, Stjórnmál og samfélag, Stríðsæsingur.
Ummæli: 8
Satan svarar fyrir sig
Sjónvarpspredíkarinn Pat Robertson vakti mikla athygli um daginn þegar hann hélt því fram að ástæða jarðskjálftans á Haiti væri sú að íbúar eyjarinnar hefðu gert samning við djöfulinn, fyrir réttum tveimur öldum síðan. Sæmilega innréttuðu fólki fannst þessi yfirlýsing auðvitað í meira lagi óviðeigandi og ógeðfelld. Aðrir veltu því fyrir sér hvernig stæði á því [...]
Fært inn 17. janúar, 2010 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 15
Kastljós sekkur dýpra en Fox & Friends
Þó ég hafi haft fyrir reglu að skrifa helst ekki um íslensk stjórnmál fannst mér nauðsynlegt að taka undir gagngrýni á skammarlegan „fréttaflutning“ Kastljóss af meintri ölvun Ögmundar Jónassonar. Björn Bjarnason orðar þetta mjög vel:
Uppákoman í Kastljósi sjónvarpsins í gærkvöldi var furðuleg, þegar Sigmar Guðmundsson flutti ávarp um, að Ögmundur Jónasson, alþingismaður, hefði verið undir [...]
Fært inn 20. desember, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 8
Wikipedia er risavaxið kosningasvindl
Svona fréttir gleðja mig alltaf: Einhver frambjóðandi í prófkjöri repúblíkana í Illinois, Andy Martin að nafni, hefur fengið þá frábæru hugmynd að fara í mál við Wikipedia fyrri að vera, „prótósósíalískt“ kosningasamsæri Obama, kokkað upp til að leggja „íhaldsmenn, repúblíkana og andstæðinga Obama“ í einelti… Skv. fréttatilkynningu Martin:
…Wikimedia and Wikimedia are tax-exempt protosocialist scams that [...]
Fært inn 18. desember, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 3
Bush kom í veg fyrir hryðjuverkaárásir
Dálkur í LA Times um nýja skýrslu Anti Defamation League um Glenn Beck. The Anti Defamation League, sem eru ópólítísk samtök sem berjast gegn hatursboðskap, sérstaklega gyðingahatri, en þó einnig öðrum birtingarmyndum mannhaturs- og ofstækisboðskapar, sérstaklega kynþáttahatri og „white supremasist“ hreyfingum, hafa aldrei áður lýst áhyggjum af vinsælli bandarískri fjölmiðlafígúru. ADL varar við því að [...]
Fært inn 25. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Dagblöð og fréttir, Stjórnmál og samfélag, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 3
Nýíhaldsmenn, aðrir íhaldsmenn gegn réttarríkinu
Dómsmálaráðherra Obama hefur ákveðið að Khalid Sheikh Muhammed skuli ákærður fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásunum 11 september 2001, og dreginn fyrir dómara. Eðlilega mun saksóknari í málinu mun fara fram á dauðadóm yfir „KSM“, enda er hann vondur maður, eins og ótal bloggarar, bandarískir sem íslenskir, hafa bent á. AP:
Attorney General Eric Holder says self-proclaimed [...]
Fært inn 13. nóvember, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 4
Græðgin verður Palin að falli
Fyrir síðustu kosningar voru margir hægrimenn, beggja vegna Atlantshafsins, sannfærðir um að tilnefning Söruh Palin sem varaforsetaefni Repúblíkana væri hreinasta snilld. Aðrir voru ekki svo sannfærðir, enda hafði Palin ekki gert neitt til að sanna sig eða sýnt að hún réði við jafn ábyrgðamikið embætti – né hafði hún sýnt að hún væri sérstaklega hæfileikaríkur pólítíkus [...]
Fært inn 30. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 5
Gingrich er hógvær miðjumaður
Um daginn skrifaði ég um „borgarastríð“ repúblíkana í 23 kjördæmi New York – þar sem jaðarkarakterar flokksins, þ.e. „grasrót“ hans,tepokalýðurinn ásamt átrúnaðargoðum, Sarah Palin, Glenn Beck og viðlíka snillingar, hafa flykkt sér um frambjóðanda „Íhaldsflokksins“ Doug Hoffman frekar en að styðja frambjóðanda Repúblíkanaflokksins. Síðan þá hefur enn fjölgað í stuðningsmannaliði Hoffman. Þannig hefur Tim Pawlenty sem [...]
Fært inn 28. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: engin
Morðfýsn sveitavargsins
Fyrst ísbirnir, og nú sauðkindur? Ég legg nú ekki í vana minn að skrifa um íslensk mál, en mér fannst þessi frétt Vísis um dýraútrýmingaráhuga vestrirskra bjúrókrata alveg hreint stórmerkileg:
Smölun á villtu fé sem hefst við í kringum fjallshrygginn Tálkna verður reynd í dag á vegum Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Landið er afar erfitt yfirferðar og [...]
Fært inn 27. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 16
Gæludýrin og endurkoma frelsarans
Þetta er einhver snjallasta viðskiptahugmynd sem ég hef séð lengi! Hugmyndin er sú, að áður en frelsarin stígur aftur til jarðar, muni hinir sanntrúuðu kallaðir til himna. Eftir sitji trúleysingjar og heiðingjar og svo auðvitað dýr. Þar með talið gæludýr hinna sanntrúuðu. Sem er auðvitað hið versta mál.
En við getum stólað á að einhverjir útsjónarsamir [...]
Fært inn 26. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 2
Beck er Dwight úr The Office
Þegar raunveruleikinn er vitfirrtari en sjónvarpið:
Fært inn 25. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: engin
Gjaldþrot og sjúkratryggingar
Eitt af því sem gerir heilbrigðistryggingakerfið í Bandaríkjunum ómanneskjulegt og óverjandi eru þær fjárhagslegu byrðar sem það leggur á heiðarlegt fólk sem verður fyrir því óláni að veikjast – því 62% allra gjaldþrota einstaklinga í Bandaríkjunum eru til komin vegna kostnaðar við veikindi og sjúkdóma. 62%. Það er meira en helmingur alls fólks sem lýsir [...]
Fært inn 22. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 3
Tepokauppþotin og stuðningur við umbætur
Athyglisverðar tölur í nýjustu könnun Washington Post og ABC á fylgi bandarískra kjósenda við umbætur á heilbrigðistryggingakerfinu. Þeim sem styðja að komið verði á opinberum sjúkratryggingum sem kepptu við einkafyrirtækin (a public option) hefur fjölgað síðan í ágúst, þegar tepokalýðurinn fór gargandi um öll bandaríkin, ásakandi stuðningsmenn umbóta um að vera „fasistar“ eða „nasistar“ eða „sósíalistar“ [...]
Fært inn 21. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: engin
Maher um endalok pólítísks gríns
Lokaorð Bill Maher í gærkvöld voru bráðgóð, og spot on:
—
Árétting: Næstu daga, vikur mun ég ekki verja miklum tíma í síðuna eða viðhald – þannig að færslur verða með þynnra sniði og minna af original commentary á þróun eða fréttir, þar með talið heilbrigðisfrumvarpið sem er loksins að skríða í gegnum þingið. En þegar jólin [...]
Fært inn 17. október, 2009 undir Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 5
Frumlegar sérkröfur
Lengi voru Íslendingar þeirrar skoðunar að þeir ættu heimtingu á einhverskonar sérmeðferð og undanþágum ef til þess kæmi að heimsbyggðin sæi ástæðu til að taka höndum saman um einhverjar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Og þó menn hafi verið eitthvað ósammála um hversu sanngjarnar þessar kröfur voru held ég að allir geti verið sammála um [...]
Fært inn 15. október, 2009 undir Stjórnmál og samfélag.
Ummæli: 1
