Eldri færslur fyrir 'Spilling'

Hárrétt Fuglahvísl

Það er eiginlega alveg hreint furðulegt hversu litla athygli ráðning Runólfs Ágústssonar sem talsmanns skuldara hefur fengið – og um leið hversu litla athygli það hefur vakið að gengið var framhjá Ástu Sigrúnu Helgadóttur sem stýrt hefur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna síðustu sjö ár. Það kemur hins vegar ekki á óvart að Ásta Sigrún krefji [...]

Embætti talsmanns kúlulánaþega

Það vakti athygli margra þegar embætti Umboðsmanns skuldara var stofnað að Runólfur Ágústsson skyldi ráðinn í embættið í stað Ástu Sigrúnar Helgadóttur. Embætti Umboðsmanns skuldara var nefnilega stofnað á grundvelli Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, en Ásta Sigrún hafði stýrt ráðgjafarstofunni um árabil. Að öðrum umsækjendum ólöstuðum eru líklega fáir sem hafa jafn góða yfirsýn og [...]

Sammála AMX

Sammála AMX Og Sóleyju Tómasdóttur í þessu máli. Það á ekki að skipa menn yfir mikilvæg almannafyrirtæki sem eru alræmdir fyrir að kunna ekki að reka fyrirtæki, og fyrir að gera það svo ílla að ábyrgðarsjóður launa þarf að borga laun starfsmanna þeirra. Hvað þá að ráða menn sem eru augljóslega einhverskonar djöfulsins gulldrengir einhverra – í [...]

Umhyggja Fox fyrir skattsvikurum

Skattayfirvöld í Bandaríkjunum hafa nýlega lýst því yfir að þau ætli sér að taka hart á skattsvikum, sérstaklega margmilljónamæringum sem hafa komið auðæfum fyrir í skattaskjólum erlendis. Úr ræðu yfirmanns IRS, Douglas Shulman: Now, high wealth individuals are not your typical Form 1040 filers with a W-2, some 1099 income, and maybe a Schedule C [...]

Blagojevich sannfærður um að hann væri efni í forseta

Umfjöllun New York Times um Blagojevich er alveg hreint ótrúleg – því Blago virðist hafa verið frekar ógeðfelldur maður:  Mr. Blagojevich, 52, rarely turns up for work at his official state office in Chicago, former employees say, is unapologetically late to almost everything, and can treat employees with disdain, cursing and erupting in fury for failings [...]

Stærsta Ponzisvikamylla sögunnar

Einhver langmerkilegasta frétt helgarinnar er tvímælalaust handtaka Bernard Madoff fyrir risavaxið fjármálamisferli – sennlilega eitt svívirðilegasta og stærstu svikamyllu sem um getur. Talað hefur verið um „50 milljarða dollara“ svikamyllu – og talið er að líklega hafi 15 milljarðar bandaríkjadala – sem er hærri upphæð en bandarísku bílafyrirtækin hafa beðið um í ríkisstuðning til að [...]

Mynd dagsins

Í öðrum Blagofréttum er það helst að Repúblíknar hamast við að koma þeirri hugmynd inn að Obama og Blago hafi verið bestu bestu bestu vinir, palling around, og alltaf verið saman með besta vini þeirra beggja Tony Rezko. Og vitanlega þekktust Blago og Obama. En þeir virðast þó ekki hafa verið mjög nánir – samanber þau [...]

Hér í gúlaginu heitir það réttur hundsins

Þættinum hefur borist bréf, frá ritstjóra Nei, því þar sem dagblaðið Nei er í jólafríi verða aðrir vefir að hlaupa undir bagga. Hér í gúlaginu heitir það réttur hundsins  11. desember 2008 sendir Árvakur mér Morgunblaðið endurgjaldslaust. Þetta er nýr siður, á fimmtudögum, að sögn til að sýna mér stuðning í kreppunni. Við hliðina á [...]

Blagogate, og F-in Obama sem ekki kann að meta kjördæmakaup

Rod Blagojevich, demokrati og ríkisstjóri Illionois, sem var handtekinn í gær, virðist ekki bara vera einhver gerspilltasti heldur líka einhver egómanískasti siðleysingi sem hefur komist til valda og áhrifa í bandarískum stjórnmálum. Eins og Morgunblaðið kemst að orði: Haft er eftir Patrick Fitzgerald, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í yfirlýsingu að umfang spillingarinnar sem í ákærunni felist sé ótrúlegt. [...]

Skúrkurinn Stevens dottinn út!

Loksins. Forskot Begich er nú 3.724 atkvæði, og eftir á að telja 2.500 atkvæði. Begich er þá með 47.56% og Stevens 46.76%. Munurinn er 0.77% – en ef munurinn er innan við 0.5% hefst sjálfkrafa endurtalning. Það er því ekki líklegt að telja þurfi aftur. Allir helstu fjölmiðlar hafa lýst Begich sigurvegara. Þetta þýðir að [...]

FBI gerir húsleitir hjá fleiri Bushverjum

The Office for Special Councel hefur nokkrum sinnum komið við sögu í spillingar og valdníðslu-ævintýri því sem valdatíð George W. Bush hefur verið. Annars vegar vegna þess að stofnunin lagði til atlögu við Karl Rove, vegna þess að skrifstofa Rove var sökuð um að hafa notað skattpeninga almennings og beitt ríkisstofnunum til að hjálpa frambjóðendum [...]

KBR rændu öllu steini léttara í Írak

Enn berast fréttir af frábærri frammistöðu verktaka þeirra sem Bandaríkjaher hefur ráðið til að sjá um allt frá „öryggisgæslu“ til „uppbyggingu“ í Írak. Fyrrverandi starfsmenn fyrirtækisins, greindu frá því í yfirheyrslum þingnefndar sem er að rannsaka spillingu meðal verktaka í Írak að margir samstarfsfélagar þeirra hafi rænt nokkurnveginn öllu sem þeir komust yfir: (Houston Chronicle) [...]

Pólítískar ofsóknir í Alabama

Undanfarna daga hafa bandarískir bloggarar fjallað töluvert um mál Don Siegelman, sem er demokrati og fyrrverandi ríkisstjóri Alabama. Siegelman var dæmdur í margra ára fangelsi fyrir spillingu, en það bendir allt til þess að hann hafi verið fórnarlamb pólítískra ofsókna. Og hver haldiði að hafi komið að þessu máli? Nú enginn annar en Karl Rove. [...]

Hermaður sem uppgötvaði bókhaldsóreiðu í Afghanistan finnst myrtur innan veggja herstöðvarinnar…

Það hefur töluvert verið rætt um spillingu í Írak undanfarið, og síðustu daga hafa spjótin aðallega staðið á verktakafyrirtækjum, en það er rétt að halda því til haga að það hafa líka borist grunsamlegar fréttir af hugsanlegri spillingu innan hersins. Þessi er sennilega með þeim skuggalegustu. skv, Patriot Ledger í Boston: Ciara Durkin was home [...]

Larry Craig íhugar að draga afsögn sína til baka!?

Klósettdóninn og öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig hélt blaðamannafund á laugardaginn þar sem hann lýsti því yfir að hann ætlaðið að segja af sér, frá og með 30. september næstkomandi. Ástæðan var að repúblíkanaflokkurinn hafði nánast allur lagst á Craig og grátbeðið hann að láta sig hverfa, því hver veit hvenær næsti pervertaskandall brestur á, og flokkurinn [...]