Eldri færslur fyrir 'Spaugilegt'

Shrubberies

Fight club vs Monthy Python. Með skemmtilegri popular culture blöndum sem ég hef séð lengi! Og fullkominn endir á intense viku. Vikum. via BoingBoing

KKK vs satanistakirkjan Babtist Westboro

Samkvæmt CNN lenti félagsmönnum tveggja ógeðfelldustu ofstækis og mannhaturssamtökum okkar daga, Ku Klux Klan og prívatkirkju predíkarans Fred Phelps, Westboro Babtist, saman við opinbera athöfn Barack Obama í hermannakirkjugarðinum í Arlington. Talsmaður Ku Klux Klan sakaði félagsmenn Westboro Babtist um að sverta minningu látinna hermanna, meðan dóttir predíkarans hélt því fram að siðferði félagsmanna KKK [...]

Íhaldsnörd rífur í sig fyrrverandi kærustu í beinni útsendingu

Vanmetnasta kapalsjónvaprsstöð Bandaríkjanna er vafalaust CSPAN. CSPAN 1 og 2 eru kapalsjónvarpsstöðvar sem sendir út frá bandaríska þinginu, bæði úr þingsal og af opnum nefndarfundum og þingyfirheyrslum, frá pólítískum fundum, borgarafundum og yfirleitt allar ræður og ávörp forsetans og annarra æðstu embættismanna ríkisins. Um helgar er CSPAN með símatíma þar sem áhorfendur geta hringt inn [...]

Skegglausir brenna í helvíti

Brother Steve Winter hefur nokkrum sinnum poppað upp víðsvegar um veraldarvefinn, eða veraldartúburnar eins og Ted Stevens, öldungadeildarþingmaður frá Alaska vildi meina, eins og frægt er orðið, tjáð hér í teknórímixi. Í vor skrifaði ég stutta færslu um tónlistarmyndband Steve Winter „Obama-Muslim 911″ (Sounds like a muslim to me“. Hrein snilld. En hver er þessi snillingur? [...]

BP lekinn í Mexíkóflóa

Ástralskt BP og olíulekagrín:

Heimilishald homo-corporaticus

Af Boing Boing:

Bush loksins á Facebook!

Loksins loksins! George W Bush, því Bush hefur komið sér upp Facebook síðu.  Þetta er auðvitað alveg hreint frábært, því nú getum við öll farið og skrifað hjartnæm skilaboð til hans hátignar, konungsins af Facebook, á vegginn hjá honum! (En, svona í fúlustu alvöru: það er kannski rétt að benda fólki á að það er ekkert sérstaklega [...]

Nazitourette Glenn Beck

Lewis Black er oft nokkuð góður – og þetta Beck rant hans er með betri rispum Black. En semsagt: Beck er með Nazi-tourette! Þetta er líklega mjög skemmtilegur samkvæmisleikur. „One degree of Hitler“. Skemmtilegri allavegana en samkvæmisleikur sem ég tók þátt í um seinustu helgi: Allir sitja í hring, og búa til gleraugu um augun [...]

Tónlistarmyndband: Obama er frændi Osama

„Sounds like a muslim to me“. Hljómar nú bara eins og hrein geðsýki.

Hryðjuverkamannaskráning Suður Karólínu

Samkvæmt nýjum lögum í Suður Karólínu þurfa allir óvinir ríkisins og hryðjuverkamenn, sérstaklega útlenskir hryðjuverkamenn, að mæta á skrifstofu ríkisráðherra ríkisins (Seceratery of state ríkisins – hvernig í ósköpunum á að þýða það embætti?) skrá sig á sérstaka ríkisóvinaskrá sem ríkismálaráðherrann mun halda utanum, og borga fimm dollara skráningargjald… Þeir ríkisóvinir sem ekki tilkynna hryðjuverkafyrirætlanir [...]

Palin og svindlmiða-gate

Það hefur verið gert mikið úr því að Obama notist við skrifaðar ræður – og að hann nýti sér nýjustu tækni þegar hann les ræður, þ.e. „teleprompters“. Þetta hefur hægripressunni Bandaríkjunum þótt merkileg sönnun þess hverskonar léttvigtarbjáni Obama sé. Svona sérstaklega í ljósi þess hverskonar hugsuði og snillinga hægrivængurinn hefur telft fram. Stjórnspekinga og -skörunga [...]

Ef þetta er ekki ónýtt heilbrigðistryggingakerfi veit ég ekki hvað…

Undanfarið hafa fjölmiðlar og bloggarar beint kastljósinu að fréttum sem sýna fram á hversu handónýt einkarekin heilbrigðistrygginga og heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna eru og hversu lífsnauðsynlegt það er að gerðar verði raunverulegar umbætur – sem felast annars vegar í því að einkaframtakinu verði settar skorður og komið í veg fyrir að það megi gera allt sem því [...]

Boing Boing hjá Maddow

Þetta er algjör snilld, sem er viðbúið þegar BoingBoing og Rachel Maddow leiða saman hesta sína, en á þó líklega betur heima á blogginu hennar Sigrúnar, (sem er ein af bestu bloggsíðum eyjunnar) og ég er viss um að hún getur skrifað eitthvað gáfulegra en ég um fáránlega tilhneygingu glamúrblaða til þess að fótósjoppa stærðarhlutföll [...]