Eldri færslur fyrir 'Skoðanakannanir'
Romney og Bachmann með forystu
Samkvæmt fyrstu könnuninni sem Des Moines Register í Iowa hefur tekið á stuðningi repúblíkana sem líklegir eru til að taka þátt í prófkjöri repúblíkana sýnir að Mitt Romney og Michele Bachmann séu með forystu í fylkinu – sem skiptir miklu máli, því fyrstu prófkjörin eru í Iowa og New Hampshire, og því skiptir öllu fyrir frambjóðendur [...]
Fært inn 26. júní, 2011 undir Forsetakosningar, Skoðanakannanir.
Ummæli: 4
Kjósendur óttast repúblíkana
Frétt Bloomberg um nýja könnun fréttastofunnar á viðhorfum bandarískra kjósenda er gott dæmi um mikilvægi þess að maður láti sér ekki nægja að lesa fyrirsögnina eða fyrstu línurnar í fréttum af könnunum. Upplegg fréttarinnar var nefnilega sá að vegna efnahagserfiðleikanna í Bandaríkjunum stæði Obama frammi fyrir alvarlegum vanda – hann gæti ekki reitt sig á [...]
Fært inn 22. júní, 2011 undir Obama, Skoðanakannanir.
Ummæli: 1
Bandarískur almenningur á móti stríðsbrölti
The Hill birti í morgun athyglisverðar niðurstöður úr könnun blaðsins á afstöðu Bandaríkjamanna til þess stríðsreksturs sem Bandaríkin eru nú þátttakendur í. Samkvæmt könnuninni er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar þeirrar skoðunar að bandarísk utanríkisstefna sé of herská: An overwhelming number of voters believe the United States is involved in too many foreign conflicts and should pull [...]
Fært inn 20. júní, 2011 undir Quagmire/Afghanistan/Írak, Skoðanakannanir, Stríðsæsingur.
Ummæli: engin
Obama vinnur 2012, nema suðurríkin
Ef við tökum kannanir á vinsældum/óvinsældum Obama og sigurmöguleikum Mitt Romney trúanlegar lítur út fyrir að Obama sé í alvarlegum vandræðum og að Mitt Romney eigi barasta nokkuð góðan séns á að vinna. Fréttastofa RÚV flutti eina svona frétt í byrjun síðustu viku. RÚV: Óánægja bandarískra kjósenda með frammistöðu Baracks Obama Bandaríkjaforseta eykst á ný. [...]
Fært inn 16. júní, 2011 undir Forsetakosningar, Skoðanakannanir.
Ummæli: 2
Demokratar að fá áhuga á kosningunum
Það eru alir fréttaskýrendur í Bandaríkjunum á einu máli: Repúblíkanar munu vinna stórsigur í konsingunum í haust. Menn eru líka nokkurnveginn sammála um skýringuna á þessu: Kjósendur repúblíkana eru einfaldlega áhugasamari um kosningarnar en demokratar, kjósendur repúblíkana ætla að mæta á kjörstað meðan kjósendur demokrata segjast ekki sérlega líklegir til að mæta. Skýringin á þessum [...]
Fært inn 3. október, 2010 undir Barátta gegn umbótum, Skoðanakannanir, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 3
Forskot repúblíkana minnkar
Góðar fréttir fyrir demokrataflokkinn. Gallup: PRINCETON, NJ — Gallup’s generic ballot for Congress for the week of Sept. 13-19 shows a 46% Democratic and 45% Republican split in registered voters’ preferences for the midterm congressional elections. It is the second week out of the last three in which the two parties have been virtually tied. [...]
Fært inn 21. september, 2010 undir Skoðanakannanir.
Ummæli: 3
5% fylgisaukning demokrata á viku
Það hefur töluvert verið gert úr slöku gengi demokrata í könnun Gallup á fylgi flokkanna í alþingiskosningunum (the generic ballot, þ.e.). Í síðustu könnun var fylgismunurinn á flokkunum kominn í 10% – 51% kjósenda sögðust ætla að kjósa Repúblíkana og aðeins 41% demokrata. Þetta þótti mönnum sönnun þess að demokratar ættu sögulegt burst í vændum. [...]
Fært inn 8. september, 2010 undir Skoðanakannanir.
Ummæli: 5
Its the stupid, stupid
Það lítur allt út fyrir að repúblíkanaflokkurinn vinni stórsigur í kosningunum í haust – og það þó kannanir sýni, (nú síðast könnun Washington Post) að almenningur treysti demokrötum betur en repúblíkönum, og þó fólk hafi skömm á þingmönnum demokrata sé þeim þó verr við þingmenn repúblíkana. Kevin Drum á Mother Jones dregur niðurstöðurnar saman: Summary: [...]
Fært inn 7. september, 2010 undir Skoðanakannanir.
Ummæli: 2
Efnahagskreppan, kosningar og Bush. Og auðvitað Obama líka.
Athyglisverðar tölur um hverjum bandarískir kjósendur kenna um efnahagskreppuna. Skv. Könnun CNN (pdf) A new national poll released Sunday indicates that eight in 10 Americans say that the economy is in poor shape, and the number that says conditions are very poor is on the upswing after steady declines through the spring. And according to [...]
Fært inn 6. september, 2010 undir Obama er ekki Bush, Skoðanakannanir.
Ummæli: engin
Skoðanir tepokahreyfingarinnar
Í gær skrifaði ég færslu um könnun Gallup sem sýndi að það er ótrúlega mikil skörun á tepokahreyfingunni og grasrót repúblíkanaflokksins. Sú niðurstaða bendir, að mati Gallup (og um það er ég hjartanlega sammála þeim), til þess að tepokahreyfingin sé í raun að stærstum hluta sprottin upp innnan repúbílkanaflokksins. Önnur könnun sem Gallup birti á [...]
Fært inn 7. júlí, 2010 undir Skoðanakannanir, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 1
Tepokahreyfingin uppreisn innan repúblíkanaflokksins
Ein helsta ástæða þess að teboðs/tepoka hreyfingin hefur vakið jafn mikla athygli og raun ber vitni er sú að hún virtist vera eitthvað „nýtt“, nýtt afl í bandarískum stjórnmálum, einhverskonar reiðihreyfing sem stæði utan hins hefðbundna flokkakerfis, uppreisn gegn tvíflokknum. Sem er rétt, upp að vissu marki. Margir stjórnmálaskýrendur og bloggarar hafa líka frá því [...]
Fært inn 6. júlí, 2010 undir Skoðanakannanir, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 5
4th July: Allir Kanar asnar. Haha
Það er fastur liður í allri umfjöllun um Bandaríkin að Bandaríkjamenn séu öðru fólki vitlausara og verr upplýst. Ástæðan er ekki síst sú að þessi hugmynd á næstum jafn vel upp á pallborðið vestan hafs og austan – Bandaríkjamenn eru sjálfir mjög pirraðir á fáfræði samborgara sinna. Slíkt ergelsi yfir samlöndum fólks er ekki bundið við [...]
Fært inn 4. júlí, 2010 undir heimska og fáfræði, Skoðanakannanir.
Ummæli: 6
Demokratar haldi sínu í haust?
Í bandarískum stjórnmálum eru það gömul sannindi og ný að sá stjórnmálflokkur sem er við völd tapar þingsætum í fyrstu miðkjördæmiskosningunum (?, þ.e. mid-terms) – því eftir stóra kosningasigra (líkt og demokratar unnu 2008) verði alltaf eitthvað bakslag þar sem kjósendur fyllast efa um fyrra val sitt (fá „buyers remorse“) og sumir kjósendur flokksins úr fyrri [...]
Fært inn 16. maí, 2010 undir Kosningar og framboð, Skoðanakannanir.
Ummæli: 1
Stórbankar ekki sama og Wall street?
Merkileg niðurstaða í gallúpkönnun um afstöðu Bandaríkjamanna til aukins eftirlits með fjármálamörkuðum. Gallup spurði nefnilega tveggja ólíkra spurninga í könnuninni. Annars vegar hvort fólk væri hlynnt eða andsnúið auknu eftirliti með Wall Street og hins vegar „stórbönkunum“. Það kemur ekki á óvart að demokratar er mun hlynntiri auknu eftirliti með stórum bönkum og „Wall Street“ [...]
Fært inn 21. apríl, 2010 undir Skoðanakannanir.
Ummæli: 2
Að hata velferðaraðstoð annarra, en vilja meira fyrir sig sjálfan…
Hatrömm andstaða repúblíkana og tepokalýðsins við umbætur Obama og demokrata á heilbrigðistryggingafrumvarpinu snérist lengi vel um tvö atriði: 1) Að stöðva útþenslu ríkisins, sósíalisma, og koma í veg fyrir að ríkið væri að vasast í heilbrigðistryggingum. Slagorðið „No government takeover of healthcare“ náði kjarnanum í þessari hugsun. 2) Að koma í veg fyrir að Obama [...]
Fært inn 26. mars, 2010 undir heimska og fáfræði, Skoðanakannanir, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 3