Eldri færslur fyrir 'Senílir pólítíkusar'

Skúrkurinn Stevens dottinn út!

Loksins. Forskot Begich er nú 3.724 atkvæði, og eftir á að telja 2.500 atkvæði. Begich er þá með 47.56% og Stevens 46.76%. Munurinn er 0.77% – en ef munurinn er innan við 0.5% hefst sjálfkrafa endurtalning. Það er því ekki líklegt að telja þurfi aftur. Allir helstu fjölmiðlar hafa lýst Begich sigurvegara. Þetta þýðir að [...]

Skúrkurinn Stevens búinn að tapa?

Einhverra hluta vegna tókst kosningayfirvöldum í Alaska (eða fjölmiðlum?) að yfirsjást að það ætti eftir að telja þriðjung atkvæða þegar atkvæðatalning átti að vera búin, og Stevens búinn að vinna, sem aftur leiddi til þess að aðrir fjölmiðlamenn og bloggarar lýstu því yfir að fyrst Bradley-áhrifin hefðu drepist væru nú á ferð ný Stevens-áhrif.Og nú [...]

McCain: Putin er forseti Þýskalands…

Jamm… Karluglan McCain fer á kostum eins og vanalega:

McCain enn í tómu rugli…

Það liggur við að maður vorkenni repúblíkönum. Það getur varla verið gaman að vita til þess að frambjóðandi flokksins viti ekki einu sinni hvernær bandarísku forsetakosningarnar eru haldnar. Forsetakosningarnar munu haldnar þann fjórða nóvember – en ekki í janúar eins og McCain virðist halda: — Fyrir helgi hélt McCain því fram að Bandaríkin væru búin [...]

McCain úti að aka

Ef marka má John McCain er hann öðrum fremur treystandi til að reka utanríkisstefnu Bandaríkjanna – hann hafi betri skilning á öllum þeim ógnum sem steðja að Bandaríkjunum og beri betra skynbragð á öll hernaðarleg málefni en Obama. Og það þó McCain hafi hvað eftir annað ruglað saman Súnni og Shía múslmimum, haldið því fram [...]

Petraeus: Írak er martröð án endi

Evan Bayh, öldungadeildarþingmaður demokrata frá Indiana, sem hefur líka verið nefndur sem hugsanlegt varaforsetaefni Hillary Clinton, hélt áfram að reyna að fá Petraeus til að segja hvort áframhaldandi herseta í Írak væri réttlætanleg, og hvort það sé rétt að slá því föstu að ástandið sé að batna og að áframhaldandi herseta Bandaríkjanna myndi tryggja öryggi og frið:  [...]

Nýskoffínið Podhoretz skítfúll útí leyniþjónustur BNA – sér allsherjarsamsæri gegn Bush

Eins og við mátti búast leiddi birting NIE um Íran í gær, þar sem kom fram að ALLAR leyniþjónustustofnanir Bandaríkjanna væru sammála um að kjarnorkuáætlun Írana væri engan veginn eins hættuleg og látið hefur verið, til allskonar upprhópana og æsings á veraldarvefjunum. Ný-skoffínadeild Repúblíkanaflokksins brást vitaskuld ókvæða við, meðan „the reality based community“ andaði léttar, [...]

Alríkislögreglan gerir húsleit hjá Ted Stevens, öldungadeildarþingmanni Repúblíkana frá Alaska

Ted Stevens er einn af uppáhalds senílu og siðspilltu þingmönnum mínum. Ekki bara vegna þess að hann hefur barist fyrir vafasömum „samgöngubótum“ fyrir íbúa í útnárabyggðum – „the Bridge to nowhere“ sem Stevens vildi láta bandaríska skattgreiðendur borga fyrir hefði kostað 315 milljón dollara og þjónustað 8 þúsund mans – heldur líka vegna þess að [...]