Eldri færslur fyrir 'samsæriskenningar'

Gingrich toppar sig í megalómaníunni

Newt Gingrich er magnaður karakter, og þó ég gleðjist yfir niðurlægingu hans* verð ég að segja að það er eftirsjá í brotthvarfi hans úr prófkjörsslagnum. En sem betur fer er hann ekki alveg farinn – og sem betur fer virðist brotlending framboðs Gingrich ætla að taka mjög langan tíma! Think Progress: On conservative radio host [...]

Fleiri frambjóðendur boða blóðuga byltingu

Það er ljóst að Sharron Angle, frambjóðandi repúblíkana til öldungadeildarinnar fyrir Nevada, er ekki eini frambjóðandi repúblíkana og Teboðshreyfingarinnar sem hótar Bandaríkjamönnum blóðugri byltingu ef þeir lúta ekki kjósa ekki nóg af ofstækisbjálfum á þing til að þeim finnist þeir hafa endurheimt sína Ameríku frá Kenýasósílíska Íslamófasistamaóistanum Hussein Obama. Angle, með sín „second amendment remedies“ virðist [...]

Allir repúblíkanar hafna vísindum

Í leiðara New York Times í morgun er bent á merkilega staðreynd: Aðeins einn einasti frambjóðandi repúblíkanaflokksins til öldungadeildarinnar í kosningunum í ár trúir því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu raunverulegar. With one exception, none of the Republicans running for the Senate — including the 20 or so with a serious chance of winning — [...]

Obama tapar kalda stríðinu í Afghanistan

Christine O’Donnell er einn af athyglisverðari frambjóðendum Repúblíkana í ár. O’Donnell er í framboði til öldungadeildarinnar fyrir repúblíkanaflokkinn í Delaware, þar sem hún sigraði Mike Castle. Castle var tiltölulega hversdagslegur New England repúblíkani, sæmilega frjálslyndur og jarðbundinn og meira að segja bara frekar vinsæll meðal íbúa Delaware, enda bæði fyrrum þingmaður ríkisins og ríkisstjóri. Þetta þótti [...]

Múslimadekur í Campbellsúpum

Pamela Geller, einn af helstu talsmönnum þess að komið verði í veg fyrir að múslimar megi innrétta félagsmiðstöð og bænahús tveimur húsaröðum frá „ground zero“* hefur uppgötvað að það er ekki bara í nágrenni við „ground zero“ sem íslamófasismi er að leggja undir sig Bandaríkin. Ónei. Geller hefur nefnilega uppgötvað að Campell súpufyrirtækið hfur lagst [...]

Ríkisvaldið neyðir fólk til brokkólíáts

Og ef fólk borðar ekki nóg af grænmeti ætlar ríkisvaldið sjálft, persónulega, að hringja í þig og skamma þig og heimta að þú borðir grænmetið þitt! Og þetta, gott fólk, er beinlínis inntakið í sósíalisma, og sönnun þess að Obama er að breyta Bandaríkjunum í einhverskonar sósíalíska martröð. Þetta er nokkurnveginn rétt og nákvæm endursögn [...]

Ríkið neyddi BP til að bora of djúpt…

Slysið á Deepwater Horizon hefur kallað fram allra handa sérkennilegar samsæriskenningar sem ganga margar hverjar út á að slysið sé í raun umhverfisverndarsinnum að kenna. Meðal annars að Obama hafi sjálfur látið eyðileggja borpallinn til að fá átyllu til að neyða „róttækri“ umhverfisverndarstefnu upp á Bandaríkin. Önnur undarleg kenning sem jaðrar við að vera samsæriskenning, svo [...]

Meiri samsæriskenningar um BP

Skömmu eftir að Deepwater Horizon, olíuborpallur BP í Mexíkóflóa sprakk og sökk, með þeim afleiðingum að 11 manns létu lífið, að ógleymdu versta olíuslysi í sögu Bandaríkjanna, spratt fram fjöldinn allur af samsæriskenningum um að slysið væri í raun verk Obama og ofstækisfullra umhverfisverndarsinna sem vildu kasta rýrð á olíuiðnaðinn. Þrátt fyrir að fá töluvert [...]

Sheik Al Thani „virtur alþjóðlegur fjárfestir“?

Það var eitt smáatriði sem vakti athygli mína í yfirlýsingu Ólafs Ólafssonar um samband sitt við Sheikh Al Thani; „Sheik Al-Thani er í hópi öflugustu og virtustu fjárfesta heims. Samsæriskenningar um að hann hafi ætlað að taka þátt í einhvers konar sjónarspili gegn þóknun í tengslum við kaup á 5% hlut í Kaupþingi eru vægast [...]

Samsæriskenningar hægri og vinstri

Eitt af því sem maður heyrir stundum þegartalið berst að samsæriskenningum um Obama eða vitleysu tepokalýðsins (og nú síðast Newt Gingrich!)* um að Obama sé einhvernveginn „eins og Hitler“, er að Bush hafi þurft að sitja undir samskonar vitleysu.  Hugsunin að baki þessu er þá sú að það séu „samskonar“ öfgar meðal vinstrimanna og hægrimanna, [...]

Obama sökkvir olíuborpöllum af einskærri maóískri íllsku

Um daginn fleytti Rush Limbaugh þeirri hugmynd út að einhverjir á vegum Barack Obama hafi unnið skemmdarverk á olíuborpalli BP sem sökk með þeim afleðingum að milljónir tunna af olíu streyma nú út í Mexíkóflóa. Limbaugh velti því fyrir sér hvort það væri ekki of hentugt fyrir Obama að olíuborpallurinn hefði sokkið – því nú [...]

Bandaríkin taka upp evru

Ein aðalfréttin á Drudge report, sem er hægrisinnuð fréttaveita, í dag var sú að nýi 100-dollara seðillinn sé svo „evrópskur“ í útliti að hann gæti allt eins verið Evra. Drudge bendir á að þetta sé engin tilviljun, því Obama sé almennt þekktur fyrir sósíalískar hneigðir – og fyrir að vilja gera Bandaríkin að evrópsku velferðarríki. Fyrirsögn [...]

Ríkið hlerar rassinn á saklausu fólki

Repúblíkanar í ríkisþingi Georgíu hafa undanfarna daga gert sitt besta til að skemmta Bandaríkjamönnum og íllgjörnum bloggurum. Þannig er nefnilega mál með vexti að einn þeirra, Chip nokkur Pearson, hefur tekið að sér að berjast gegn þeirri alvarlegu ógn sem stafar að frelsi fólks frá skuggalegum öflum (líklega leynilegum ríkisstofnunum? Hver veit, því það kemur hvergi fram [...]

Climategate enginn skandall: Önnur rannsókn

AP, via Washington Post: LONDON – An independent review into the work at one of the world’s leading climate research centers says it found no evidence of deliberate scientific malpractice at the British university unit. The University of East Anglia’s Climatic Research Unit became embroiled in controversy last year when climate change skeptics, using more [...]

Repúblíkanar uppgötva ábyrgðarkennd

Undanfarna mánuði hef ég margsinnis bent á að leiðtogar repúblíkanaflokksins hafa ekkert gert til að tóna niður allan þann múgæsing og móðursýki sem hefur gripið um sig meðal grasrótar flokksins. Þingmenn og leiðtogar flokksins hafa ekkert gert til að leiðrétta rangfærslur og „fear mongering“ á borð við þá fáránlegu samsæriskenningu að Obama og demokratar hygðust koma [...]