Eldri færslur fyrir 'Ríkisvald'

Obama gengur betur að skera niður fjárlög en Bush

Athyglisverð frétt í Washington Times (ekki Post, heldur The Moonie Times): Obama  með aðstoð meirihluta demokrata í þinginu gengur betur að skera niður fasta liði í ríkisútgjöldum en Bush gekk meðan hann hafði meirihluta repúblíkana í þinginu:
President Obama notched substantial successes in spending cuts last year, winning 60 percent of his proposed cuts and managing [...]

Málþóf brot á stjórnarskrá

Athyglisverð grein í New York Times um helgina um málþófspólítík repúblíkana. Eins og allir vita hafa repúblíkanar gert öldungadeild bandaríkjaþings nánast óstarfhæfa með skilyrðislausu málþófi sínu – fyrir vikið þurfa demokratar að ná saman öllum 60 atkvæðum sínum til að koma nokkru máli til atkvæðagreiðslu. Afleiðingin er sú að athyglissjúk gamalmenni og mikilmennskubrjálaðir skúnkar eins og Joe [...]

Verktaka við útholun ríkisvaldsins

Áhugaverð samræða Naomi Klein og Rachel Maddow um verktakavæðingu ríkisvaldsins.

Lesendur þessa bloggs vita að málaliðar og verktakaherir Bush stjórnarinnar hafa verið eitt af helstu áhugamálum mínum. Ástæðan er ekki síst að þessi verktakavæðing og „einkaframkvæmd“ stríðsreksturs er öfgakenndasta dæmið um hætturnar sem fylgja því að bjóða út of mikið af verkefnum ríkisins og leyfa verktakafyrirtækjum [...]

Hrakfarir Róberts og útistöður við bandarísk stjórnvöld

Þó ég viti að það séu margir sem hafi ákveðið að boycotta moggann í heild sinni, bloggið líka, finnst mér bera skylda til að benda lesendum freedomfries á færslu moggabloggarans Róberts Björnssonar um hrakfarir hans á flugvellinum í Minneapolis – bæði vegna þess að við Róbert erum báðir gamlir Minnesotans, og líka vegna þess að hef [...]

Föðurlandsöryggisráðuneytið

Ég hef aldrei skilið af hverju „Department of Homeland Security“ hafi verið þýtt sem „Heimavarnarráðuneyti“ á íslensku, því með réttu ætti þessi stofnun að heita „Föðurlandsöryggissráðuneytið“ á Íslensku. Eða eitthvað álíka – því á ensku hefur „Homeland“ merkinguna Föðurland, ekki „heima-“ eitthvað. „Homeland“ hefur mjög ákveðinn og yfirdrifinn tón, sérstaklega á Amerísku, og þeir sem [...]

Snjöll leið til að leysa efnahagsvandann

Wall Stret Journal birti í gær stórmagnaða frétt af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar Lettlands.
„All I did was say what everyone knows,“ says Dmitrijs Smirnovs, a 32-year-old university lecturer detained by Latvia’s Security Police. The force is responsible for hunting down spies, terrorists and other threats … Mr. Smirnovs hasn’t been charged. But he is still under investigation [...]

FOX: BNA nú vinstramegin við miðju!

Ok. Þetta eru stórfréttir, og fóru alveg framhjá mér, en Nina Easton, sem er einn af stjórnmálaspekúlöntum FOX, lýsti því yfir að líklega væru Bandaríkin nú komin vinstra megin við miðju:

Mesta furða hvað hrun óregúleraðrar nýíhaldsmennsku, kryddaðari með pro-business deregulatory nýfrjálshyggju gerir fyrir stjórnmálaskoðanir almúgans. Kannski að menn hefðu átt að hafa það í huga? Og að [...]

fasistinn Obama

Repúblíkanar virðast nú skyndilega hafa enduruppgötvað ást sína á „frelsi“, og hafa nú blásið til mikillar frelsisvarnar. Ástæðan er auðvitað sú að afríski einræðisherran Obama hefur í hyggju að ræna völdum í Washington. Þetta kemur meðal annars fram í grein í American Spectator eftir Jeffrey nokkurn Lord, sem var meðlimur ríkisstjórnar Reagan, og er sennilega [...]

Forsetinn má grafa fanga lifandi… kannski

Í dag standa yfir þingyfirheyslur yfir David Addington og John Yoo. Addington og Yoo hafa kannski ekki mikið verið á forsíðum dagblaðanna, en allir sem fylgst hafa með bandarískum stjórnmálum undanfarin ár þekkja þá og verk þeirra. Þeir félagar léku t.d. lykilhlutverk í að semja hið íllræmda „torture memo“, lögfræðiálit sem staðhæfði að forsetinn mætti, [...]

NASA: Hvíta húsið lét breyta niðurstöðum rannsókna

Einn merkilegasta einkenni þeirrar stjórnmálastefnu sem George W. Bush og félagar hans í röðum ný-íhaldsmanna og repúblíkana aðhyllast er að allt sé pólítík. Þar með talin vísindi. Ef niðurstöður vísindamanna stangast á við heimsmynd manns er ekki við vísindin að sakast, heldur heimsmyndina, sem er röng. Þá þarf maður að taka heimsyndina til endurskoðunar. Vitgrannt fólk [...]

Endurskipulagning Rumsfeld á bandaríkjaher gengur til baka

Það fór lítið fyrir einni af merkilegri fréttum gærdagsins. New York Times greindi frá því að Robert Gates, núverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefði bundið endi á enn eina af umdeildum tilraunum Rumsfeld til að endurskapa Bandaríkjaher sem einhverskonar Team America World Police.
The military’s elite Special Operations Command has quietly stepped back from a controversial plan that [...]

Enn og aftur: Cheney ekki hluti framkvæmdavaldsins

Í gær skrifaði ég færslu um stjórnarskrártúlkun Antonin Scalía, en Scalia telur ekkert í stjórnarskránni takmarka rétt ríkisins til að pynta saklausa borgara, svo fremi sem pyntingarnar eru ekki kallaðar „refsing“.  En það eru ekki bara hæstaréttardómarar sem kunna að leika sér með orð og þykjast geta túlkað út úr stjórnarskránni (sem var sett fil þess [...]

Scalia enn að mæla pyntingum bót

Ég fer ekki ofan af því að það sé bara tvær tegundir fólks sem mælir pyntingum bót: Íllmenni og einfeldningar. Íllmennin vegna þess að þá skortir siðferðiskennd og mannlega samúð, nú eða vegna þess að kvalalostinn hefur náð yfirtökum. Einfeldningarnir eru þó líklega fleiri, og svo virðist sem heilmikið af annars ágætu fólki hafi villst í þann [...]

The Protect America Act stjórnarskrárbrot, skv. stjórnarskrársérfræðing Fox News

Andrew P. Napolitano, sem sat í hæstarétti New Jersey 1987-1995, er kannski ekki einn af virtustu sérfræðingum Bandaríkjanna í stjórnarskrárrétti, en hann er þó nógu frægur til að vera helsti álitsgjafi Fox News. Sem ætti að segja okkur að hann getur seint talist einhverskonar vinstrimaður. Það vakti því vissa athygli þegar hann skrifaði Op-Ed grein í LA [...]

Fyrsti dagurinn liðinn án verndar stóra bróður

Bandaríkjamenn vörpuðu öndinni léttar í morgunn og sáu að Talíbanarnir og The Qaeders hefðu ekki tekið völdin meðan þjóðin svaf. Og eftir því sem mér skilst hefur engin af helstu borgum Bandaríkjanna verið grandað með tifinu í kjarnorkusprengju. Sem eru fréttir, því Demokrataflokkurinn er búinn að svipta ríkisvaldið öllum „sveigjanleika“ í skiptum þeirra við hryðjuverkaógnina: [...]