Eldri færslur fyrir 'Quagmire/Afghanistan/Írak'

Bandarískur almenningur á móti stríðsbrölti

The Hill birti í morgun athyglisverðar niðurstöður úr könnun blaðsins á afstöðu Bandaríkjamanna til þess stríðsreksturs sem Bandaríkin eru nú þátttakendur í. Samkvæmt könnuninni er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar þeirrar skoðunar að bandarísk utanríkisstefna sé of herská: An overwhelming number of voters believe the United States is involved in too many foreign conflicts and should pull [...]

Hvað segir Wikileakslekinn?

Í bandarískum fjölmiðlum hefur töluvert hefur verið fjallað um Íraksskjalaleka Wikileaks á föstudaginn. Megináherslan hefur verið á tvö atriði. Í fyrsta lagi sýna skjölin að bandaríkjaher hefur vantalið fjölda látinna í átökunum, og að yfir 60% þeirra sem hafa fallið séu óbreyttir borgarar, og í öðru lagi að pyntingar og aðrir stríðsglæpir hafi verið mjög útbreiddir. [...]

Afghanistan er Booooring…

Eitt af því merkilegasta við Afghanistanleka Wikileaks er hversu litla umfjöllun hann hefur í raun fengið hjá bandarískum fréttaskýrendum. Svo virðist sem skjalalekinn hafi haft einhver áhrif á umræðuna í Washington, þar sem andstæðingar stríðsins í þinginu og innan Hvíta hússins hafa unnið á. New York Times greindi frá því á mánudag að Wikileaks skjölin hafi [...]

Wikileaks og stoðir lýðræðisins

Bara til að það sé alveg á hreinu: Varnarmálaráðuneytið tekur leyniskjalaleka alvarlega: (via Boing Boing) Fyrstu viðbrögð bandarískra stjórnvalda voru auðvitað að taka lekann „graf alvarlega“. Þjóðaröryggisráðgjafi Obama, James Jones lýsti því yfir á sunnudag að stjórnvöld fordæmdu Afghanistanleka Wikileaks. Politico: The United States strongly condemns the disclosure of classified information by individuals and organizations which [...]

Ekkert nýtt í Wikileaks lekanum?

Nú eru línurnar eitthvað byrjaðar að skýrast hvað varðar Afghanistanleka Wikileaks. Það er klárt að lekinn er sögulegur. En hvað með immediate áhrif birtingarinnar? Hvaða áhrif hefur leyniskjalabirtingin á umræðuna um Afghanistan og þá sérstaklega áframhaldandi veru Bandaríkjahers í landinu? Bandarísk stjórnvöld hafa auðvitað verið skjót til, fordæmt lekann fordæmt lekann og lýst því yfir að [...]

Wikileaks lekinn er sögulegur

Frétt dagsins, vikunnar, og hugsanlega sumarsins (það veltur þó á viðbrögðunum og því sem gerist næst) er Afghanistanleki Wikileaks. Það eitt, að yfir 90.000 leynileg skjöl sem lýsa því hvernig Bandaríkin og evrópskir bandamenn þeirra heyja stríð, komi fyrir sjónir almennings með þessum hætti er stórfrétt. Jafnvel þó skjölin segðu akkúrat ekkert nýtt væri skjalalekinn [...]

Wikileaks lekinn – Pentagonpapers Afghanistanstríðsins?

Seint á sunnudagskvöld birti Wikileaks vefurinn yfir 90.000 leynileg skjöl (sjá skjölin hér) um stríðið í Afghanistan. Þeir sem hafa skoðað skjölin segja þau draga upp mjög dökka mynd af gangi stríðsins, mun dekkri en stjórnvöld hafa haldið fram. The Guardian, New York Times og Der Spiegel höfðu fengið tilkynningu um að til stæði að [...]

Petraeus í stað McChrystal

Frétt dagsins í Bandaríkjunum er auðvitað að Obama hefur tekið við afsögn yfirmanns bandaríkjahers í Afghanistan, Stanley McChrystal. Þetta eru virkilega stórar fréttir því þær sýna svo ekki verður um villst að stefna Bandaríkjanna í Afghanistan er í upplausn. Herforingi í miðju stríði segir ekki af sér í kjölfar harðorðra ummæla um forsetann, æðsta yfirmann [...]

Enn af McChrystal og Afghanistan

Af stóru blöðunum í morgun var Washington Post líklega með bestu úttektina á Bud Light Lime-gate og Afghanistanstefnu forsetans. Skv. WaPo hefur viðtalið grafið undan tilraunum Obama til að lenda einhverskonar stefnu sem allir geta sæst á að sé líkleg til einhverskonar árangur – yfirmenn hersins, ráðuneyti í Washington, þingið og auðvitað kjósendur: The firestorm [...]

Afghanistanstríðið í alvarlegum vanda

Í gærkvöld útskýrði Rachel Maddow McChrystalskandalinn og setti hann í stærra samhengi – og nei, hann snýst því miður ekki um ömurlega bjórsmekk McChrystal, heldur um dýpri og alvarlegri átök um stefnu Bandaríkjanna í Afghanistan, og spurninguna um hvort sú stefna sé yfir höfuð líkleg til að leiða til nokkurs annars en nánast endalauss kviksyndis. [...]

Raunverulegi McChrystalskandallinn

Matt Yglesias bendir á að raunverulegi skandallinn í Rolling Stone viðtali Stanley McChrystal séu drykkjuvenjur McChrystal: The real scandal is that General McChrystal’s favorite beer is Bud Light Lime. Has he never tried regular Bud? Normal Bud Light? Ég get ekki verið annað en sammála Yglesias líkt og svo oft áður. Ég hef smakkað Bud [...]

Rolling Stone drepur McChrystal

Yfirmaður bandaríska heraflans í Afghanistan, Stanley McChrystal, hefur sagt af sér. Afsögnin kemur í kjölfar viðtals sem McChrystal gaf tímaritinu Rolling Stone, þar sem hann og undirmenn hans létu í ljós allskonar skoðanir á forsetanum, ríkisstjórn hans og stefnu þeirra í Afghanistan. Eins og AP orðar það: … military leaders rarely challenge their commander in chief publicly [...]

Afghanistanfréttin hreint PR

Fréttin af náttúruauðæfum Afghanistan var ein af stóru fréttunum í bandarískum fjölmiðlum í gær – þetta var m.a. forsíðufrétt NYT – og var þá flutt sem einhverskonar jákvæð frétt – svona, „það er nú ljós í enda gangnanna fyrir íbúa þessa stríðshrjáða lands“ frétt. Fréttablaðið tók í stórum dráttum undir þessa nálgun. Fréttin hefur hins [...]

Áform um arðrán eða PR brella?

Fréttir af gríðarlegum auðæfum í formi allrahanda náttúruaðlinda og góðmálma í fjöllum Afghanistan hafa vakið nokkra athygli í bandaríkjunum, og svo virðist sem bloggarar, í það minnsta, taki þessum fréttum með smá efa. Blake Hounshell sem bloggar hjá tímaritinu Foreign Policy bendir á að þessar fréttir komi á sérkennilegum tíma: A series of recent news [...]

Loksins fundin arðránsástæða fyrir stríðinu í Afghanistan

Merkileg frétt í NYT í morgun um risavaxna náttúruauðlindafundi í Afghanistan: The United States has discovered nearly $1 trillion in untapped mineral deposits in Afghanistan, far beyond any previously known reserves and enough to fundamentally alter the Afghan economy and perhaps the Afghan war itself, according to senior American government officials. The previously unknown deposits [...]