Eldri færslur fyrir 'orðaleikir og útúrsnúningar'
Stífnin varð Obama að falli
Obama hefur neitað að gefa eftir í samningum sínum við Repúblíkanaflokkinn, vaðið yfir alla á skítugum skónum eða leyft vinstrivæng demokrataflokksins að setja stefnuna í öllum málum. Og það er ástæðan fyrir því hvernig ástandið er í bandískum stjórnmálum. Er nokkur furða að repúblíkanar séu orðnir bitrir og reyni að stöðva frumvörp forsetans, svona í [...]
Fært inn 23. febrúar, 2010 undir Dagblöð og fréttir, Sagnfræði, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 7
Fucking retarded rétthugsun
Það hefur lengi verið mikilvægur liður í gagnrýni hægrimanna á vinstrimenn að þeir séu óeðlilega viðkvæmir og að pólítísk rétthugsun þeirra væri að ganga að öllu dauðu. Það væri einhver undarlegur kellingagangur í vinstrimönnum sem gerði að verkum að þeir hlypu upp í móðursýkishýsteríu í hvert sinn sem menn voguðu sér að segja brandara eða [...]
Fært inn 5. febrúar, 2010 undir Menningarstríðin, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 4
Bush kom í veg fyrir hryðjuverkaárásir í heil átta ár…
Síðan nærbuxnasprengjumaðurinn ægilegi gerði misheppnaða tilraun til að sprengja í loft upp farþegaflugvél yfir Detroit um jólin hafa bandarískir hægrimenn ákveðið að þeir ætli að taka Obama á þeim rökum að honum hafi mistekist að „vernda Bandaríkin“ fyrir hryðjuverkum. Sem er skrýtið, því nærbuxnasprengjuárásin heppnaðist ekki, og þó það sé ekki Obama að þakka er [...]
Fært inn 13. janúar, 2010 undir Stríðið gegn hryðjuverkum, orðaleikir og útúrsnúningar, Ímyndunarveiki.
Ummæli: 11
Obama notar orð. Of oft.
Politico hefur afhjúpað merkilegan og fordæmislausan skandal: Barack Obama notar orðið „fordæmislaust“ oft. Þetta þykir Politico merkilegt:
Obama has relied on [the word] “unprecedented” in more than 90 instances, using the word at least 129 times in everything from major addresses to small speeches, statements, memorandums and proclamations. (Bush, by contrast, used the word 262 times [...]
Fært inn 30. nóvember, 2009 undir Obama, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 1
Schwarzenegger, ljóðskáld
Lítt dulin skilaboð, þingið megi hafa samræði við sjálft sig:
Þessi orðmynd Schwarzenegger er búin að fara einn hring á internetinu í dag, enda finnst öllum þetta alveg hreint ægilega fyndið.
Forsaga málsins er sú að á fjáröflunarsamkomu demokrata, þar sem Schwarzenegger mætti, hrópaði höfundur umræddra laga, Assembly Bill 1176, Tom Ammiano „Þú lýgur“, eða „You lie!“, að [...]
Fært inn 28. október, 2009 undir orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 2
Mynd dagsins
Myndin til hliðar sýnir fjölda frétta og greina í fréttamiðlum sem innihalda orðin „center-right nation“ – en það hefur verið uppáhaldsstaðhæfing repúblíkana síðan í kosningunum – nefnilega að Bandaríkin séu, eftir sem áður, sama hvað kosningarnar segi, hægramegin við miðju. David Sirota, hefur verið að fylgjast með þessum talking point:
When I wrote my first column [...]
Fært inn 22. nóvember, 2008 undir Forsetakosningar, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: engin
Forsetinn má grafa fanga lifandi… kannski
Í dag standa yfir þingyfirheyslur yfir David Addington og John Yoo. Addington og Yoo hafa kannski ekki mikið verið á forsíðum dagblaðanna, en allir sem fylgst hafa með bandarískum stjórnmálum undanfarin ár þekkja þá og verk þeirra. Þeir félagar léku t.d. lykilhlutverk í að semja hið íllræmda „torture memo“, lögfræðiálit sem staðhæfði að forsetinn mætti, [...]
Fært inn 26. júní, 2008 undir Bush & co, Heiðarleikaskortur, Ríkisvald, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 8
Leynilegt minnisblað Repúblíkanaflokksins varðandi umræður um loftslagsbreytingar
Hinn bandaríski Repúblíkanaflokkur, líkt og repúblíkanar beggja vegna Atlantshafsins, eru eindregið andsnúnir því að hið opinbera aðhafist nokkuð þegar kemur að umhverfisvernd. Sérstaklega eru þeir andnúnir því að lýðræðislega kjörnir fulltrúar almennings á löggjafarþingum geri neitt til að stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum. Helsta „rak“ repúblíkana hefur verið að það séu engar sannanir fyrir [...]
Fært inn 5. júní, 2008 undir Kosningar og framboð, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: engin
Obama hatar Ísrael!
Ef trúa má Joe Lieberman, sem segir alltaf satt, er hryðjuverkamaðurinn Barack „Osama“ Obama á mála hjá Hamas.
Þetta er að verða fastur liður í málflutningi repúblíkana sem hafa gert sitt besta til að bendla Obama við hryðjuverkamenn, innlenda og erlenda og auðvitað Osama bin Laden (Osama-Obama… hahaha!) eða aðra óvini Bandaríkjanna.
Obama ákvað því að gefa The Atlantic [...]
Fært inn 13. maí, 2008 undir Forsetakosningar, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 4
Scalia enn að mæla pyntingum bót
Ég fer ekki ofan af því að það sé bara tvær tegundir fólks sem mælir pyntingum bót: Íllmenni og einfeldningar. Íllmennin vegna þess að þá skortir siðferðiskennd og mannlega samúð, nú eða vegna þess að kvalalostinn hefur náð yfirtökum. Einfeldningarnir eru þó líklega fleiri, og svo virðist sem heilmikið af annars ágætu fólki hafi villst í þann [...]
Fært inn 28. apríl, 2008 undir Ríkisvald, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 13
Fánanæluruglið og Obama
Dyggir lesendur þessa bloggs kannast líklega við þingmannin Jack Kingston. Kingston situr á þingi fyrir Georgíu, og þykist vera alveg einstakur áhugamaður um hefðbundin fjölskyldugildi og bandaríska þjóðernisást.
Kingston er samt frægastur fyrir útúrsnúningapólítík (kalla demokrata opinberlega „demonocrats“) og leti. Eftir síðustu kosningar kvartaði Kingston undan því að demokratar ætluðust til þess að þingmenn myndu mæta [...]
Fært inn 29. febrúar, 2008 undir Forsetakosningar, heimska og fáfræði, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 6
Ef Giuliani=Fruitcake, er Romney=JFK eða MLK?
Um daginn flutti auðjöfurinn Mitt Romney mikið umtalaða ræðu sem bar titilinn „Faith in America„. Í þessari ræðu reyndi Romney að róa kjósendur sem hafa áhyggjur af því að hann aðhyllist trúarbragð sem nefnist „Mormónismi“, sem mér skilst að sé einhverskonar frumstæð útgáfa af trúarbrögðum Vísindakirkjunnar. Mormónar halda því sjálfir fram að þeir séu kristnir, [...]
Fært inn 21. desember, 2007 undir Forsetakosningar, Menningarstríðin, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: engin
Afskipti Hvíta hússins af eyðingu myndbanda EKKI meiri en sagt var!
Eyjan slær því upp í fyrirsögn í dag að „Afskipti Hvíta hússins af eyðingu [pyntinga] myndbandanna [hafi verið] meiri en sagt var“. Nú hefur komið í ljós að hér er á ferðinni alvarleg lýgi, og undirróðursstarfsemi, runnin undan rifjum ritstjórnar New York Times. Skv. dagblaðinu The Hill:
The White House on Wednesday took the rare [...]
Fært inn 19. desember, 2007 undir Bush & co, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 3
Útúrsnúningapólítík á leikskólastígi – Jack Kingston (R-GA) og Demoncrats…
Jack Kingston er einn af góðkunningjum lesenda þessa bloggs, en hann er einn af lötustu og vitlausustu meðlimum Bandaríkjaþings.
Kingston varð nefnilega frægur eftir síðustu kosningar fyrir að kvarta undan því að demokratar ætluðust til þess að þingmenn myndu mæta í vinnuna – en meðan repúblíkanar höfðu meirihluta í þinginu þurftu þingmenn ekki að mæta til [...]
Fært inn 5. september, 2007 undir orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: engin
Afsagnarbréf Alberto Gonzales – dómsmálaráðherrann kann ekki ensku?
Fréttir herma að Alberto Gonzales hafi sagt af sér í gær, og sent forsetanum bréf þess efnis. Og eins og allt annað sem dómsmálaráðherrann minnislausi kemur nálægt er bréfið hreinasta snilld, því Gonzales kann ekki ensku!
Þetta er auðvitað bráðfyndið! Maðurinn hafði semsagt ekki fyrir því að láta lesa bréfið yfir?
Fært inn 28. ágúst, 2007 undir Bush & co, orðaleikir og útúrsnúningar.
Ummæli: 5
