Eldri færslur fyrir 'Obama'

Kjósendur óttast repúblíkana

Frétt Bloomberg um nýja könnun fréttastofunnar á viðhorfum bandarískra kjósenda er gott dæmi um mikilvægi þess að maður láti sér ekki nægja að lesa fyrirsögnina eða fyrstu línurnar í fréttum af könnunum. Upplegg fréttarinnar var nefnilega sá að vegna efnahagserfiðleikanna í Bandaríkjunum stæði Obama frammi fyrir alvarlegum vanda – hann gæti ekki reitt sig á [...]

Pyntingar og Osama

Töluverð umræða hefur farið fram í bandarískum fjölmiðlum um hver eigi heiðurinn af því að Osama bin Laden hafi verið drepinn í Pakistan: núverandi forseti og æðsti yfirmaður bandaríska heraflans, Barack Obama, sem gaf fyrirskipun um að Osama yrði drepinn, eða George W. Bush, fyrrerandi forseti Bandaríkjanna sem tókst ekki að ná Osama meðan hann [...]

Ríkisvaldið getur aldrei gert neitt rétt. Aldrei.

Jonathan Cohn á The National Review bendir á að einn liður í efnahagsbjörgunarpakka Obama hefur borið meiri árangur en andstæðingar forsetans (og sumir stuðningsmenn) bjuggust við: On Thursday General Motors announced that, for the fifth consecutive quarter, it had made a profit. And not just a measly one, either. The $3.2 billion was higher than [...]

Obama fyrir landsdóm

Undanfarna mánuði hafa vangaveltur um að repúblíkanar muni stefna Obama fyrir landsdóm (impeachment er í raun landsdómur), ef þeir ná meirihluta í þinginu orðið stöðugt háværari. Frambjóðendur repúblíkana hafa látið í veðri vaka að þeir muni beita þinginu til að hefja rannsóknir á Obama – og jafnvel ganga svo langt að krefjast þess að hann afhendi þinginu [...]

Afghanistan er Booooring…

Eitt af því merkilegasta við Afghanistanleka Wikileaks er hversu litla umfjöllun hann hefur í raun fengið hjá bandarískum fréttaskýrendum. Svo virðist sem skjalalekinn hafi haft einhver áhrif á umræðuna í Washington, þar sem andstæðingar stríðsins í þinginu og innan Hvíta hússins hafa unnið á. New York Times greindi frá því á mánudag að Wikileaks skjölin hafi [...]

Almenningur vill eftirlitsiðnað

Í ljósi þess að bandaríkjaþing hefur samþykkt sögulega löggjöf um eftirlit með fjármálafyrirtækjum (sjá samantekt á efni laganna hér og umfjöllun NYT hér) er athyglisvert að skoða hvaða afstöðu bandaríska þjóðin hefur til „eftirlitsiðnaðarins“. MSNBC: The public wants more regulation, not less. According to last month’s NBC/WSJ poll, 65% said they wanted more regulation for [...]

Enn af McChrystal og Afghanistan

Af stóru blöðunum í morgun var Washington Post líklega með bestu úttektina á Bud Light Lime-gate og Afghanistanstefnu forsetans. Skv. WaPo hefur viðtalið grafið undan tilraunum Obama til að lenda einhverskonar stefnu sem allir geta sæst á að sé líkleg til einhverskonar árangur – yfirmenn hersins, ráðuneyti í Washington, þingið og auðvitað kjósendur: The firestorm [...]

Afghanistanstríðið í alvarlegum vanda

Í gærkvöld útskýrði Rachel Maddow McChrystalskandalinn og setti hann í stærra samhengi – og nei, hann snýst því miður ekki um ömurlega bjórsmekk McChrystal, heldur um dýpri og alvarlegri átök um stefnu Bandaríkjanna í Afghanistan, og spurninguna um hvort sú stefna sé yfir höfuð líkleg til að leiða til nokkurs annars en nánast endalauss kviksyndis. [...]

Rolling Stone drepur McChrystal

Yfirmaður bandaríska heraflans í Afghanistan, Stanley McChrystal, hefur sagt af sér. Afsögnin kemur í kjölfar viðtals sem McChrystal gaf tímaritinu Rolling Stone, þar sem hann og undirmenn hans létu í ljós allskonar skoðanir á forsetanum, ríkisstjórn hans og stefnu þeirra í Afghanistan. Eins og AP orðar það: … military leaders rarely challenge their commander in chief publicly [...]

Meiri samsæriskenningar um BP

Skömmu eftir að Deepwater Horizon, olíuborpallur BP í Mexíkóflóa sprakk og sökk, með þeim afleiðingum að 11 manns létu lífið, að ógleymdu versta olíuslysi í sögu Bandaríkjanna, spratt fram fjöldinn allur af samsæriskenningum um að slysið væri í raun verk Obama og ofstækisfullra umhverfisverndarsinna sem vildu kasta rýrð á olíuiðnaðinn. Þrátt fyrir að fá töluvert [...]

Ósmekkleg klámfengni Michelle Obama

Síðasta helgi var „löng helgi“ í Bandaríkjunum – í gær var Memorial day, sem er nokkurskonar þjóðlegur fjölskyldu- og grilldagur. Fyrir vikið voru engar alvöru eða sæmilega bitastæðar fréttir um helgina. Sem er kannski ágætt því þá gat ég einbeitt mér að Besta flokknum! En meðan ég var að velta fyrir mér Jóni Gnarr voru [...]

Obama á 1. maí

Einn mikilvægasti munurinn á demokrötum og repúblíkönum er sá að demokratar eru þeirrar skoðunar að það séu til vandamál sem samfélagið þurfi að leysa í sameiningu, að sameiginlegar stofnanir samfélagsins, þar á meðla sveitarfélög, ríkin og alríkið, hafi mikilvægu jákvæðu hlutverki að gegna. Að ríkið geti leyst vandamál. Í hugum bandarískra hægrimanna er ríkið hins [...]

Obama er hvorki Busn né Clinton, og 2010 er ekki 1994

John Cole á Balloon Juice reynir að átta sig á því af hverju demokrataflokkurinn ætti að bíða einhverskonar risavaxinn kosningaósigur í haust: Charlie Cook is on Hardball telling us how many seats the Democrats are going to lose, Nate Silver had a pessimistic piece out today, and they were talking about it on NPR today. [...]

Tónlistarmyndband: Obama er frændi Osama

„Sounds like a muslim to me“. Hljómar nú bara eins og hrein geðsýki.

Obama = Bush

Það er mikilvægt að halda svonalöguðu til haga. Aðallega vegna þess að það er ótrúlegt hversu oft maður rekst á vinstrafólk, innan bloggheima og utan, sem er sannfært um að það sé í raun enginn munur á Bush og Obama: Obama sé einhvernveginn „alveg eins“ og Bush. Bob Ceska: It’s important to remind everyone here once [...]