Eldri færslur fyrir 'Obama er ekki Bush'

Dauði Obi-Wan og Osama skref í átt til friðar?

Ein besta greiningin á dauða Osama bin Laden er skopstæling „The Galactic Empire Times“ á frétt New York Times um dauða Osama. The Atlantic: As far as fake news goes, this story from the Galactic Empire Times announcing the death of outlaw Obi-Wan Kenobi — an obvious riff on the New York Times article heralding the [...]

Vandi vinstrimanna

Það er ekki bara á Íslandi sem vinstrimenn eru að velta fyrir sér hvort þeir þurfi ekki að endurskoða stuðning sinn við stjórnvöld sem voru kosin til valda á þeim forsendum að þau væru einhvernveginn til vinstri, að þau ætluðu að breyta hlutunum. Í Bandaríkjunum hafa þessar efasemdir verið að grafa um sig allt síðan [...]

Stéttastríð auðmanna gegn alþýðunni

Góð grein eftir Paul Krugman í New York Times í morgun um kröfur repúblíkana í skattamálum sem ganga út á að skattkerfið verði vinsamlegra auðmönnum. Anger is sweeping America. True, this white-hot rage is a minority phenomenon, not something that characterizes most of our fellow citizens. But the angry minority is angry indeed, consisting of [...]

Verkalýðsleiðtoginn Obama á verkalýðsdaginn

Í Bandaríkjunum er ekki haldið upp á baráttudag verkalýðsins fyrsta maí, heldur er haldið upp á hátíðisdag verkalýðsins fyrsta mánudag í september. „Labor day weekend“ er síðan haldin hátíðleg sem síðasta helgi sumarsins – vanalega sem stór grillhelgi, fólk eyðir deginum á ströndinni eða í almenningsgarði, nú, eða ef maður býr í Minnesota á the [...]

Efnahagskreppan, kosningar og Bush. Og auðvitað Obama líka.

Athyglisverðar tölur um hverjum bandarískir kjósendur kenna um efnahagskreppuna. Skv. Könnun CNN (pdf) A new national poll released Sunday indicates that eight in 10 Americans say that the economy is in poor shape, and the number that says conditions are very poor is on the upswing after steady declines through the spring. And according to [...]

Nei, það saknar enginn Bush

Nema leiðtogar repúblíkanaflokksins, og grasrót botnfall flokksins innan tepokahreyfingarinnar, þ.e. Undanfarna daga hefur hver á fætur öðrum úr forystuliði flokksins stigið fram og lýst því yfir að meint getuleysi og klúður Obama hafi orðið þess valdandi að fólk sakni Bush. Það sem búið er af forsetatíð Obama sýni svo ekki verði um villst að „sagan [...]

Bandaríkjamenn kenna Bush um – ekki Obama

Það lítur út fyrir að Demokratar ætli sér að láta kosningarnar í haust snúast um Bush – kjósendur verði beðnir um að velja á milli eins versta forseta í sögu Bandaríkjanna, (fimmta versta, að mati sagnfræðinga), og svo Barack Obama. Ástæðan er sú að þó kjósendur séu ósáttir við Obama, og finnist hann ekki hafa [...]

DADT, RIP

Nú lítur allt út fyrir að DADT, þ.e. „Dont Ask, Dont Tell“ stefna Bandaríkjahers sé loksins úr sögunni. Með því fá samkynhneigðir Bandaríkjamenn að sinna herþjónustu. Til þessa hafa samkynhneigðir aðeins mátt sinna herþjónustu ef þeir gæta sín á að koma ekki út úr skápnum opinberlega. Herinn spyr ekki að kynhneigð hermanna – en á [...]

Obama: Ný utanríkisstefna BNA

Ræður Bandaríkjaforseta við útskrift West Point herskólans eru oft notaðar af Bandaríkjaforsetum til að lýsa stóru línunum í utnaríkisstefnu sinni, lýsa hugmyndum sínum um stað Bandaríkjanna í heiminum og þó sérstaklega stað hersins í rekstri utanríkisstefnunnar. George W Bush notaði meðal annars útskriftarávarp sitt í West Point 1. júní 2002 til að lýsa þeirri hugmynd [...]

Samsæriskenningar hægri og vinstri

Eitt af því sem maður heyrir stundum þegartalið berst að samsæriskenningum um Obama eða vitleysu tepokalýðsins (og nú síðast Newt Gingrich!)* um að Obama sé einhvernveginn „eins og Hitler“, er að Bush hafi þurft að sitja undir samskonar vitleysu.  Hugsunin að baki þessu er þá sú að það séu „samskonar“ öfgar meðal vinstrimanna og hægrimanna, [...]

Obama á 1. maí

Einn mikilvægasti munurinn á demokrötum og repúblíkönum er sá að demokratar eru þeirrar skoðunar að það séu til vandamál sem samfélagið þurfi að leysa í sameiningu, að sameiginlegar stofnanir samfélagsins, þar á meðla sveitarfélög, ríkin og alríkið, hafi mikilvægu jákvæðu hlutverki að gegna. Að ríkið geti leyst vandamál. Í hugum bandarískra hægrimanna er ríkið hins [...]

Obama, alltaf að ganga erinda Goldman Sachs

Svona, í framhaldi af umræðum um að Obama og demokratar séu á mála hjá Wall Street og þó sérstaklega Goldman Sachs. The Hill: Republicans sought to tie President Barack Obama to Wall Street firm Goldman Sachs after it was hit with civil fraud charges. House Minority Leader John Boehner (R-Ohio) released a statement after the [...]

Hert eftirlit með Wall Street er bara enn eitt beilátið?

Í gær skrifaði ég langa færslu um þá hugmynd að Obama sé með einhverjum hætti á mála hjá Wall Street. Ástæðan var sú að undanfarna daga hafa verið að berast merki um að demokratar séu að fara að leggja í endurskoðun á reglum um starfsemi fjármálafyrirtækja. Ef þessar fréttir reynast á rökum reistar væri hér [...]

Obama á mála hjá Wall Street?

Síðan í janúar í fyrra, þegar Obama og nýr og aukinn þingmeirihluti demokrata tóku við völdum hafa bandarísk stjórnvöld verið upptekin, fyrst við að koma í veg fyrir að hrun fjármálakerfisins myndi leiða af sér alvöru heimskreppu, og síðan við að koma í gegn umbótum á heilbrigðistryggingakerfinu. Hér eru á ferð tvö risavaxin mál sem [...]

Obama er hvorki Busn né Clinton, og 2010 er ekki 1994

John Cole á Balloon Juice reynir að átta sig á því af hverju demokrataflokkurinn ætti að bíða einhverskonar risavaxinn kosningaósigur í haust: Charlie Cook is on Hardball telling us how many seats the Democrats are going to lose, Nate Silver had a pessimistic piece out today, and they were talking about it on NPR today. [...]