Eldri færslur fyrir 'Moral majority'
Frjálshyggjan í teboðshreyfingunni
Ég hef séð og heyrt að sumir íslenskir frjálshyggjumenn, þeirra á meðal eyjubloggarinn Skafti standa í þeirri trú að teboðshreyfingin sé í raun og veru ekkert annað en einhverskonar frjálshyggjuhreyfing, grasrótarhreyfing fólks sem vill takmarka umsvif ríkisvaldsins. Skafti skrifaði t.d. vandlætingarfulla bloggfærslu eftir síðustu kosningar í Bandaríkjunum þar sem hann sakaði íslenska fjölmiðla um einhverskonar [...]
Fært inn 17. júní, 2011 undir Moral majority, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 9
Af ljótum hugsunum
Tilfellið er að það virðist einhvernveginn sem það sé ekki nokkur maður í raun hómófóbískur. Allt fólk sem er með einum eða öðrum hætti á móti því að samkynhneigðir hafi sömu réttindi og annað fólk, og fái að njóta fullrar virðingar samfélagsins, hefur einhverjar mjög svo óhómófóbískar skýringar á þessari afstöðu sinni. Ein sú skemmtilegasta [...]
Fært inn 9. júní, 2010 undir Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 4
Morðóðir nasiskir hommar ógna Bandaríkjaher?
Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með móðursýkislegum viðbrögðum íhaldssamra kristinna öfgamanna við ákvörðun Obama og demokrata um að láta loksins verða af því að viðurkenna rétt samkynhneigðra til að sinna herþjónustu. Hugsun demokrata er væntanlega sú að hommar og lesbíur sem á annað borð vilja fá að taka þátt í hernaði og fara í [...]
Fært inn 27. maí, 2010 undir Ímyndunarveiki, Menningarstríðin, Moral majority, Sagnfræði.
Ummæli: 5
Fleiri hómófóbískar fegurðardrottningar
Carrie Prejean heitir ung kona. Prejean var krýnd úngfrú Ameríka í fyrra, en var svipt titlinum af „Miss USA“, sem sér um keppnina. Samtökin sökuðu Prejean um að hafa brotið ýmis ákvæði í samningu hennar og samtakanna, um að hafa logið að samtökunum, um að hafa setið fyrir á nektarmyndum, og um að hafa ekki [...]
Fært inn 24. febrúar, 2010 undir heimska og fáfræði, Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 6
hjónabönd samkynhneigðra styrkja önnur hjónabönd?
Helstu rökin gegn því að leyfa samkynhneigðum að ganga í hjónabönd er sú að það muni með einhverhverjum dularfullum hætti „grafa undan“ hefðbundnum hjónaböndum. Sem er auðvitað stórundarlegt, því hvaða áhrif hefur það á hjónaband mitt hvaða fólki eitthvað allt annað fólk er að giftast einhverstaðar úti í bæ? En viti menn: Það virðist hafa [...]
Fært inn 12. janúar, 2010 undir Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 2
McCain verður að blása til stríðs við hommaógnina
Á föstudaginn mætti Fred Barnes, ritstjóri The Weekly Standard, í sjónvarpssal hjá Fox til að ræða forsetakosningarnar í haust, og þó sérstaklega framboð John McCain. Barnes var, líkt og aðrir bandarískir íhaldsmenn og allir stjórnmálaskýrendur, frekar svartsýnn á sigurmöguleika McCain. Barnes viðurkenndi það sem allir sem fylgjast með bandarísku forsetakosningunum hafa fyrir löngu veitt athygli, nefnilega [...]
Fært inn 7. júlí, 2008 undir Forsetakosningar, Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 1
BNA: 63% styðja hjónabönd samkynhneigðra
Samkvæmt nýrri könnun Gallup eru 63% Bandaríkjamanna andvígir því að ríkið komi í veg fyrir að samkynhneigt fólk fái að giftast. USA Today: Six in 10 Americans say the government should not regulate whether gays and lesbians can marry the people they choose, a survey finds. As same-sex couples line up to get marriage licenses [...]
Fært inn 4. júní, 2008 undir Menningarstríðin, Moral majority, Sagnfræði.
Ummæli: 12
Sönn kristni gengur út á tvennt, og bara tvennt: andstöðu við fóstureyðingar og homma…
Það er oft gaman að fylgjast með því fólki sem gólar hæst um hversu „kristið“ það er. Þetta fólk fengið umtalsverða athygli frá repúblíkönum sem hafa fattað að það er auðvelt að leiða einfeldninga á asnaeyrunum. Í kringum þessa asnateymingu hefur síðan vaxið upp heljarinnar iðnaður, þar á meðal allskonar félagasamtök sem sjá um að virkja [...]
Fært inn 3. júní, 2008 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: engin
McCain styður skilyrðislaust bann við öllum fóstureyðingum
John McCain, sem hefur markaðssett sjálfan sig sem einhverskonar „hógværan“ eða „skynsamann“ hægrimann, pólítíkus sem er tilbúinn til að segja sínum eigin flokki til syndanna og taka afstöðu sem gengur þvert á flokkslínuna, er víst ekki hógværari, skynsamari eða sjálfstæðari en svo að hann hefur nú lýst því yfir að hann muni styðja opinbera stefnu [...]
Fært inn 11. maí, 2008 undir Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 1
Köllum hlutina sínum réttu nöfnum: Ógiftar ungar mæður eru HÓRUR!
Þetta hefur verið að gleðja bandaríska bloggara í dag og gær: Larry Liston, ríkisþingmaður Repúblíkana í Colorado útskýrði fyrir okkur hver væri raunveruleg ástæða þess að ógiftar ungar konur verða óléttar: Þær eru druslur! Liston used the derogatory term during a Republican caucus lunch on health care to express his view that unmarried teen parents are [...]
Fært inn 9. febrúar, 2008 undir Moral majority, Siðgæði.
Ummæli: engin
Romney mun stoppa öfgahomma-pláguna!
Lesendur hafa líklega tekið eftir því að ég er búinn að vera í jóla og nýársfríi undanfarnar vikur. Upprunalega ætlaði ég reyndar að blogga eitthvað áður en prófkjörsfundir verða haldnir í Iowa, en núna er staðan bara of tvísýn því svo lítur út fyrir að Iowabúar geti ekki gert upp við sig hver yrði besti [...]
Fært inn 3. janúar, 2008 undir Forsetakosningar, Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 3
Anti-gay skátaforingi handtekinn fyrir… já, akkúrat það!
Hversu oft skyldi maður hafa sé þessa frétt? Sagan byrjar fyrir nokkrum árum. Í Kalíforníu höfðu íhaldssamir skátaforingjar sem höfðu áhyggjur af hnignun „hefðbundinna fjölskyldugilda“ lent í útistöðum við borgaryfirvöld í Berkeley, sem fannst óviðeigandi að almannafé væri varið til að styðja samtök sem gætu ekki viðurkennt jafnan rétt alls fólks. Fyrir skátunum fór skátaforinginn [...]
Fært inn 10. desember, 2007 undir Moral majority.
Ummæli: 2
Paþólógískur hommaáhugi íhaldsmanna
Stundum virðist áhugi bandarískra íhaldsmanna á samkynhneigð vera frekar sérkennilegur. Það er til dæmis ekki einleikið hversu margir stjórnmálamenn Repúblíkana, sem hafa getið sér frægðar fyrir eldheita baráttu sína fyrir „hefðbundin fjölskyldugildi“ og skelegga baráttu gegn samkynhneigð, hafa verið afhjúpaðir í skápnum og handteknir fyrir ósiðsamlega kynferðislega tilburði á almannafæri. Og það þarf ekki að [...]
Fært inn 21. nóvember, 2007 undir Ímyndunarveiki, Moral majority, Siðgæði.
Ummæli: 7
Af hverju Hollywood Fred Thompson er ömurlegur kandídat fyrir Repúblíkanaflokkinn
Einn af fyndnari forsetaframbjóðendum Repúblíkanaflokksins er Hollywood „Fred“ Thompson. Margir Repúblíkanar biðu framboðs Hollywood „Fred“ með óþreyju, því þeir töldu að hann myndi sigurstranglegri kandídat en klæðskiptingurinn og raðframhjáhaldarinn Giuliani, New England Flipflopparinn Romney eða gamalmennið McCain. Það virtist ekki skipta neinu að Hollywood „Fred“ hefur ekki tekið alvarlega afstöðu um nein mikilvæg kosningamál, heldur hefur látið sér nægja að tala [...]
Fært inn 21. september, 2007 undir Forsetakosningar, Karlmennska eða skortur á henni, Moral majority.
Ummæli: engin
Freedomfries lýsa yfir eindregnum stuðningi við Larry Craig
Allt síðan Larry Craig ákvað að hætta við að segja af sér hefur hann verið uppáhaldsstjórnmálamaður minn. Sérstaklega eftir að hann lýsti því yfir að hann hefði ráðið lögfræðinga til að fá játninguna sem hann gaf Minneapolislögreglunni til baka! Craig hefur meira að segja gengið svo langt að hafa móbílíserað stuðningsmenn sína til að sniðganga [...]
Fært inn 6. september, 2007 undir Moral majority.
Ummæli: 3