Eldri færslur fyrir 'Menningarstríðin'
KKK vs satanistakirkjan Babtist Westboro
Samkvæmt CNN lenti félagsmönnum tveggja ógeðfelldustu ofstækis og mannhaturssamtökum okkar daga, Ku Klux Klan og prívatkirkju predíkarans Fred Phelps, Westboro Babtist, saman við opinbera athöfn Barack Obama í hermannakirkjugarðinum í Arlington. Talsmaður Ku Klux Klan sakaði félagsmenn Westboro Babtist um að sverta minningu látinna hermanna, meðan dóttir predíkarans hélt því fram að siðferði félagsmanna KKK [...]
Fært inn 31. maí, 2011 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin, Spaugilegt.
Ummæli: 2
Allt hippunum að kenna
Bandarískir fjölmiðlar hafa í morgun fjallað um makalausa niðurstöðu einhverrar hvítþvottanefndar kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum á kerfisbundinni barnamisnotkun sem prestar hennar hafa stundað um áratuga skeið. Ástæðan er auðvitað alls ekki sú að yfirmenn kirkjunnar hafi almennt látið hjá líðast að refsa ódæðismönnunum eða koma þeim í hendur lögreglu eða óheilbrigt andrúmsloft innan kirkjunnar. Nei. Kaþólska [...]
Fært inn 18. maí, 2011 undir Menningarstríðin.
Ummæli: 1
Guð skapaði líka homma
Nokkuð einföld kristileg rök fyrir réttindum samkynhneigðra. Steve Simon, þingmaður demókrata fyrir eitt af úthverfum Minneapolis í fylkisþingi Minnesota hvetur kollega sína til að spyrja sjálfa sig hversu mikið af hommum og lesbíum þarf Guð að skapa til að sannfæra okkur um að það sé hans vilji að samfélag manna sé fjölbreytilegt? (via Crooks and Liars): [...]
Fært inn 7. maí, 2011 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 2
Mögnuð auglýsing kristinna ofstækissamtaka
Baráttan gegn fóstureyðingafaraldrinum er, ásamt stríðinu gegn hommaplágunni, eitt helsta áhugamál kristinna afturhaldsafla í Bandaríkjunum. Þessi tvö mál hafa til þessa nýst repúblíkönum sérlega vel enda hefur þeim tekist að móbílísera móðursjúkt fólk til að kjósa sig á þeim forsendum að þeir ætli sér að endurreisa “fjölskyldugildi“, sem felast að því er virðist fyrst og fremst í því að [...]
Fært inn 20. október, 2010 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 17
12 þrepin á samkynhneigð
Það eru auðvitað orðnar gamlar fréttir að mennigarlegir íhaldsmenn í Bandaríkjunum eða fjölskyldugildaframbjóðendur repúblíkana hafi heimskulegar skoðanir á málefnum sem tengjast kynferði fólks, sérstaklega samkynhneigð. Það er hins vegar forvitnilegt að sjá að frambjóðendur Teboðshreyfingarinnar skuli hafa nákvæmlega sömu skoðanir. Ken Buck, frambjóðandi repúblíkana til öldungadeildarinnar í Colorado hélt því fram um helgina að samkynhneigð [...]
Fært inn 18. október, 2010 undir Menningarstríðin.
Ummæli: 1
BNA: Meirihluti styður hjónabönd samkynhneigðra
Undanfarin ár hafa frétta- og stjórnmálaskýrendur margoft bent á að stuðningur við réttindi samkynhneigðra í Bandaríkjunum fari vaxandi ár frá ári – en til þessa hefur þó verið meirihluti gegn því að samkynhneigðir fái að gifta sig eins og gagnkynhneigðir. Fyrir um mánuði síðan vakti það því athygli að könnun CNN sýndi að meirihluti aðspurðra [...]
Fært inn 21. september, 2010 undir Barátta gegn umbótum, Menningarstríðin.
Ummæli: 1
Gegn sögufölsunarhernaði múslima
Undanfarið hefur verið töluverð umræða um þá ógn sem Bandaríkjunum stafar af alheimssamsæri múslima um að myrða frelsið og græta baby jesus með því að innrétta félagsmiðstöð og mosku í fyrrverandi saumastofu í næsta nágrenni við hinn heilaga byggingarreit, „ground zero“. En það er ekki bara með ósvífnum og frekjulegum kröfum um að fá að [...]
Fært inn 20. september, 2010 undir Menningarstríðin, Stríðið gegn hryðjuverkum.
Ummæli: 22
Gingrich er flugumaður Al Qaeda
Undanfarið hafa spunnist miklar umræður um hvort múslimar í New York megi koma sér upp félagsmiðstöð og bænahúsi í byggingu sem stendur tvær húsaraðir frá „ground zero“. Umræður er kannski ekki rétta orðið. Það væri réttara að segja að hægrisinnaðir ofstopamenn og svo vindbelgir, vindhanar og lýðskrumarar repúblíkanaflokksins, hafi haldið uppi háværri grenju og gargherferð [...]
Fært inn 9. ágúst, 2010 undir Menningarstríðin.
Ummæli: engin
Allir múslimar hlægja og pissa á grafir 9/11 fórnarlambanna
Það virðist vera að færast aukinn hti í baráttu lýðskrumara og ofstækismanna innan repúblíkanaflokksins gegn hinni svokölluðu „Ground Zero Mosque“ – sem er í raun félagsmiðstöð/bænahús sem stendur til að innrétta í hús sem stendur tveimur húsaröðum (blocks) frá „Ground Zero“, þar sem World Trade Center stóð. Það á því ekki að byggja 13 hæða [...]
Fært inn 23. júlí, 2010 undir heimska og fáfræði, Menningarstríðin.
Ummæli: 9
Enn og aftur: Gingrich er bjáni
Eða ómerkilegur og óheiðarlegur lýðskrumari. Annað hvort. Undanfarnar vikur hefur töluvert verið rætt um hvort múslimar megi reisa félagsmiðstöð, sem mun meðal annars innihalda eitt stykki bænahús, í námunda við „Ground zero“, þar sem World Trade Center stóð áður. Og hægrimenn eru auðvitað í öngum sínum yfir slíkri ósvífni. Sarah Palin, sem er gagnleg sem [...]
Fært inn 22. júlí, 2010 undir heimska og fáfræði, Menningarstríðin, Tepokalýður, múgæsingur.
Ummæli: 8
Hugmynd: Bönnum samkynhneigð!
Nokkurnveginn allt blogóspherið hefur í dag verið að skemmta sér yfir þessari bráðsniðugu framboðsauglýsingu. Snillingurinn heitir Ernest J. Pagels Jr. og sækist eftir tilnefningu repúblíkana sem frambjóðandi flokksins til öldungadeildarinnar fyrir Wisconsin-ríki. Og helsta baráttumál þessa Pagel herramanns er að banna samkynhneigð. Með lögum. Og svo auðvitað aðra siðspillingarplágur á borð við fóstureyðingar og klám. [...]
Fært inn 8. júlí, 2010 undir Kosningar og framboð, Menningarstríðin.
Ummæli: 4
Af ljótum hugsunum
Tilfellið er að það virðist einhvernveginn sem það sé ekki nokkur maður í raun hómófóbískur. Allt fólk sem er með einum eða öðrum hætti á móti því að samkynhneigðir hafi sömu réttindi og annað fólk, og fái að njóta fullrar virðingar samfélagsins, hefur einhverjar mjög svo óhómófóbískar skýringar á þessari afstöðu sinni. Ein sú skemmtilegasta [...]
Fært inn 9. júní, 2010 undir Menningarstríðin, Moral majority.
Ummæli: 4
Forpokakvendið Tipper Gore
Í tilefni þess að Al Gore og Tipper Gore hafa tilkynnt að þau hyggjist skilja hafa bandarískir bloggarar verið að velta upp ýmsum hliðum á sambandi þeirra. Flestir virðast uppteknir af frægum kossi þeirra á landsfundi demokrata 2000. Varúð. myndbandið inniheldur myndefni sem mörgum kann að þykja óþægilegt Semsagt áminningu um að Júdasinn, mannsveskjan og [...]
Fært inn 2. júní, 2010 undir Menningarstríðin.
Ummæli: 3
DADT afnumið í þinginu!
Þingið hefur samþykkt breytingartillögu við lög um fjárveitingar til hersins þess efnis að DADT verði afnumið. Huffington Post: The House on Thursday delivered a victory to President Barack Obama and gay rights groups by approving a proposal to repeal the law that allows gays to serve in the military only if they don’t disclose their [...]
Fært inn 28. maí, 2010 undir Menningarstríðin.
Ummæli: engin
Morðóðir nasiskir hommar ógna Bandaríkjaher?
Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með móðursýkislegum viðbrögðum íhaldssamra kristinna öfgamanna við ákvörðun Obama og demokrata um að láta loksins verða af því að viðurkenna rétt samkynhneigðra til að sinna herþjónustu. Hugsun demokrata er væntanlega sú að hommar og lesbíur sem á annað borð vilja fá að taka þátt í hernaði og fara í [...]
Fært inn 27. maí, 2010 undir Ímyndunarveiki, Menningarstríðin, Moral majority, Sagnfræði.
Ummæli: 5