Eldri færslur fyrir 'Menning og listir'

Rányrkja og nýlendukúgun, Hannes og Cameron

Fjölskyldan fór á mjög svo skemmtilega kvikmynd í eftirmiðdaginn, Avatar. Alveg hreint frábær skemmtun. Fullkomin blanda sci-fi og ævintýramyndar. Og eins og í öllum góðum ævintýrum er boðskapurinn ótrúlega einfaldur. Yfirgangur og græðgi eru vond, og réttlætið og ástin sigra að lokum. Nokkuð einfalt. Svo eru líka klassísk sci-fi skilaboð um að það eigi ekki að [...]

Hvernig á að halda upp á svört jól? Blackwaterjólaskrautið komið!

„Friðargæslufyrirtækið“ Blackwater er víst búið að vera eitthvað í fréttum undanfarið, og það er því ekki úr vegi að benda á þetta gullfallega jólaskraut – því eins og bloggarinn Copyranter bendir á „Because nothing says „Joy To The World“ like mass murder in Mesopotamia!“ Hver málaliðajólakúla kostar ekki nema 11 dollara og 50 sent, og sé [...]

Plamegate og Scooter

Þartil Lewis Libby braust fram á sjónarsviðið tengdum við öll nafnið Scooter við miðevrópskt nútímatónskáldatríó. Mér dat í hug að halda því fram að ástæða þess að ég hef ekkert skrifað um Plamegate og Lewis Libby sé að ég sé að reyna að mótmæla því að hann hafi svert nafnið Scooter. Þegar fólk [...]

McDonalds sækir um einkaleyfi á samlokugerð

Því samlokugerð er iðnframleiðsla sem krefst flókinna vísinda, og full ástæða til að McDonalds, sem segist hafa fullkomnað samlokugerðarlistina, fái að njóta þess… Fyrirtækið hefur sótt um einkaleyfi á „tækjum og aðferðum“ sem eru notaðar við samlokugerð:

The burger company says owning the ‘intellectual property rights’ would help its hot deli sandwiches look and taste [...]

Anti Defamation League skerst í leikinn Borat-Kasakstan deilunni: “Borat er dóni, og segir ljóta hluti”

Bandarísk blogg hafa verið að fjalla um þrjá hluti undanfarna tvo daga: 1) Macaca, 2) Foley, 3) Borat. Og fyrir vikið höfum við öll gleymt NIE skýrslunni – en það er nógur tími fram að kosningum til að velta því fyrir sér utanríkisstefna bandaríkjastjórnar og hversu hörmulega mislukkuð, og næstum fyndin hún er, þ.e. ef [...]

Pulsa á priki, vafin inní pönnuköku með súkkulaðibitum, mmm…

Matarmenning Bandaríkjanna er einstök. Í haust fór ég á Minnesota State Fair og keypti mér djúpsteiktan Snickers á priki, velt uppúr flórsykri - en þetta toppar það nú eiginlega. ‘Jimmy Dean Chocolate Chip Pancakes & Sausage on a Stick‘. Yummy!

Htinar í kolunum í Kazakstan – Borat deilunni

Þetta Borat-Kasakstan mál hefur vitaskuld alls ekkert með bandarísk samfélags- eða stjórnmál að gera, nema kannski að Kasakstan er svo annt um hvað bandaríkjamönnum finnst um sig og sitt fallega land, að landkynningarráðuneytið hefur keypt upp heilar FJÓRAR blaðsíður af New York Times í dag til þess að auglýsa ágæti og fegurð landsins, gáfur og glæsileik þjóðarinnar, og mikilfengleik sögu og menningar. (Auglýsingarnar [...]