Eldri færslur fyrir 'Kristni og „kristni“'
KKK vs satanistakirkjan Babtist Westboro
Samkvæmt CNN lenti félagsmönnum tveggja ógeðfelldustu ofstækis og mannhaturssamtökum okkar daga, Ku Klux Klan og prívatkirkju predíkarans Fred Phelps, Westboro Babtist, saman við opinbera athöfn Barack Obama í hermannakirkjugarðinum í Arlington. Talsmaður Ku Klux Klan sakaði félagsmenn Westboro Babtist um að sverta minningu látinna hermanna, meðan dóttir predíkarans hélt því fram að siðferði félagsmanna KKK [...]
Fært inn 31. maí, 2011 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin, Spaugilegt.
Ummæli: 2
Guð skapaði líka homma
Nokkuð einföld kristileg rök fyrir réttindum samkynhneigðra. Steve Simon, þingmaður demókrata fyrir eitt af úthverfum Minneapolis í fylkisþingi Minnesota hvetur kollega sína til að spyrja sjálfa sig hversu mikið af hommum og lesbíum þarf Guð að skapa til að sannfæra okkur um að það sé hans vilji að samfélag manna sé fjölbreytilegt? (via Crooks and Liars): [...]
Fært inn 7. maí, 2011 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 2
Mögnuð auglýsing kristinna ofstækissamtaka
Baráttan gegn fóstureyðingafaraldrinum er, ásamt stríðinu gegn hommaplágunni, eitt helsta áhugamál kristinna afturhaldsafla í Bandaríkjunum. Þessi tvö mál hafa til þessa nýst repúblíkönum sérlega vel enda hefur þeim tekist að móbílísera móðursjúkt fólk til að kjósa sig á þeim forsendum að þeir ætli sér að endurreisa “fjölskyldugildi“, sem felast að því er virðist fyrst og fremst í því að [...]
Fært inn 20. október, 2010 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 17
Morðfýsn múslima og uppgerðarumburðarlyndi
Í allri umræðunni um hina svokölluðu „Ground Zero mosque“, þ.e. fyrirætlun múslima í New York að innrétta félagsheimili, með bænasal, í húsbyggingu tvær húsaraðir frá „ground zero“, hafa andstæðingar moskunnar verið sakaðir um hatur á múslimum. Þetta hefur þeim þótt ægilega ósanngjarnt: Það sé ekki eitt einasta hatursbein í þeirra föðurlandsholla og friðelskandi líkama. Ónei. [...]
Fært inn 13. september, 2010 undir Kristni og "kristni".
Ummæli: 9
Skegglausir brenna í helvíti
Brother Steve Winter hefur nokkrum sinnum poppað upp víðsvegar um veraldarvefinn, eða veraldartúburnar eins og Ted Stevens, öldungadeildarþingmaður frá Alaska vildi meina, eins og frægt er orðið, tjáð hér í teknórímixi. Í vor skrifaði ég stutta færslu um tónlistarmyndband Steve Winter „Obama-Muslim 911″ (Sounds like a muslim to me“. Hrein snilld. En hver er þessi snillingur? [...]
Fært inn 5. ágúst, 2010 undir Kristni og "kristni", Spaugilegt.
Ummæli: 3
Bænadagur – Aðskilnaður ríkis og kirkju
Undanfarið hefur verið dálítil umræða í Bandaríkjunum um hugmyndir margra trúaðra hægrimanna um nauðsyn þess að einhverskonar „national prayer day“ væri haldinn hátíðlegur. Bandaríkjaþing hafði samþykkt lög þess eðlis árið 1952, og 1988 var ákveðið að fyrsta fimmtudag í maí hvert ár ætti forsetinn að hvetja Bandaríkjamenn til að biðjast fyrir. Í síðustu viku kvað alríkisdómstóll í [...]
Fært inn 20. apríl, 2010 undir Kristni og "kristni".
Ummæli: 1
Á jólunum minnumst við krossfestingar og pínu Jesú
Undanfarin ár hefur „stríðið gegn jólunum“ verið fastur liður fyrir hver jól í Bandaríkjunum. Þessi átök eru alveg hreint bráðskemmtileg, og kominn tími til að við Íslendingar flytjum þau inn. Átökin um hvort Ríkissjónvarpið útvarpi jólaskemmtun andhommasöfnuðarins Fíladelfíu inn á hvert heimili eru kannski til marks um að við getum hlakkað til árlegra trúarátaka fyrir hver [...]
Fært inn 9. desember, 2009 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 3
Beðið fyrir dauða Obama
Undanfarna daga hafa bandarískir fjölmiðlar og bloggarar veitt því athygli að „kristnir“ íhaldsmenn eru farnir að dreifa límmiðum, stuttermabolum, jafnvel böngsum og ýmsum öðrum varningi með áletruninni: „Biðjum fyrir Obama, Psalm 109:8″. Þessi bænaáskorun virðist vera nokkuð vinsæl, og þessi varningur rennur allur út eins og heitar lummur. Sumt af varningnum ber teksta áttunda erindis: „Let [...]
Fært inn 20. nóvember, 2009 undir Kristni og "kristni".
Ummæli: 9
Jeebus og ósýnilega höndin redda öllu
Eitt af merkilegri einkennum valdatíðar Bush var hversu mikið af vanhæfum aulum komst til valda og áhrifa innan stjórnkerfisins. Ein ástæða var vitaskuld sú að Repúblíkanaflokkurinn, og þó sérstaklega repúblíkanafokkur Bush, trúir því að „allt séu stjórnmál“ og að það sem mestu skipti sé því að embættismenn hafi réttar pólítískar skoðanir. Frægasta dæmið um þetta [...]
Fært inn 15. nóvember, 2009 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin, Quagmire/Afghanistan/Írak.
Ummæli: engin
Kristilegt Twitter
Kristilegir íhaldsmenn í Bandaríkjunum hafa þá undarlegu áráttu þegar kemur að dægurmenningu og neysluvörum að þurfa stöðugt að enduruppgötva hjólið, stimpla það „Jesus-approved 100% Christian Contents“. Og selja það svo hinum sanntrúuðu með ágætum hagnaði. Nýjasta dæmið er „kristilegur“ Twitter – sem heitir „Christian Chirp“. Sem á, ef ég skil rétt, að vera staður þar sem [...]
Fært inn 3. nóvember, 2009 undir Beck, Limbaugh, osfv, Kristni og "kristni".
Ummæli: 2
Bókabrenna á hrekkjavöku
Kirkja í Norður Karólínu ætlar að efna til gamaldags fjölskylduskemmtunar á hrekkjavöku – hefðbundinnar bókabrennu! En ekki hvaða bókabrennu sem er. Ónei. Engar Harry Potterbækur eða Elvisplötur, heldur biblíur. Rangar biblíuþýðingar, skv. heimasíðu kirkjunnar: Halloween Book Burning Burning Perversions of God’s Word Oct. 31, 2009 7pm – Until Great Preaching and Singing Come to our [...]
Fært inn 24. október, 2009 undir Kristni og "kristni".
Ummæli: 3
Af menningarlegum níhílistum
Bill Donohue, sem fer fyrir samtökunum „Catholic League“, sem gefa sig út fyrir að vera einhverskonar „kristin“ samtök sem berjast fyrir „kristnum“ gildum, en hafa, þegar betur er að gáð, bæði satanisma og mannhatur á stefnuskrá sinni (sönn staðreynd!), skrifar mjög svo áhugaverðan dálk á í The Washington Post. Við skulum gefa Donohue orðið: There are many [...]
Fært inn 20. október, 2009 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 1
Kristileg vanræksla líka glæpur
Merkilegt mál. NYT: CHICAGO — A Wisconsin couple were sentenced to jail time on Tuesday for failing to seek medical attention for their ill daughter, renewing a debate in some circles over whether states should allow parents to practice spiritual treatments. … Their daughter, Madeline Kara Neumann, 11, died from untreated diabetes on March 23, [...]
Fært inn 8. október, 2009 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 1
Þegar Jesú gaf Bandaríkjunum stjórnarskrá
Wonkette var með tengil á þetta bráðskemmtilega listaverk einhvers manns að nafni McNaughton, sem sýnir á ljóslifandi hátt hvernig Jesús kom og gaf Bandaríkjunum stjórnarskrá. Ef ég skil skýringartekstann með listaverkinu er það málað sem svar við deilum um samband ríkis og kirkju í Bandaríkjunum og tilraun listamannsins til þess að „set the record straight“. [...]
Fært inn 7. október, 2009 undir Kristni og "kristni", Menningarstríðin.
Ummæli: 1
Fjöldauppsagnir hjá afturhaldsöflunum!
Þetta gleður svo sannarlega á þessum síðustu og verstu tímum. Ekki vegna einhverrar Þórðargleði, heldur vegna þess að það er alltaf gott að vita að það er eitthvað réttlæti í þessum heimi, og að það sé ekki bara heiðvirt fólk sem vinnur vinnuna sína sem missir vinnuna, heldur líka „the evildoers“! Focus on the Family, [...]
Fært inn 14. nóvember, 2008 undir efnahagsmál, Kristni og "kristni".
Ummæli: 1