Eldri færslur fyrir 'Kosningar og framboð'

Trump út – Gingrich inn

Samkvæmt Salon er forsetaframboð sjónvarpstrúðsins Donald Trump búið að renna sitt skeið á enda: Donald Trump’s fake presidential campaign is finished. Not officially (or … unofficially, or however you classify the de facto end of a fake campaign), but in the only venue that matters when you’re still not even close to an actual caucus [...]

Trump 2012

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum sem er að fylgjast með bandarískum stjórnmálum að sjónvarpstrúðurinn og hænsmennið Donald Trump þykist ætla að bjóða sig fram til forseta 2012, og þá auðvitað sem frambjóðandi Repúblíkanaflokksins, því reynslan af Söruh Palin sýnir að innihaldslausir ofstækisbjánar höfða til „grasrótar“ flokksins. Ein besta greiningin á framboði Trump birtist [...]

Kosningaauglýsing: EKKI kjósa!

Allar spár um niðurstöður kosninganna í byrjun nóvember benda til þess að demokratar hljóti skelfilega útreið. Nýjustu spár gera ráð fyrir að Repúblíkanar vinni um 50 sæti í fulltrúadeildinni og þó ólíklegt sé að demokratar eigi ekki eftir að missa meirihlutann í öldungadeildinni bendir allt til að meirihluti þeirra þar fari úr 59 niður í 52 eða [...]

Blowout, shmowout!

Stjórnmálaskýrendur úr röðum demokrata eru ekki tilbúnir til að samþykkja að það eigi að afskrifa flokkinn í haust: Huffingtonpostgrein Creamer er hér. Mjög sannfærandi, satt best að segja. Ég held t.d. að það sé rétt hjá Creamer að það er alls ekki gefið að sumir furðulegustu frambjóðendum repúblíkana til öldungadeildarinnar nái kjöri. Sharron Angle í [...]

Meiri geðveiki…

Þetta myndband er að fara sem eldur í sinu um veraldarvefina: (via Wonkette) Og jú, þetta er alvöru framboðsræða, en ekki einhverskonar elaborate sketch - það er til staður sem heitir Stark County í Ohio, og skv. The Review, sem er lókal fréttamiðill er til maður sem heitir Phil Davidson, og hann hefur setið í bæjarstjórn Minerva, [...]

Bandaríkjamenn kenna Bush um – ekki Obama

Það lítur út fyrir að Demokratar ætli sér að láta kosningarnar í haust snúast um Bush – kjósendur verði beðnir um að velja á milli eins versta forseta í sögu Bandaríkjanna, (fimmta versta, að mati sagnfræðinga), og svo Barack Obama. Ástæðan er sú að þó kjósendur séu ósáttir við Obama, og finnist hann ekki hafa [...]

Hugmynd: Bönnum samkynhneigð!

Nokkurnveginn allt blogóspherið hefur í dag verið að skemmta sér yfir þessari bráðsniðugu framboðsauglýsingu. Snillingurinn heitir Ernest J. Pagels Jr. og sækist eftir tilnefningu repúblíkana sem frambjóðandi flokksins til öldungadeildarinnar fyrir Wisconsin-ríki. Og helsta baráttumál þessa Pagel herramanns er að banna samkynhneigð. Með lögum. Og svo auðvitað aðra siðspillingarplágur á borð við fóstureyðingar og klám. [...]

Besta kosningaauglýsing allra tíma

The Whitest Kids You Know skets:

Meðbyr repúblíkana, Besti og Paul

Um helgina unnu repúblíkanar aukakosningu til þingsætis fyrsta kjördæmis Hawaii. Sigurinn vakti töluverða athygli, enda gátu fjölmiðlar talað um að Charles Djou hafi unnið „Obama’s home district“ – því Obama er jú fæddur á Hawaii. Þá þótti sumum sigurinn til marks um að repúblíkanar njóti augljóslega góðs af því að hafa sterkan meðbyr nú þegar styttist [...]

Demokratar haldi sínu í haust?

Í bandarískum stjórnmálum eru það gömul sannindi og ný að sá stjórnmálflokkur sem er við völd tapar þingsætum í fyrstu miðkjördæmiskosningunum (?, þ.e. mid-terms) – því eftir stóra kosningasigra (líkt og demokratar unnu 2008) verði alltaf eitthvað bakslag þar sem kjósendur fyllast efa um fyrra val sitt (fá „buyers remorse“) og sumir kjósendur flokksins úr fyrri [...]

Palin-Bachmann 2012: Tvöfalt youbetcha

Sarah Palin og Michelle Bachmann héldu sameiginlegan stjórnmála (?) fund í Minnesota um daginn til að safna peningum fyrir Bachmann. Auk frægðarpersónunnar Palin voru ýmsar aðrar frægðar- og fjölmiðlapersónur Repúblíkana mættar á svæðið. Þar á meðal Sean Hannety, þáttastjórnandi á Fox. Hannety spurði augljósu spurningarinnar: „Are either one of you considering a run for the [...]

Palin: Innihaldslaust celebrity

Repúblíkaninn Ross Douthat – sem tók við af Bill Kristol sem hafði verið „lightning rod conservative“ New York Times – skrifar áhugaverða grein um Söru Palin og Mike Huckabee í blaðið í morgun. Douthat byrjar á að benda á að Palin og Huckabee hafi verið einu frambjóðendur flokksins sem hafi vakið „genuine enthusiasm“ meðal kjósenda [...]

Veit þetta fólk ekkert í sinn haus?

Washington Post birti í morgun áhugaverða grein Dede Scozzafava, frambjóðanda repúblíkanaflokksins í 23 kjördæmi New York, og ástæður þess og aðdraganda að hún ákvað að draga framboð sitt til baka, og lýsa yfir stuðningi við Bill Owens, sem síðan vann í kosningunum 4 nóvember, og varð þar með fyrsti demokratinn í 142 ár til að [...]

Vísbendingar um dvínandi vinsældir Obama?

Fréttaskýrendur og fréttamenn á ýmsum virðulegum fjölmiðlum hafa haldið því fram að sigur repúblíkana í ríkisstjórnarkosningum í gær sé mikilvæg vísbending um vinsældir Obama. Sem er fráleitt. Ég tengdi í gær á færslu Nate Silver um þetta efni. Og svo er þessi punktur Yglesias líka góður: …by far the most ridiculous thing about the impulse [...]

Þingið þokast til vinstri

Niðurstaða aukakosninganna í Kalíforníu og New York í gær voru sögulegar. Sérstaklega þó niðurstaðan í New York. 23 kjördæmi ríkisins hefur verið öruggt vígi repúblíkanaflokksins síðan núverandi tveggja flokka kerfi varð til um miðja nítjándu öld. Í 140 ár hefur enginn demokrati sigrað í þessu kjördæmi. Sigur Bill Owens á frambjóðanda „Íhaldsflokksins“ Dough Hoffman er [...]