Eldri færslur fyrir 'Íslensk stjórnmál'

Biskupinn elskar líka skattsvikara

Er biskupinn að lýsa yfir stuðningi við Ingva Hrafn vegna þess að þeir tveir séu persónulegir vinir, eða leggur biskupinn í vana sinn að hringja í alla sem dæmdir eru fyrir brot á skattalögum? Eða er þetta kannski bara annað dæmi um ást biskupsins á glæpamönnum? Hvort sem menn gerast sekir um að nauðga konum [...]

Stjórnlagaþing fer ílla af stað

Ef marka má frétt Smugunnar virðist stjórnlagaþingið vera komið í undarlegar ógöngur, því samkvæmt Smugunni sitja meðlimir þessarar samkomu nú og bollaleggja sín á milli um innanhúsarkítektúr Alþingis: Setja verður upp öryggisgler á milli þingmanna og áhorfenda á þingpöllum til að tryggja öryggi alþingismanna að mati Daggar Harðardóttur stjórnlagaráðsfulltrúa en hún viðraði þessar hugmyndir í [...]

Nauðganahátíðin í Eyjum

Stórfurðulegt viðhorf Páls Scheving, formanns „Þjóðhátíðarnefndar“, til nauðgana og Stígamóta hefur vakið verðskuldað umtal og dregið athygli almennings að þeim hugsunarhætti sem ræður ríkjum meðal skipuleggjenda fylleríissamkomu sem haldin er hverja verslunarmannahelgi í Vestmannaeyjum. Páll hélt því fram á borgarafundi í Vestmannaeyjum að nærvera Stígamóta á þessari „Þjóðhátíð“ gæti með einhverjum hætti fjölgað nauðgunum á [...]

Óvinir ríkisins, ímyndaðir og raunverulegir

Hugmyndir innanríkisráðuneytisins um að veita lögreglunni auknar heimildir til að fylgjast með borgurunum, svokallaðar „forvirkar rannsóknarheimildir“ hafa vakið töluverða umræðu í netheimum. Vinstrisinnaða vefritið Smugan hefur fylgt þessu máli mjög vel eftir (1, 2, 3, 4, 5), sömu leiðis róttæka vefritið Róstur (1, 2) og Haukur Már Helgason heimspekingur hefur líka skrifað tvær (1, 2) góðar [...]

Innanríkisnjósnahugmyndir ríkisstjórnarinnar

Allar hugmyndir um að veita lögreglu „auknar“ og „forvirkar“ rannsóknarheimildir, þ.e. að leyfa lögreglunni að hafa eftirlit með fólki sem hún telur líklegt til að fremja glæpi eru stórhættulegar. Breytir þá engu hvort þær koma frá Ögmundi Jónassyni, Birni Bjarnasyni, Alberto Gonzales eða Felix Dzerzhinsky. Talsmenn forvirkra rannsókna á borgurunum telja að það sé allt [...]

Bloggheimar til varnar Baldri Hermanssyni

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með viðbrögðum í netheimum við máli óþverrabloggarans Baldurs Hermanssonar. Baldur hefur margsinnis, með ógeðslegu málfari, farið langt yfir þær línur sem gilda í mannlegum samskiptum á netinu. Allur samskiptastíll Baldurs á bloggi hans og í athugasemdaskrifum á bloggi og Facebook einkennist af ótrúlegum dónaskap í garð samborgaranna, og þó sérstaklega kvenna. [...]

Skólastjórnendur Flensborgar taka á óþverraskrifum Baldurs

Um helgina komst í hámæli að Baldur Hermansson, kennari við Flensborgarskóla, hefði það fyrir sið að „grína“ um að beita fólk ofbeldi vegna pólítískra skoðana þess og að nauðga konum sem hann telur femínista, eða almennt að beita þær kynferðislegu ofbeldi. Þessi viðurstyggðarórar Baldurs slógu vitaskuld marga, en það þótti ekki heldur sérkennilegt hvernig stjórnendur skólans [...]

Rangfærslur starfsmannastjóra Alþingis

Starfsmannastjóri Alþingis,  Karls M. Kristjánsson,  skrifar langa grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fjallar af einstaka fáfræði og fordómum um mál nímenninganna sem sýknaðir voru af fráleitum ásökunum um skipulagða „árás“ á Alþingi. (Umfjöllun Eyjunnar um greinina má sjá hér. Umfjöllun Smugunnar má sjá hér. Mótmæli ritstjórnar Kastljóss við rangfærslum Karls má svo lesa [...]

Ofbeldisóramenn og Flensborgarskóli

Moggabloggið er merkilegt. Fyrir áhugamenn um lágkúru og óþverrahugsun er það oft hreinasta gullnáma.  Eftir að héraðsdómur staðfesti að nímenningarnir svokölluðu hefðu verið í fullum rétti þegar þeir ásamt um 20 öðrum hugðust mótmæla getuleysi stjórnvalda þann 8. desember 2008 og sýknaði þau af árás á Alþingi, húsbroti og tilraun til að hleypa upp löglegum fundi steig [...]

Ásta Ragnheiður fer með rangt mál

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir heldur því fram í viðtali við blaðamenn Fréttablaðsins í dag að hún hafi ekki átt neina aðkomu að máli nímenninganna sem sakaðir voru um að hafa ráðist á Alþingi og reynt að svipta það sjálfræði sínu. Ásta Ragnheiður segir: „Ég mun ekki tjá mig neitt um þetta. Þetta gerðist fyrir mína tíð [...]

Hlutur harðra hægrimanna óeðlilega stór

Það hefur spunnist dálítil umræða um tölfræðiathugun sem ungur Heimdellingur og hagfræðinemi, Vignir Már Lýðsson, gerði á gestum í þætti Egils Helgasonar, „Silfur Egils“. Smáfuglum AMX þykir t.d. mikið til þessarar rannsóknar koma, og telja hana sanna ofsóknaróra þá sem margir hægrimenn virðast ganga með, þ.e. að þeir séu fórnarlömb einhverskonar skipulagðra ofsókna, allir leggist [...]

Fyrrum ráðherra delerar

Því það heitir að delera þegar menn tala tómt rugl sem á sér ekki neina stoð í raunveruleikanum. En semsagt. Einar Kristinn Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra, heldur úti bloggsíðu á moggablogginu þar sem hann skrifar um mál nímenninganna sem ákærðir eru fyrir „árás“ á Alþingi. Svo virðist sem sem Einar, sem var ásamt Össuri Skarphéðinssyni kallaður sem vitni [...]

Ímynduð Eco-hryðjuverkaógn og árásir lögreglu á undirstöður lýðræðisins

Það er löngu kominn tími til að við Íslendingar tökum til endurskoðunar hvernig rætt er um aktívista almennt og sérstaklega umhverfisaktívista. Það er ekki hægt að horfa framhjá því að þessi umræða hefur einkennst af ákveðinni móðursýki og fórdómum. Fyrir nokkrum árum var mikið talað um „atvinnumótmælendur“ – og í kommentakerfum og á moggablogginu er [...]

Liveblogg frá réttarhaldi nímenninganna

Það er rétt að vekja athygli á því að hægt er að lesa nokkurnveginn orðrétta lýsingu á öllum málflutningi í réttarfarsa ákæruvaldsins að undirlagi skrifstofustjóra Alþingis gegn níu manns sem ætluðu sér að heimsækja Alþingi 8 desember á vefnum Rvk9.org. Stór hópur stuðningsmanna og vina nímenninganna hefur unnið að því að skrifa upp allt sem fram [...]

Morgunblaðið skáldar fréttir

Í gær birtist á mbl.is frétt þess efnis að Attac samtökin krefðust þess að ríkisstjórnin rifti samstarfi sínu við AGS. Frétt Mbl.is var að stórum hluta byggð á fréttatilkynningu frá Íslandsdeild Attac samtakanna, en fréttaskrifari gerði þó tilraun til að setja þessa kröfu í samhengi: Stjórn Íslandsdeildar Attac fer fram á að ríkisstjórn Íslands slíti [...]