Eldri færslur fyrir 'Íhaldzmenn'

Íhaldsnörd rífur í sig fyrrverandi kærustu í beinni útsendingu

Vanmetnasta kapalsjónvaprsstöð Bandaríkjanna er vafalaust CSPAN. CSPAN 1 og 2 eru kapalsjónvarpsstöðvar sem sendir út frá bandaríska þinginu, bæði úr þingsal og af opnum nefndarfundum og þingyfirheyrslum, frá pólítískum fundum, borgarafundum og yfirleitt allar ræður og ávörp forsetans og annarra æðstu embættismanna ríkisins. Um helgar er CSPAN með símatíma þar sem áhorfendur geta hringt inn [...]

Nýlenduhugsunarháttur Obama

Það vakti mikla athygli um daginn þegar lýðskrumarinn Newt Gingrich lýsti því yfir að Obama sýndi af sér „Kenyan, anticolonial behavior“. Ummælin þóttu svo fráleit og ósvífin að Gingrich, sem til þessa hefur haft nokkurnveginn óheftan aðgang að fjölmiðlum með skoðanir sínar og analýsur á stjórnmálaástandinu hefur almennt verið talinn einn af „hugsuðum“ repúblíkanaflokksins, og hefur [...]

Sjálfsmorðssáttmáli repúblíkana

Einn af íhaldssömum dálkahöfundum Washington Post, Kathleen Parker, skrifar áhugaverða grein í sunnudagsblað WaPo um „tíu boðorð íhaldsmennskunnar“ sem nokkrir úr forystuliði flokksins vilja að flokkurinn innleiði. Hugmyndin með boðorðunum er að frambjóðendum sem hafa svikið tvö boðorðanna verði meinað um stuðning flokksins. Þessi boðorð ganga út á hluti eins og andstöðu við „Obamacare“, skilyrðislausan [...]

Dauði íhaldsstefnunnar

Ef maður vill fá innsýn í hugarheim og hugsun þess sem segja má að sé „elíta“ hægrimennskunnar í Bandaríkjunum er ágætt að lesa dálkahöfunda Washington Post. Dálkahöfundar WaPo, sem flestir eru eindregnir hægrimenn, tilheyra því sem kalla verður „establishment republicans“, fínir menn á með þverslaufur, sem myndu allir skrifa með zetu ef þeir væru Íslendingar. Einn þessara [...]