Eldri færslur fyrir 'Heimskreppa 21. aldar'

Skattahækkana- og fjárlagahallakóngurinn Obama

Helsta gagnrýni teboðshreyfingarinnar á Obama er sú að hann sé „a tax and spend liberal“, ólíkt repúblíkönum sem reki aðhaldssama og ábyrga fjármálastjórn. Og til að stöðva skattahækkanir Obama og koma í veg fyrir að hann geti haldið áfram að stækka fjárlagahallann þurfi því að kjósa repúblíkana til valda. Fyrir utan þetta síðasta, að repúblíkönum [...]

Afrakstur brauðmolahagfræði er ójöfnuður

Undanfarið hefur vaknað töluverð umræða um vaxandi ójöfnuð í bandarísku samfélagi. Það hefur í mörg ár verið vitað að ójöfnuður hefur aukist í Bandaríkjunum síðan í kringum 1980 – og að þessi ójöfnuður hafi farið hratt vaxandi á síðustu árum. Slík gagnrýni var hins vegar lengi vel slegin út af borðinu sem einhverskonar vinstrisinnað væl, [...]

Ruglið um kvenleg gildi í fjármálaheiminum

Ein allra vitlausasta vangaveltan sem kom fram eftir hrun var sú að nú væri með einhverjum hætti „runnin upp“ einhver ný tíð „kvenlegra gilda“. Ekki vegna þess að það hafi verið rugl að áhættusækin og rúnkkennd fótboltastemming sú sem einkenndi allan íslenska fjármálaheiminn, eða fjármálaheiminn almennt, hafi verið ein róta vandans. Ég er ekki í [...]

Bandaríkjamenn kenna Bush um – ekki Obama

Það lítur út fyrir að Demokratar ætli sér að láta kosningarnar í haust snúast um Bush – kjósendur verði beðnir um að velja á milli eins versta forseta í sögu Bandaríkjanna, (fimmta versta, að mati sagnfræðinga), og svo Barack Obama. Ástæðan er sú að þó kjósendur séu ósáttir við Obama, og finnist hann ekki hafa [...]

Félagsleg húsnæðislán og undirmálslán

Um daginn skrifaði ég stutta færslu um þá merkilegu staðreynd að fólk sem á hús í Bandaríkjunum sem kosta yfir eina milljón dollara (um 120 milljón krónur) er líklegra til að ganga frá eignum sínum og hætta að borga af fasteignalánunum en fólk sem á fasteignir sem eru ódýrari. Þetta virðist sérstaklega eiga við í [...]

Auðmenn hlaupa frekar frá skuldum

Í New York Times í morgun var mjög athyglisverð frétt um bandarísku húsnæðislánakrísuna. Fréttin er einfaldlega sú að auðmenn – fólk sem á hús sem kosta meira en eina milljón dollara eru mun líklegri en venjulegt fólk til að hætta að borga af lánunum. Og ekki vegna þess að auðmenn séu almennt í hræðilegum kröggum [...]

Skiplögð glæpastarfsemi og fjármálakreppan

Dan Froomkin skrifaði í gær ágæta grein um glæpastarfsemi fjármálafyrirtækja og lykilstarfsmanna þeirra og stjórnenda og aðdraganda fjármálakreppunnar: The securities fraud case against Goldman Sachs is a powerful reminder that the financial crisis responsible for millions of lost jobs and lost homes wasn’t just the result of market vagaries and regulatory failure — it was [...]

Kreppan búin. Jibbí!

Stöplarit dagsins: Mánaðarleg fjölgun starfa í Bandaríkjunum síðan kreppan hófst. Súlurnar skipta um lit þegar kreppan hættir að dýpka, og það byrjar að styttast í land. Það er svo skemmtileg tilviljun að súlurnar eru rauðar meðan Bush var við völd og verða bláar þegar Obama tekur við völdum. Sem sýnir auðvitað enn og aftur að [...]

Verktakafrelsið uppskrift að misheppnuðum borgum

Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað undanfarið um byggingarverktaka og mikilvægi þess að völd þeirra og áhrif á skipulagsmál verði minnkuð vakti grein eftir Timothy Eagan á NYT athygli mína. Eagan fjallar um vöxt þess sem í Bandaríkjunum eru kölluð „exurbs“, þ.e. úthverfi úthverfanna – svefnbyggðir sem spruttu upp fjarri hefðbundnum úthverfum, [...]

Ríksþröngvað jafnrétti = ný fasteignabóla?

Heimskulegasta og um leið ógðefelldasta skýringin á fasteignabólunni, og þar með lánsfjárbólunni og að lokum hruni fjármálakerfis Vesturlanda, er sú að orsakanna sé að leita í the Community Reinvestment Act – laga sem sett voru í valdatíð Jimmy Carter, og hert á fyrsta kjörtímabili Bill Clinton. Þessi lög tóku á því að bankar gætu mismunað lántakendum [...]

Skipuleggjum áhlaup á bankana

Eitt af merkilegri fyrirbærum sem hefur verið að eiga sér stað í Bandaríkjunum undanfarnar vikur er áhlaup sem nokkrir vinstrisinnaðir bloggarar og fjölmiðlamenn, mér liggur við að segja „aðgerðarsinnar“ hafa skipulagt gegn „stóru“ bönkunum. Arianna Huffington, stofnandi Huffington Post átti upphafið að þessari aðgerð. Ákall Huffington er „Move your money“. Hugmyndin er sú að almenningur [...]

Heimskreppunni að linna

Línurit dagsins: Fjöldi starfa sem hafa tapast í Bandaríkjunum hverjum mánuði síðan heimskreppa 21 aldar byrjaði. Dýpsti öldudalurinn er augljóslega að baki í Bandaríkjunum. Sem hlýtur að vera góðar fréttir fyrir afganginn af heimshagkerfinu. Menn voru þó búnir að gera sér vonir um að atvinnutölur fyrir desember væru betri. NYT: The American economy lost another [...]

Skattalækkanir, afregluverkun drápu hagkerfið

Línurit dagsins. Atvinnusköpun í Bandaríkjunum á hverjum áratug frá lokum seinna stríðs borin saman. Á hinum myrku áratugum eftirstríðsáranna, sem einkenndust af regluverki og stofnunum Endurgjafar Roosevelt og vaxandi velferðarkerfi, var atvinnusköpun efnahagslífsins töluvert miklu meiri en á síðasta áratug, Bush-áratugnum, sem einkenndist öðru fremur af efnahagsstefnu sem byggðist á því að láta allt reika á [...]

Söguskoðanir ábyrgðarleysisins

Paul Krugman skrifar góða grein um ábyrgðarleysa efnahagsstjórn repúblíkana í New York Times í morgun. Inntak greinarinnar er að repúblíkanaflokkurinn virðist ekki hafa horfst í augu við að efnahagskerfi alls heimsins hafi lent í alvarlegustu efnahagskreppu síðan í heimskreppunn á fjórða áratug tuttugustu aldar í kjölfar þess að fjármálakerfið fékk að leika lausum hala, eftirlitslaust. Tilefni [...]

BNA: Alvöru skuldaaðlögun

Svo virðist sem Sheila Bair, yfirmaður FDIC, tryggingasjóðs innistæðueigenda í Bandaríkjunum, einnar mikilvægustu eftirlitsstofnunar fjármálakerfisins, ætli að bjóða viðskiptavinum banka sem sjóðurinn hefur leyst til sín upp á alvöru skuldaaðlögun. Þegar bandarískir bankar eru að stefna í að fara í þrot tekur ríkið þá yfir, eða réttara sagt, tryggingasjóður innistæðueigenda tekur þá yfir. Stærri viðskiptabankar [...]